Samtökin '78 - Úr felum - 01.12.1982, Page 4
ATVINNUÖRYGGi
FYRIR LESBÍUR OG HOMMAi
Utifundur í Brussel laugardaginn 27. mars
19 82. Ky nnirinn les kveðjurtil fundarins
milli atriða: „Samtökin '78, félag lesbía
og homma á Islandi, senda baráttu- og
stuðningskvebjur tilEliane A/Torissens og
allra belgískra lesbía og homma, sem
vinna fyrir málstað hennar. Komum öll
úr felum á vinnustaðl"
Eliane Morissens er um sextugt, og þar til fyrir hálfu öðru ári var
hún yflrkennari í unglingaskóla í héraðinu Hainaut. Þá kom hún úr
felum sem lestiía — með því að koma fram x sjónvarpsþætti um atvinnu-
mál lesbía og homma. Daginn eftir var henni viklð úr starfi án
skýringa, en ' fullum launum heldur hún þar til hún fer á eftirlaun.
Hún kœrði slg ekki um að hætta störfum svo skyndilega, og krafðist
þess að fá að halda áfram, en yfirvöld hafa daufheyrst fram að þessu.
Það er ljíst, að henni var vikið frá eingöngu fyrir það, að hún kom
úr felum. Félög lesbía og homma í Belgíu og í öðrum löndum hafa
beitt sér fyrir því, aö hún fengi leiðréttingu mála. Þingmenn
stjérnarflokksins í Hainaut-héraði hafa fengið áskoranir frá þing-
mönnum bræðraflokka erlendis og kennarafélög í öðrum löndum hafa
stutt Eliane Morissens með ályktunum. Er ekkert hafði miðað í máli
hennar á rúmi ári fðr hún I hungurverkfall í janúar síðastliðnum.
Loks nú hefur sérstakur stjórnsýsludðmstóll (Conseil d'Etat) fallist
á að taka málið til umfjöllunar.
VI8 HVAfl ERUÐ MÐ HRÆDD ?
A Islandi getur þetta ekki gerst, segja margir og telja óþarft að
gera ráð fyrir misrétti gagnvart lesblum og hommum í atvinnu. En
dæmin eru fjöldamörg frá útlöndum og þau eru til héðan, og þeim a
eftir að fjölga mikið þegar lesbíur og hommar fara að koma almennt
úr felum.
Að koma úr felum er forsenda til þess, að lesbíur og hommar geti
notið farsæls lífs. 1 felum eru manni sett svo þröng takmörk, að
það verður mörgum ofviða. Að látast vera annar en maður er, ef til
vill alla ævina, er það sem það kostar að vera £ felum. A umræðu-
fundi Samtakanna '78, félags lesbía og homma á Islandi, í mars slðast-
liðnum um efnið "Að koma úr felum á vinnustað", kom frain, að helsta
ástæða, þess, að fólk er í felum, er ótti við misrétti í atvinnu.
Þetta er mikilvægt atriði sem á erindi £ umræður um vinnuvernd, og
þá velferð á vinnustað, á þessu vinnuverndarári.
4