Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 8

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 8
Út að „skemmta” sér Mér var hugsað til þess hve hann ætti bágt í karlmanna- hlutverkinu Verða lesbíur nokkurn tíma fyrir aðkasti á skemmtistöðum? Stelpur geta jú dansað saman án þess að nokkur skipti sér af því. Þessi viðhorf þekkjum við vel og vissulega eiga þau við rök að styðjast. Konum leyfist margt á skemmtistöðum sem karlmönnum leyfist ekki. M.a. geta þær tjáð tilfinningar sínar til annarra kvenna með faðmlögum og dansað saman án þess að abbast sé upp á þær á sama hátt og karlmenn. — En öðru máli gegnir um þær konur sem ákveða að lifa opnu lífi sem Iesbíur. Á þeim bitna fordómar og svívirðingar og þær mæta lítilli samstöðu frá kynsystrum sínum, hvort sem þær eru heterósexúal eða hómósexúal. Um það vitnar saga Binnu sem er 25 ára lesbía úr Reykjavík. — Þessir atburðir, sem ég ætla að segja frá, gerðust á árshátíð einni sem haldin var á þekktum skemmtistað í bænum. Ég fór þang- að með vinkonu minni sem ég átti í ástarsambandi við um tíma. Á margan hátt á ég góðar minningar frá kvöldinu. Við stelpurnar dönsuðum saman og leyfðum okkur að kela hvor við aðra svona rétt eins og hinir. Mér fannst ég virkilega vera meðal vina. Nú, seint um kvöldið fór ég fram á klósett sem ekki er svo sem i frá- sögur færandi. Yst í salnum situr þá par við borð óg þegar ég geng framhjá þeim þá sparkar maðurinn i rassinn á mér með ókvæðisorðum og fúkyrðum: „Djöfulsins, ógeðs- lega lessan þín, reyndu að losa þig við óeðlið og snúa þér að karlmönn- um!” Ég spurði rólega hvað ég hefði gert honum enda trúi ég ekki á æsing gagnvart svona mönnum. Hann heldur bara áfram að tuða um óeðlið í mér en konan hans situr steinþegjandi og alveg stjörf við hliðina á honum. Ég fer svo frá þeim en segi vinkonu minni frá þessu þegar ég kem aftur að borðinu til hennar. Hún og önnur til fara þá fram til að ræða við manninn. Stendur hann þá ekki upp og gefur vinkonu minni á kjaftinn svo blæðir úr. Konan hans kallar nú i mig og segir að við megum ekki halda að hún sé á móti okkur eða eigi neinn þátt í æsingnum í honum. Nú fer að síga í þá þriðju sem var vitni að látunum í manninum og þegar hann slær vinkonu mína hellir hún úr glasinu yfir hann. Skiptir nú engum togum, að mannkvikindið rís upp, leggur hana í gólfið og bera hana sundur og saman svo hún var öll blá og marin á brjóstinu lengi á eftir. Dyraverð- irnir koma nú og reyna að skilja á milli. Þeir vísa manninum út en um leið og hann fer tekst honum að sparka svo rækilega í lærið á vin- konu minni að hún gekk lengi um hölt á eftir. Hvernig bar hann sig eftir þetta? — Hann bar sig nú bara vel, enda mátti hann vel við una, búinn að stórslasa þær sem hann átti i höggi við. Ég held lika að ekki sé hægt að afsaka hann með því að hann hafi verið fullur. Þvert á móti sýndist mér hann lítið drukkinn. Það ræð ég af viðbragðsflýti hans, hvernig hann talaði. En mér var hugsað til þess hve hann ætti bágt í karl- mannahlutverkinu, því önnur eins viðbrögð get ég varla túlkað öðru- vísi en svo að hann eigi í basli með tilfinningar sínar til karla og sé varla eins öruggur á kenndinni til kvenna og hann vildi vera af láta í orðaskiptunum við mig. Hver var ástæðan fyrir því að hann byrjaði að abbast upp á þig? Var það vegna þess að þið voruð að dansa eða kyssast? — Hann sá okkur nú reyndar ekki þegar við kysstumst, það gerðum við úti í horni á barnum að fáum ásjáandi, án þess að ég ætli neitt að biðjast afsökunar á því. En kannski hann hafi frikað út á að sjá okkur dansa. — Nú, svo má geta þess að ég hef nokkrum sinnum selt blað Samtakanna fyrir utan Ríkið og þaðan kannast margir við mig. Af hverju kærðuð þið aldrei manninn? — Þar kemurðu nú að því sem brann heitast á mér. Auðvitað vildi ég kæra manninn, ég hafði allt að vinna og engu að tapa. Dyraverð- irnir sögðust líka skyldu bera vitni með okkur ef við gerðum það. En 8

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.