Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Blaðsíða 18
Norðurlandaráð lesbía
og homma þingar í
Norræna húsinu
Ráðstefnufulltrúar á Þingvöllum
Norðurlandaráð lesbía og homma
—NRH — kom saman til fundar í
Norræna húsinu í Reykjavík
16.—18. september sl. Á fundinn
voru mættir fulltrúar frá öllum
Norðurlöndunum.
Þar sem fundurinn var haldinn
hér á landi voru mál íslenskra
homma og lesbía í brennidepli. Er
óhætt að fullyrða að staða okkar er
mikið verri en frændþjóðanna og
erum við allt að tíu árum á eftir
þeim í réttindabaráttunni. En þetta
hefur vissulega sínar skýringar.
Baráttuhreyfing okkar á íslandi er
aðeins 6 ára gömul, hreyfingarnar á
hinum Norðurlöndunum eru um 30
ára gamlar. A Íslandi eru engin lög
til sem tryggja hommum og lesbíum
jafnan rétt og verndun á við aðra
hvað varðar atvinnu, húsnæði,
sambúð, skóla og opinbera
skemmtistaði. En slík lög eru víða til
eða í undirbúningi á hinum Norður-
löndunum.
Samþykkt var á fundinum álykt-
un til Alþingis og íslensku ríkis-
stjórnarinnar þar sem þess er krafist
að unnið verði að jafnréttis- og
verndunarlöggjöf hommum og
lesbíum til handa. Einnig var í
ályktuninni sett fram sú krafa að
mannréttindasamþykktir Evrópu-
ráðsins og Sameinuðu þjóðanna um
afnám misréttis gagnvart minni-
hlutahópum verði virtar.
Samtökunum ’78 er meinað að
birta auglýsingar til félagsmanna
sinna í Ríkisútvarpinu, sem er gróft
brot á tjáningar- og upplýsingar-
frelsi. Stjórn útvarpsins telur orðin
lesbía og hommi stríða gegn smekk
og almennu velsæmi og vill í stað-
inn nota orðið „kynvillingur”, sem
á sinn hátt samsvarar orðinu trúvill-
ingur, um þá sem hafna trú fjöld-
ans. Við lesbíur og hommar teljum
okkur hins vegar ekki hafa villst á
kyni og mótmælum slíku orðavali.
Fundarmenn samþykktu ályktun
til útvarpsstjóra og útvarpsráðs þar
18