Samtökin '78 - Úr felum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 24

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 24
UTAN URHEIMI: PARADJANOV FANGELSADUR Á NÝ «Ég vil láta dæma mig sem mann,» sagði Sergej Paradjanov, sovéskur kvikmyndaleikstjóri, i yfirlýsingu fyrir dómstólnum sem dæmdi hann til 5 ára fangabúðar- vistar 1973. Hann hafði þá játað að hann væri «að nokkru leyti hómósexual.» Nafn Paradjanovs ætti ekki að vera með öllu óþekkt meðal þeirra sem lesa hommablöð. Dóminum 1973 fylgdi hörð barátta forystu- manna í menningarmálum i Evr- ópu til að fá hann látinn lausan. Meðal þeirra voru margir af stór- löxum kvikmyndaheimsins, t.d. Fellini. Af þessu urðu örlög Para- djanovs kunn í Evrópu, en honum var haldið áfram bak við lás og slá. Franskur rithöfundur, Luis Aragon, hitti Leonid Breznev for- seta 1977, og talaði þá máli Para- djanovs. Á gamlárskvöld var hann látinn laus, en varð að sæta ákveðnum takmörkunum á frelsi sínu. Hann fékk ekki að skipta sér af kvikmyndagerð, og neyddist til að setjast að i Tbilisi i Georgiu. Hvað skyldi Paradjanov hafa unnið til að skapa sér slíka óvild ráðamanna? í kvikmyndinni «Sayat Nova», sem var frumsýnd í Frakklandi á þessu ári, er brugðið upp myndum úr lífi armenska ljóð- skáldsins Sayat Nova. Skoða má Sayat Nova sem táknmynd fyrir sjálfstæðisvitund Armeníumanna, og það er auðvitað þymir i augum margra kerfiskalla i Sovétríkjun- um. Enn fremur hefur myndin trúarlegt ívaf, sem verður málstað Paradjanovs náttúrlega til lítils framdráttar. Og eitt atriði enn: Aðalpersón- an í myndinni er leikin af mörgum leikurum, og einn þeirra er kona. Hugsun Paradjanovs á bak við þetta er sú, að til þess að geta verið fullkomin skapandi persóna verður karlmaðurinn að leyfa hinu kvenlega í sál sinni að koma fram. Vöðvar og kraftar einir duga ekki til Það er fáránlegt, að á sama tima og sovésk menningaryfirvöld fá eftirsóttar gjaldeyristekjur fyrir sýningar á myndum hans í útlönd- um, er Paradjanov nú handtekinn og ákærður fyrir brot á gjaldeyris- löggjöfinni. I" Sovétríkjunum hefur verið bannað i tíu ár að sýna verk hans. Á frelsisviku lesbía og homma í Stokkhólmi í ágúst var vakin athygli á málstað hans og nokkrar af myndum hans sýndar. Ekki hefur enn verið dæmt í þessum nýju sökum hans. Sendið þvi bréf eða bréfspjald til sak- sóknaraembættisins, og mót- mælið meðferð þeirri sem Sergej Paradjanov hefur orðið að sæta og krefjist þess að hann verði tafar- laust látinn laus úr haldi og fái leyfi til að flytjast til Frakklands. Utanáskrift: Office of the public Prosecutor, Tbilisi, Georgian SSR, USSR Pi&t Paoh Pamíwi höfundur kvæðisins hér að fram- an, fæddist á Norður-ítaliu 1922. 19 ára gamall gerðist hann lið- hlaupi úr herjum Mussolinis og flúði til heimaborgar móður sinnar Casarsa, þar sem hann hóf rithöf- undaferil sinn. Eftir styrjöldina varð hann skólakennari i fátækra- hverfum Rómar og samdi ljóð og sögur sem skipuðu honum i röð bestu skálda ítalíu sinna daga. Fyrsta skáldsaga hans var Rag- azzi di vita og vakti mikla athygli á sínum tima fyrir opinskáar lýsing- ar á lifi homma. - Líf öreiga og utangarðsmanna voru helstu yrkis efni hans og þeim lýsir hann lika á eftirminnilegan hátt i tveimur fyr- stu kvikmyndum sinum um hór- karlinn Accatone, og hóruna, Mamma Roma. Hún reynir stöð- ugt að vinna sig upp úr eymdinni en skilur ekki með hverjum hún á samstöðu að gæta og biður ætið ósigur. - Af öðrum myndum hans, sem hér hafa verið sýndar, má nefna Svinastiuna, Mattheusar- guðspjallið og trílógíuna sem ekki sist fjallar um hlut girndarinnar i hörðum heimi: Decamerone, Kant araborgarsögurnar og 1001 nótt. Pasolini tók alla ævi virkan þátt i ítalskri þjóðmálaumræðu og vakti löngum úlfaþyt fyrir óbilgjarnar skoðanir sínar og það að standa við tilfinningar sínar hvar og hvenær sem var. Sú staðfesta varð m.a. til þess að hann var rek- inn úr flokki sínum, ítalska komm- únistaflokknum, fyrir það eitt að lifa sem opinn hommi. Pasolini var myrtur haustið 1975 og opin- berlega var látið svo heita að þar hafi vændisstrákur verið að verki. Vinir hans og margir vinstri menn á ítaliu hafa þó aldrei efast um að í rauninni hafi það verið italskir ný- fasistar sem gerðu útaf við hann. Caracalla böðin, sem nefnd eru i kvæðinu, eru rústir af fomu róm- versku baðhúsi þar sem hommar komu saman til að elskast á nótt- unni hér fyrr á árum. -þ V.

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.