Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 2
Útgefandi:
Samtökin 78
Pósthólf 4166
124 Reykjavík
Úr felum kemur út þrisvar á ári.
Að blaðinu unnu: Böðvar, Einar, Guðni, Hrafnhildur,
Ólafur, Tómas og Þorvaldur.
Ábyrgðarmaður: Helgi Magnússon.
Offsetprent prentaði.
Hvernig næ ég sambandi
við Samtökin'78?
Samtökin ’78, félag lesbía og
homma á íslandi, eru til húsa á
Skólavörðustíg 12 í Reykjavík. Þar
hefur félagið skrifstofu og þar er
„Opið hús“ þrisvar í viku. Opið er
á þriðjudags- og fimmtudagskvöld-
um kl. 20—23 og á laugardögum kl.
16—19. Þangað eru allir velkomnir
og þar geta menn spjallað saman
yfir kaffibolla eða kóki, litið í blöð
og tímarit fyrir homma og lesbíur
og látið sér líða vel.
Hér skal þó vakin athygli á að
ekki er Opið hús hjá Samtökunum á
laugardögum yfir sumarmánuðina,
júní, júlí og ágúst.
En þetta finnst mörgum stórt
skref, að hitta aðra homma og les-
bíur í fyrsta skipti. Þess vegna
minnum við líka á simatíma Sam-
takanna. Við svörum í símann á
mánudags- og fimmtudagskvöldum
milli kl. 21 og 23. Símanúmerið er
28539 og þangað geta allir hringt
og rætt um tilfinningamál sin eða
það sem þeim liggur á hjarta. Fyrir
marga er lítið símtal fyrsta skrefið á
langri leið úr felum og menn ráða
hvort þeir segja til nafns eða ekki.
Mörg okkar, sem nú störfum í Sam-
tökunum ’78, höfum stigið fyrsta
skrefið með því að hringja og ræða
líf okkar og tilfinningar við fólk
sem hefur reynslu og þekkingu á
málefnum lesbía og homma. Karl-
menn eru á simavaktinni báða dag-
ana og á fimmtudögum sinna konur
líka vaktinni. Kvenfólki sem vill
ræða við lesbíur skal sérstaklega
bent á fimmtudagana. Á Akureyri
starfrækja Samtökin einnig síma-
þjónustu. Ef einhverjum hrýs hugur
við að koma á ,,Opið hús“ án þess
að þekkja nokkurn þá er best að
hringja fyrst og mæla sér mót við
einhvern úr símahópnum á staðn-
um. Við segjum alltaf til nafns og
viljum gjarnan hjálpa nýju fólki til
að blanda geði við aðra.
Þótt allir séu velkomnir í hús-
næði Samtakanna hvetjum við fólk
eindregið til að gerast formlegir
félagsmenn og styðja þannig starf
okkar. í Samtökunum störfum við í
starfshópum og allir félagsmenn
geta stofnað starfshópa um áhuga-
mál sín. Við höfum starfshópa um
blaðaútgáfu, skemmtanahald,
fræðslufundi í skólum, ,,Opið
hús“, kvennastarfið, símaþjónust-
una og margt fleira.
U.þ.b. fjórum sinnum á ári halda
Samtökin dansleiki. Þar hitta marg-
ir hommar og lesbíur sína líka í
fyrsta skipti. Nánari upplýsingar
um dansleikina er hægt að fá i síma
Samtakanna allan sólarhringinn hjá
sjálfvirka símsvaranum. Auk þess
auglýsum við dansleikina í DV.
Sjáumst á ,,Opnu húsi“!
2