Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 4

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 4
Út að „skemmta” sér Hommar á skemmtistöðum Sú félagslega og pólitíska vitundarvakning, sem spratt upp meðal vestrænna homma á síðasta áratug skildi víða eftir spor. Ekki aðeins á þeim vettvangi sem tengist pólitísku starfi og útgáfu róttækra rita, heldur tók umræðan og andófið til ótal þátta í lífi homma. Með nýrri vitundarvakningu litu hommar sjálfa sig öðrum augum en áður. Þeir voru ekki lengur óhreinu börnin hennar Evu, þeir höfnuðu skilgreiningu samfélagsins og lærðu í vaxandi mæli að gleðjast yfir sjálfum sér og gera upp við þann feluleik sem stýrir lífi hins dæmigerða homma. Þessi nýi sýnileiki þeirra birtist viða. Barirnir og skemmtistaðir stórborganna, þar sem hommar hafa fundið hver annan um áratugi, skiptu líka um svip. Sérstökum hommastöðum fjölgaði gífurlega og urðu langtum sýnilegri en áður. Þessar miðstöðvar skemmtanalífs- ins urðu í stórborgum heimsins að eins konar gettóum, svo sem í New York og Los Angeles. Gróðamenn tóku við sér og upp risu nýir skemmtistaðir sem færðu sér nýjan lífsstíl hommanna í nyt. Sá vettvangur sem afþreyingar- iðnaðurinn hafði markað hommum tók miklum stakkaskiptum og leit- aði á ný mið. Það er vel þekkt staðreynd að dískótekin urðu fyrst til meðal homma. Það voru þeir sem fylltu gólfið á fyrsta diskóteki heimsins - Twelfth floor - sem varð til í verksmiðjuhúsnæði á Manhatt- an í New York 1971. Diskótekin, það voru staðirnir þar sem strák- arnir dönsuðu heilu næturnar án þess að skiptast á orðum. Þau spegluðu vel firringu og ópersónu- leika skemmtanaiðnaðarins en um leið sýndi óhamin dansgleði strák- ana að lífsstíll og lífssannfæring hommanna hafði breyst frá því sem áður var. Úr horninu á Borginni og út á gólf Uppi á íslandi vissu menn lítið um þær hræringar sem áttu sér stað úti í heimi. Fyrir tíu árum vissi hinn íslenski meðaljón ósköp lítið um homma, þeir sem stunduðu skemmtanalifið könnuðust helst við þá sem vöndu komur sínar á Hótel Borg og héldu sér við barinn. Reyndar voru þeir nánast ósýnilegir öðrum en hinum hommunum. Og svo lengi sem þeir héldu sér við flöskuna og grétu vonsku heimsins oní glasið sitt, uppfylltu þeir prýði- lega það hlutverk sem íslenskt sam- félag vildi helst sjá þá í, hlutverk hinna voluðu og ógæfusömu, þeirra sem bar að skammast sín fyrir líf sitt og tilfinningar. En nýir tímar runnu upp, nýir skemmtanahættir bárust til íslands, diskótekin urðu helsta einkenni skemmtanalífsins hér sem á megin- landinu. Frjálsleiki þeirra kallaði unga fólkið út á gólfið, hommana líka. Margir þeirra höfðu smitast af nýjum lífsstíl erlendis, þeir stóðu upp frá glasinu og héldu út á gólf. En þeir ráku sig á að dansgólfið var ekki ætlað þeim og um leið og þeir gáfu tilvist sína til kynna var það réttur hinna sem gilti. Þar er komið að því stríði sem staðið hefur um árabil og ekki er séð fyrir endann á. Martröð skemmtanalífsins Hún er hörð gangan sem bíður þeirra opnu homma, sem ætla að lyfta sér upp um helgar, fá sér í glas, leita útrásar eftir vinnuvikuna, spjalla við kunningjana og fá sér snúning. Sú ferð snýst iðulega upp í martröð: ofbeldi, úthrópanir og auðmýkingu. Ef einhver skyldi halda það þá er það ekki eins og að drekka vatn að verjast auðmýkingunni sem hommum er sýnd hér á skemmtistöðum. Hér er svo sannarlega ekki um að ræða eina auðmýkingu á kjaft, einu sinni á lífsleiðinni, heldur lendir sami ein- staklingur í útistöðum viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár, mismunandi alvarlegum og með mismunandi löngu millibili. Það þarf engan speking til að segja okkur að venjulegur meðalmaður veldur varla þessari lífsreynslu og þessum aðstæðum. Ekki skortir dæmin um þá fyrir- litningu og ofbeldi sem við hommar verðum fyrir á skemmtistöðum höfuðborgarinnar. Hins vegar hafa fæstir okkar einurð í sér til að taka 4

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.