Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 3
Blað Samtakanna 78, Úr felum, lítur nú aftur dagsins Ijós eftir árs hlé. Þaö
er mikið verk að skrifa blaöið, sinna tæknivinnunni, dreifa því og selja. Sama
fólkið sinnir í rauninni öllum þessum verkum og því má búast við töfum á
útkomu blaðsins nema fleiri komi til liös við blaðhóp Samtakanna. Við
hvetjum nýja og gamla félagsmenn til að liggja nú ekki á liöi sínu heldur koma
og slást í blaðhópinn. Það er mikil þörf fyrir fjölhæft fólk í starfinu.
Blaðið ber þess merki að langt hefur verið á milli heftanna og því er lítiö um
fréttir, innlendar og erlendar, sem ættu erindi til okkar. Til þess aö fréttir
missi ekki marks þurfa þær að vera fjölbreyttar og birtast reglulega. Þetta
stendur til bóta.
í þessu blaði fjöllum við um skemmtistaðamálin svokölluö. Margir
þekkja ástandiö eins og því er lýst í greinunum, öðrum reynist örðugt að trúa
því sem í þeim er sagt. Ofsóknir og misrétti gagnvart hommum á opinberum
skemmtistöðum er verðugt viöfangsefni fyrir hagsmuna- og baráttufélag okkar.
Á þessum stöðum krystallast staða okkar í íslensku samfélagi. Því eru
skemmtistaðamálin hvorki einkamál þeirra sem fyrir ofsóknunum verða né
einkamál okkar homma og skemmtistaðanna. Skemmtistaöamálin eru á ábyrgð
okkar allra.
Á þingi Noröurlandaráðs í mars var samþykkt meö yfirgnæfandi meirihluta
tillaga um samræmdar aðgerðir til afnáms misréttis gagnvart lesbíum og
hommum á Norðurlöndum. Frá þessu er sagt í blaðinu. Þessi samþykkt mun
ásamt samþykkt Evrópuráösins um sama efni frá 1. október 1981 reynast
mikill stuðningur fyrir okkur lesbíur og homma og þá er vilja vinna með okkur
að mannréttindum okkar.
3