Samtökin '78 - Úr felum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 5

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 5
þeir kúguðu lyfta höfði og byija að efast um styrk kúgara sinna, eins og Bertold Brecht orðar það í kvæðinu «Lofgerðtil efans.» - Það er ekki fjarri lagi að kalla sjöunda áratuginn ár þeirra undirokuðu á Vesturlöndum. Félagsleg ólga einkenndi þessi ár. Menn voru langþreyttir á þeirri baráttu sem skipulögð var að ofan og stýrt að geðþótta flokkseigendanna og tóku höndum saman i þeim hreyf- ingum sem sumir hafa kennt við grasrætur. Sérkenni þessara hreyfinga voru ekki sist baráttu- mál þeirra. Þau höfðu sjaldnast átt uppá pallborðið i opinberri pólitík. Þetta voru ár kvennahreyfingar- innar, stúdenta- og blökkumanna- hreyfingarinnar. Og þetta urðu lika ár lesbía og homma. - Heita júnínótt eina, sumarið 1969, gerð- ist það að hommar börðu í fyrsta skipti frá sér þegar á þá var ráðist, svo sögur fari af. f einni af mörg- um «eftirlitsferðum» eða razzíum lögreglunnar um hommabarina við Christopher Street í New York tóku gestirnir hressilega á móti þegar lögreglan óð fram með of- beldi og lögleysu og leiknum lauk með þvi að hún snautaði burt með dindilinn milli lappanna. Átökin stóðu meira eða minna í heilt ár og vöktu strax gífurlega athygli. Ekki síst var það að þakka því fræga blaði, «Village Voice.» Nú loksins virtust skriffinnar þessa blaðs, sem hefur aðsetur sitt í stærsta hommagettói lands- ins, Greenwich Village í New York hafa komið auga á einn stærsta minnihlutahóp Bandarikjanna. Einn af þeim, sem átti leið um Christopher Street þessa júnídaga var hominn og skáldið góða, Allen Ginsberg. Eftir að hafa litið inn á Stonewall-barnum, sem var aðal- vettvangur átakanna, lýsti hann kvöldinu fyrir vini sínum með þessum fleygu orðum: «Veistu hvað - þeir voru svo fallegir, strák- arnir á barnum. Það er horfið, þetta sársaukafulla augnaráð sem einkenndi alla homma fyrir tíu ár- um.» f þessum fáu orðum felast mikil sannindi um nýju hommahreyf- inguna. Eldra baráttufólk meðal homma og lesbia hafði ætíð verið ótrúlega lítilþægt í kröfum sínum og málflutningur þess ein- kennst af afsökun og varnarstöðu. Stoltið yfir heitustu tilfinningum hommans leyndi sér aftur á móti ekki i baráttu og framkomu þeirra stráka sem Ginsberg lýsir og berg- málaði hæst i slagorði þeirra, «Glad to be gay.» - Innan kvenna- hreyfingarinnar tóku lesbíur að sækja í sig veðrið og átak þeirra var sist minna en hommanna.þær Christopher Street höfðu jú hingað til verið nánast ósýnilegar. Bandariska hommahreyfingin eignaðist brátt skelegga baráttu- menn sem skildu strax pólitiska möguleika hreyfingarinnar. Bóka- og blaðaútgáfa homma efldist til muna og áhrifin breiddust brátt til Vestur-Evrópu. Jafnvel hér heima á íslandi - tæpum tíu árum eftir átökin í Christopher Street - fóru hommar að láta á sér kræla og neita að sætta sig við þann hlut sem þeim var ætlaður hér i myrkr- inu og fáfræðinni. En sú barátta hlýtur fyrst og fremst að snúast um spurninguna sem ég gerði að umræðuefni i upphafi: Að fela sig eða fela sig ekki. VIÐ FÖRUM BARA, FÖRUM BARA FETIÐ... Ekkert fólk vaknar upp einn góðan veðurdag, fullvisst um að það sé hommar eða lesbíur. Sjálfskiln- ingur manna mótast við upplifun, reynslu og kynni af sinum líkum. - I því sambandi væri ekki úr vegi að lýsa nokkrum stigum vitundar- vakningarinnar eins og ég sé hana frá sjónarhóli hommans. Fyrsta skrefið er að játa tilfinn- ingar sinar til annarra karlmanna fyrir sjálfum sér og ákveða þá að reyna að taka félagslegum afleið- ingum þess. Þetta stig einkennist fyrst og fremst af einangrun og 5

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.