Samtökin '78 - Úr felum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 31

Samtökin '78 - Úr felum - 01.03.1983, Qupperneq 31
Un Ateiimhiá SanUakmm'78 Heilbrigt mannlif hlýst af ham- ingjusömu lifi sérhvers einstakl- ings. Komist einstaklingurinn til þess tilfinningalega og félagslega þroska sem honum er búinn, á hann sér þá kosti er leiða til fars- æls lifs. Við lesbiur og hommar á íslandi viljum miðla þekkingu til hómó- sexúal einstaklinga og efla með þvi skilning þeirra á sjálfum sér og treysta afstöðu þeirra til sjálfra sin, Þekkingin er eign samfélagsins alls. Hún þokar vanþekkingunni brott svo hún á ekki afturkvæmt, þvi að af þekkingu leiðir skilning. Á öllum sviðum þjóðlifsins rikja bábiljur og hleypidómar, skapa það og móta uns þekkingin berst. Aldrei hefur hún borist viðstöðu- laust, hún krefst athafna og atorku þeirra er yfir henni búa og geta miðlað henni. Við lesbiur og hommar viljum miðla þekkingu á málefnum okkar til alls samfélagsins svo að það öðlist skilning á þeim og á þvi, að við erum eðlilegur hluti af sam- félaginu. Sérhver þjóð telur sér til gildis að hún virðir mannréttindi. ísland á sér ákvæði um þau i stjórnar- skrá og fullgiltum samþykktum Sameinuðu þjóðanna og Evrópu- ráðsins. Þau skulu tryggð án nokkurs manngreinarálits. Enn eru i gildi hér á landi nokk- ur lagaákvæði sem gera greinar- mun eftir kynferði og kynhneigð. Þó á fæst af þvi, sem lesbium og hommum finnst sér mótdrægt i samfélaginu, stoð i samþykktum reglum. Við lesbiur og hommar á íslandi viljum njóta fyílstu réttinda, sið- ferðislegra og lagalegra, án nokk- urs manngreinarálits, en förum ekki fram á nein forréttindi. Öll mannréttindabarátta er ná- tengd. Lesbiur og hommar eiga þvi samleið með öllum öðrum sem farið er i manngreinarálit við. Við lesbiur og hommar á íslandi viljum þvi að félag okkar styðji önnur félög er leita mannréttinda og afli stuðnings þeirra. Við lesbiur og hommar á íslandi erum: - af báðum kynjum - á öllum aldri - i hverri starfsstétt - i hverri hjúskaparstétt - i hverju byggðalagi - i hverju trúfélagi - i hverjum stjórnmálaflokki. 31

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.