Samtökin '78 - Úr felum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Qupperneq 15

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Qupperneq 15
betra að bjóða heima...” „Góður þessi. Hvers vegna ætti ég að hafa birgt mig upp?” ,,Ef þú býður manni heim í mígandi rigningu, þá hlýt- urðu að eiga handa honum hressingu.” „Kannski það sé eitthvað í skápnum. Og hvað gerum við þá, förum heim og horfum á sjónvarpið?” „Heyrðu mig, ef þú ætlar að fara að vera með einhver látalæti hérna í einhverri ömurlegri sjoppu eftir að hafa dregið mig hingað uppeftir vestan úr bæ, þá skulum við bara gleyma þessu. Ég fékk þrjátíuogníu önnur svör við auglýsingunni.” „Þú segir ekki. Það er munur að vera vinsæll. En bíddu nú aðeins við. Líttu á málið frá mínum sjónarhóli. Mundir þú ekki líka reyna að vinna tíma? Þetta er ekki merkileg íbúð sem ég á, en ég á hana. Getur maður hleypt hverjum sem er inn á gafl til sín?” „Alltílagi, alltílagi, fyrirgefðu. Ég hef ekki setið inni, ég er enginn furðufugl. Einsog ég sagði i auglýsingunni, þá er ég hreinn og beinn og vil komast í kynni við karl- mann. Hvað viltu meira — meðmæli?” „Slappaðu af. Drekkurðu romm og kók?” „Skiptir það máli?” „Nemaþú leggir annað til, ég á ekki annað.” „Ég drekk romm og kók. Förum.” „Ágætt.” „Strætó?” „Hefurðu ekki lappirnar í lagi? Petta eru tvær mínútur. Ratarðu ekkert hérna?” „Lítið. Ég fór í líkamsrækt hérna niðurfrá fyrir nokkrum árum.” „Það er óvitlaust. Betra fyrir skrokkinn en að húka samanhnipraður í senditíkinni.” „Sagðistu ekki vera iðnaðarmaður?” „Sagði ég það? En þetta er nú það sem ég geri, keyri út á matsölustaðina.” „Það er naumast hann rignir. Erum við ekki að verða komnir?” „Það er bjartara framundan, það eru næstu dyr.” Þetta var ein af þessum endlausu blokkum í Breiðholt- inu. En þegar upp var komið var bara sæmilega huggu- legt og útsýn yfir Esjuna og norðurum. „Það er hryllingsmynd í vídeóinu, ef þú hefur áhuga.” „Ég hefði ekkert á móti því, ég er sjúkur í blóðsugur. Afsakaðu.” „Þó ekki nema. Það er efsti takkinn. Venjulegt tæki. Einsog ég.” „Það var kannski þess vegna sem ég lét ekki sem ég sæi þig ekki í sjoppunni... af því þú ert svo venjulegur.” „Áttu við að þér finnist það spennandi? Skil ekki 15

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.