Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Side 13

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Side 13
I Eftir «nótt hinna löngu hnífa», þar sem Röhm foringi SA-sveit- anna og fjölmargir fylgismenn hans voru myrtir að skipun Hitlers eiga hommar í Berlín fótum fjör að launa. Max og Rudy eru gripnir á flótta og sendir í fangalest til Dachau. Þar er Rudy drepinn af SS-mönnum sem neyða Max til að veita honum Iokasparkið og af- neita sambandi sinu við hann. - í fangabúðunum magnast niður- lægingin við þrældóm og auð- mýkingar. En þá vaknar lítil ljós- glæta í lífi Max. Milli hans og Horsts, samfanga hans, vaknar ást þótt þeir hafi engin skilyrði til að rækta hana. Þeir mega ekki snertast en tekst þó samt að leika á kúgara sína. I einu best samda atriði leiksins elskast þeir og fá fullnægingu án snertingar. Horst segir: «Okkur tókst það - helvítis verð- irnir, helvítis búðimar - okkur tókst það! Þeim skal ekki takast að drepa okkur. Við eiskuðumst. Við erum lifandi. Við erum manneskj- ur. Við elskuðumst. Þeir skulu ekki drepa okkur.» Við samskipti þeirra breytist Max. Með tilfinningahita sínum og skýrri meðvitund um stöðu sína hefur Horst áhrif á hann og Max verður smám saman mannlegri og heilli þrátt fyrir mannlæginguna sem stýrir öllu lífi í Dachau. Horst hefur aldrei reynt að afneita sjálf- um sér, hann ber bleika þrihym- inginn, merki hommanna í fanga- búðum nasista. Max hefur aftur á móti skotið sér undan bleika þrí- hyrningnum með því að afneita sjálfum sér til að lenda ekki í hópi þeirra lægstu og fær i skiptum gulu Davíðsstjörnuna, merki gyð- inga. Þegar Horst er skotinn af vörðunum fyrir augunum á Max, framkvæmir hann táknræna at- höfn sem sýnir að hann er að vakna til sjálfsvitundar og sjálfs- virðingar. Hann klæðir sig í fangaskyrtuna með bleika þrí- hyrningnum, sem Horst bar, kast- ar sér síðan á rafmagnaðan gadda- vírinn og deyr. Þótt saga Max endi i tortímingu og dauða felur hún engu að siður í sér áskorun til okkar homma um að hætta að svikja ht og vera við- búnir þeim degi þegar fasisminn ríður í hlað, í hvaða gervi sem hann birtist. En jafnframt þvi að minna á horfna sögu hommanna i þriðja ríki Hitlers er V-'krit Sher- mans líka djúpsæ greming á stig- veldi kúgunarinnar þar sem kúg- arinn neyðir einn til að sitja á öðr- um til að auðvelda sér verk sitt. Sundrung þeirra undirokuðu sér fyrir því að þeir fá ekki sameinast gegn raunverulegum kúgurum sínum. Að þessu leyti á Bent ekki bara erindi til homma heldur er leikritið þörf hugvekja öllum þeim manneskjum sem eiga undir högg sækja hér á jörðu. Leikstjóranum, Ingu Bjarnason, hefur að mörgu leyti tekist að skapa eftirminnilega sýn- ingu. Vitaskuld ber leikurinn þess skýr merki að leikendumir eru nær allir áhugamenn með tak- markaða sviðsreynslu, en leikur þeirra er yfirleitt lipur og oft á tíð- um kraftmikill. Ekki síst auka hóp- senur brúnstakkanna á áhrifamátt sýningarinnar, magna andstæður hennar og undirstrika það sögu- lega í verkinu. - í ýmsum atriðum sýningarinnar söknuðum við þó meiri hraða og spennu. Einkum á þetta við um samleik þeirra Max og Rudys í fyrri hluta leiksins. Stærstu hlutverkin eru i hönd- um þeirra Andrésar Sigurvinsson- ar, sem leikur Max, og Magnúsar Ragnarssonar, sem leikur Horst. Andrés er menntaður leikari og býr augsýnilega yfir mikilli tækni. I hreyfingum og raddbeitingu sýn- ir hann t.d. öryggi sem engir hinna leikaranna hafa. En þrátt fyrir sviðsöryggi sitt er stundum eins og bregði fyrir tómahljóði í leik hans og þá spennir hann bog- ann hærra en æskilegt væri, t.d.í atriðinu er hann lýsir því hvernig SS-hermennirnir neyddu hann til að sanna «hið rétta eðli» sitt. - Að leik annarra ólöstuðum er okkur minnistæðastur Magnús Ragnars- son í hlutverki Horst sem með ein- lægni sinni og sterkum leik vinnur umtalsverðan sigur. Samleikur Magnúsar og Andrésar í atriðun- um, er þeir elskast án þess að snertast, er einn sá vandaðasti sem við höfum lengi séð á leiksviði í Reykjavík, svo lágstemmdur sem hann annars var. Þakka ykkur fyr- ir, strákar ! Sú mikla rækt, sem leikstjórinn hefur lagt við leikendurna, fær þó ekki nægilegan stuðning af sviðs- mynd og lýsingu sýningarinnar. Að vísu er hér ósköp erfitt um vik. Sviðið i Tjarnarbiói stendur varla undir nafni sem leiksvið og ljósa- útbúnaður er í rýrasta lagi. En því miður er leikmyndin svo rýr að hún rýfur sjaldan þá tilfinningu að við séum stödd í Tjarnarbíói. Til að létta leikurunum róðurinn hefði mátt gera meira að þvi að þrengja sviðið með staðbundinni lýsingu. Ekki má gleyma tónlist sýning- arinnar sem átti mikinn þátt í að skapa stemningu og styðja við leikarana. Söngur brúnstaldcanna i fyrri hlutanum varð ógnvekjandi váboði í öllu kæruleysi þeirra Max og Rudys og vandaður flautuleikur Kolbeins Bjarnasonar varð til að lýsa upp þann vonameista sem kviknaði milli elskendanna mitt í helvítinu í Dachau. 13

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.