Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 21
bia og homma taki þátt i að
hrinda þessu verki fram.
Fjölmiðlar eru sterkustu mót-
endur samfélags U t -
breiðsla hómofóbiu væri miklu
minni ef þeir heföu ekki alið á
henni með þögn, sem einungis
er rofin til þess að flvtja nei-
kvæð viðhorf gagnvart samkyn-
hneigð. Fjdmiðlum ber skylda
til að snúa við blaðinu, og sina
samkynhneigð og lesbiur og
hommairéttu ljosi i írettum og
öðru efni. Þeir þurfa að gera sér
ljóst. aðþó ekki sé nema að þeir
viðurkenni tilvist lesbia og
homma með þvi að nefna þotta
fólk berum orðum. hefur það
mikil áhrif til þess að uppræta
hómofóbiu.
Fræðsluyfirvöld þurfa að
tryggja.að aJlir fái t'ullnægjandi
fræðslu i tima til þess að firra
þvi að nokkur þjáist at hórr.ófo-
biu þegar aö þvi kemur að hann
gerir sér grein fyrir eigin kyn
hneigð og annarra , B >rn þurfa
að hafa fyrirmvndir i fullorðnu
fólki, hommar og lesbiur i
kennar:„stétt þurta að geta verið
samkynhneigðum nemendum
samskonar fyrirmynd og gagn-
kynhneigðir nemendur fá i öðr-
um kennurum.
Listamenn af öllu tagi verða
að túlka allar hliðar mannlifs-
ins, ekki einungis þær hliðar
sem snúa að gagnkynhneigðu
fólki. Skáld og söngvarar og
aðrir höfundar, sem eru sam-
kynhneigðir, þurfa að yrkja
verk sin og flytja sem slikir
Stjórnmálamenn og -flokkar
þurfa að beita áhrifum sinum til
þess að uppræta hómófóbiu. Þó
að viðhorfsbreyting gerist ekki
með lagasetningu og fyrirmæl-
um, þá hefur slikt veruleg áhrif
til þess að flýta breytingu.
Stjommálamenn þurfa að láta
endurskoða lög með tilliti til
þess að útrýmt verði (81um á-
kvæðum sem misrmina sam-
kynhneigðu fólki. Þeir þurfa að
setja sérstök lagaákvæði sem
vernda lesbiur og homma fyrir
lagaleguog félagslegu misrétti.
Heilbrigðisstarfsmenn þurfa
að vinna gegn hómófóbiu á ein-
arðan hátt. Stór hluti þess fólks
sem leitar aðstoðar vegna geð-
rænna kvilla er i raun haldinn
hómófóbiu, og þvi er enginn
greiði gerður með þvi að horfa
fram hjá þvi. Lesbiur og
hommar i heilbrigðisstéttum
þurfa að geta verið sjúklingum
til fyrirmyndar og sönnunar um
að samkynhneigð kemur ekki i
veg fyrir að maður geti lifað
fullkomlega heilbrigðu og
hamingjusömu lifi.
Klerkar og kennimenn þurfa
að prédika um gildi kærleikans,
sem er óháð kyni persónanna.
Og þeir vita eins vel eins og aðr-
ir, að það er kynhneigð sem
ræður þvi, hvers kyns þeir ein-
staklingar eru, sem fella hugi
saman. Það þarf aðsegjast upp-
hátt, svo að allir skilji, að trúar-
brögðin eru trúarbrögð allra,
hvernig sem kynhneigð er
háttað.
Lesbiur og hommar þurfa að
koma úr felum, fyrir sinum
nánustu að minnsta kosti.
Hamingjusamur hommi og
hamingjusöm lesbia eru áhrifa-
rikasta vopnið gegn hómófóbiu.
Guðni Baldursson
Hans Wiedbusch var jarðsettur i
Hamborg, en áður fór fram minn-
ingarathöfn i Dómkirkjunni i
Reykjavik að viðstöddu fjölmenni
2. október 1981. Morgunblaðið
var beðið fyrir birtingu þessarar
greinar þann dag, en vikist var
undan þvi með skirskotun til þess,
að grein sem þessi »œtti ekki er-
indi i dagblað.» Hún var siðan birt
iVisi 7. október 1981.
21