Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 12

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 12
Illustrated Guide to Gay Dancing Practising homosexuals do much of iheir practising on the dance-floor. Above is a simple steþ-by-step pictorial guide to the most popular underground dance: The Tangle. klæðaburð í eftiráútskýringum sín- um. Gætum að því, að okkur er eins frjálst og öðrum að velja sér fatnað eftir smekk. Við eigum að valda truflun og ónæði. Gætum að því að nefbrjóta engan þó að dyraverðir leyfi sér það, klípum engan ókunnugan svo í lærið að mar hljótist af þó að kvenfólk þurfi að sæta því af hetr- óunum, bregðum engum á dans- gólfinu og völdum ekki slysum á nærstöddum með bræðrabyltu. Að öðru leyti höfum við alla sömu hentisemi og aðrir, drekkum og duflum, dönsum og föðmumst og kyssumst. Skemmtistaðaeigendurnir eiga að ráða því sjálfir hverjum þeir bjóða inn til sín. Þetta er ekki rétt. Skemmtistaðirnir eru almennir veit- ingastaðir og reknir uppá leyfi sem slíkir. Sá sem býður almenningi vöru eða þjónustu getur ekki haft sína hentisemi að afgreiða suma en ekki aðra. Að neita manni um þjón- ustu vegna þess að hann er hommi styðst ekki við neina lagaheimild. Að vísu er slíkt ekki enn orðið hegningarlagabrot hér (það er það í Noregi), og því þarf maður að sækja rétt sinn sjálfur, fyrir milli- göngu félagsins og lögfræðings, fyrir einkamáladómstóli, en réttinn eigum við. Gætum að því að láta dyraverði ekki ná okkur á eintal, sjáum til þess að vitni verði að öllum orða- skiptum. Fylgjum þeim ekki afsíðis, það er aðferð þeirra til þess að geta farið sínu fram án vitna. Lendum við í útistöðum við starfsmenn, gætum þá að því að fara ekki af vettvangi nema að hafa fengið gefin upp nöfn þeirra og þeirra vitna sem kunna að vera til staðar. Sættum okkur ekki við dylgjur eða hálf- kveðnar vísur, hafi þeir eitthvað við okkur að segja skal það vera skýrt og skorinort svo að allir megi heyra og skilja. Beiti þeir líkamlegu ofbeldi er rétt að taka svo á móti sem ástæða gefst til. Ef maður verður fyrir misrétti á skemmtistað, þá er best að setjast sem fyrst niður þegar tækifæri gefst og skrifa alla sögu málsins í smáatriðum. Minnið er brigðult, og þegar rannsókn mála getur dregist í mánuði er hætt við þvi að fyrnist yfir mikilvæg atriði ellegar að brotalamir komi í fram- burðinn. Með þetta bak við eyrað óska ég okkur góðrar skemmtunar á skemmtistöðunum. Látum apartheid á opinberum veitinga- stöðum tilheyra liðinni tíð! Guðni Baldursson 12

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.