Samtökin '78 - Úr felum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 12

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 12
HINSEGIN • BENT» f REYKJAVÍK Aldrei þessu vant var býsna gam- an að vera hommi i Reykjavík hér á dögunum og næðingurinn var ekki alveg eins napur og endra- nær. I fyrsta skipti i íslandssög- unni bárust yfir hafið tvö prýðileg dæmi um þá listsköpun homma sem talsvert hefur borið á í ná- grannalöndunum síðustu árin. - Fjalakötturinn sýndi í desember bresku kvikmyndina «Nátthrafna» (Nighthawks) sem er meðal betri kvikmynda er hommahreyfing sið- asta áratugar gat af sér. Þetta er látlaus og raunsönn lýsing á lifi hversdagshommans í stórborginni Hann er landafræðikennari við skóla í London og ráfar kvöld eftir kvöld milli hommadiskóteka í heimaborg sinni án þess að finna það sem hann leitar að. Hann er i felum sem hommi í skóla sínum og samkennararnir vita fæst um einkalif hans. En árekstrar i skól- anum neyða hann til að standa við tilfinningar sínar og hann vaknar smám saman til vitundar um nýja möguleika sína í lifinu. Bent er að flestu leyti andstæða Nátthrafna. Leikrit þetta, sem Stú dentaleikhúsið frumsýndi í Tjarn- arbíói i byijun desember, lýsir engum hversdagsheimi heldur ógnum þýska nasismans eins og þær sneru að gyðingum og homm- um. Höfundurinn, Bandaríkja- maðurinn Martin Sherman, er sjálfur hommi og gyðingur og þekkir þvi hlutskipti kúgaðra í meir en einum skilningi. Verkið var frumsýnt i London vorið 1979 og hefur siðan farið frægðarför um fjölmörg Evrópulönd svo og Bandarikin. Sögulegur timi leikritsins er skýrt markaður, það hefst í Berlin 1934 og lýkur í vinnubúðum nas- ista í Dachau tveimur árum siðar. Max og Rudy eru hommar sem búa saman í Berlín og í sögu þeir- rabirtist okkur borgin á fyrstu ára- tugum aldarinnar. Þá var Berlín e. k. Gósenland evrópskra homma. Hvergi var skemmtanalifið litrík- ara og hommabarimir fleiri. Frels- ið virtist mikið en það gilti i raun- inni aðeins svo lengi sem hægt var að hafa gott af hommunum og græða á þeim eins og sannaðist við tilkomu nasismans. - Lif elsk- endanna sýnir vel þessa sögulegu staðreynd. Þeir veltast áfram kær- ulausir og blindir á eigið mann- gildi og ytri veruleika. Það verður lífsstíll þeirra að loka augunum fyrir þeim skelfilega veruleika sem umlykur þá og þeir skilja hvorki né skynja hvað uppgangur nasismans hefur í för með sér fyrir þá. Þótt ofsóknir á hendur minni- hlutahópum séu þegar hafnar taka þeir ekki eftir neinu. Rudy er lýst sem ljúfum en ofurlítið einföldum strák sem starir á það öryggi er hann vonast til að finna í parsam- bandinu. Max hefur aftur á móti lítið að bjóða honum, hann gengur um timbraður eftir drykkju nætur- innar eða lætur sig dreyma um að komast yfir skammt af kókaíni. Honum er lýst sem heldur óvið- felldnum náiinga.hann er sjálfupp tekinn og ábyrgðarlaus og dregur hvaða karlmann sem er upp í rúm með þeim, þvert gegn vilja Rudys. Lífið í Berlín fær dýpri merkingu í lýsingu Grétu, homma og kaba- rettdrottningar sem rekur klúbb og hefur allt sitt á þurru. Gréta á konu og börn og skilur auk þess prýðilega vald peninganna. Hann kaupir sér frið með þvi að visa valdhöfunum á þá homma sem þeir eru á eftir og ögrar valdinu aldrei meira en því gott þykir. 12

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.