Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Blaðsíða 17
Hefur þú áhuga á að vera með í
hópi fyrir foreldra homma og lesbía?
Kæru foreldrar homma og lesbia!
Undirritaðan langar til að koma á
framfæri hugmynd um að setja á
stofn hóp foreldra homma og les-
bía. Sjálfur er ég að vísu ekki for-
eldri, heldur sonur.
Foreldrahóparnir eru ekki nýir af
nálinni þó að ekki hafi slíkum hópi
verið komið á laggirnar hérlendis
fyrr. Fyrsti hópurinn kom saman í
New York árið 1972. Síðan þá hefur
hver hópurinn á fætur öðrum farið
af stað og hugmyndin rótfest í Evr-
ópu.
Markmið slíkra foreldrahópa er
að gera foreldra homma og lesbía
meðvitaða um stöðu sína. Starfsem-
in miðast við að snúa sektarkennd
foreldra gagnvart samkynhneigðum
börnum sínum upp í stolt og kenna
þeim að meta sjálfa sig sem uppal-
endur. í hópnum eru upplifanir for-
eldra ræddar og þeir miðla hver
öðrum af reynslu sinni sem foreldr-
ar homma og lesbía. Eitt af því mik-
ilvægasta í þessu sambandi er að
fólk hittist og finni að margir aðrir
foreldrar eru í sömu aðstöðu. Við
það grynnkar á sektartilfinningunni
og skömmin hverfur. Með fræðslu
er eytt þeirri bábilju að foreldrun-
um hafi misheppnast uppeldið.
í sumum tilvikum hafa foreldrar
gengið fram fyrir skjöldu og stutt
opið við bakið á börnum sínum eft-
ir þátttöku í slíkum hópi. Þetta er
þó alls ekki höfuðmarkmiðið held-
ur hitt að hjálpa foreldrum til að
sætta sig við stöðu sína og bæta
tengsl barna óg foreldra. Oftast
hafa foreldrar sjálfir haft frum-
kvæðið að stofnun hópanna. Það er
þó ekkert skilyrði, og við, börn for-
eldra okkar, getum alveg eins tekið
frumkvæðið.
Við verðum að sníða okkur stakk
eftir vexti í væntanlegum hópi okk-
ar. Ekki er hægt að setja markið of
hátt i byrjun en leyfa hópnum held-
ur að þróast ef áhugi verður fyrir
hendi. Stofnfélagar þyrftu ekki að
vera fleiri en 2 — 3 foreldrar. Heim-
ili undirritaðs stendur opið fyrir
fyrsta fundinn þar sem ákveðins
trúnaðar og trausts verður að gæta í
upphafi. Síðar gætum við haft
fundi í húsnæði Samtakanna ’78.
Þeim sem vilja kynna sér nánar
starfsemi slíkra hópa vil ég benda á
bandaríska bók sem út kom árið
1979 og heitir á frummálinu ,,Now
that you know“, eftir B.Fairchild
og N.Hayward. Einnig er hægt að
fá bókina á norsku en á því máli
heitir hún, ,,Ná som dere vet det“
(Universitetsforlaget 1983).
Að lokum vil ég hvetja foreldra
sjálfa og homma/lesbíur fyrir hönd
foreldra sinna að hafa samband við
mig til að við getum hrundið hug-
myndinni í framkvæmd. Hafið
samband við mig í gegnum síma eða
pósthólf Samtakanna ’78.
Einar Þorleifsson
17