Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Blaðsíða 19

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Blaðsíða 19
sem krafist er jafns réttar til auglýs- inga á við önnur félagasamtök. NRH ætlar einnig að vekja athygli á þessu máli á hinum Norðurlöndun- um. Samþykkt var að prenta póst- kort með eftirfarandi texta, stílað til útvarpsstjóra: „Með hvaða rétti kallar þú okkur kynvillinga vegna hneigðar okkar til ásta?” Getur fólk sent kort þetta til útvarpsstjóra sem mótmæli. Fræðsla í skólum um málefni lesbía og homma var meðal þeirra mála sem rædd voru á fundinum. Hérlendis eru engin ákvæði til um að taka skuli upp í skólum fræðslu um samkynhneigð. Samtökin ’78 fóru fram á það við Menntamála- ráðuneytið fyrir 3 árum að úr þessu yrði bætt, en þessari beiðni hefur enn ekki verið sinnt. Málefni okkar hefur því ekki borið á góma í kennslu, að undanskildum kynning- arfundum skólahóps Samtakanna, sem farið hefur víða í boði nem- endafélaga skólanna. Hjá frændþjóðum okkar er allt annað uppi á teningnum hvað þetta varðar. Hagsmunasamtök homma og lesbía taka þar virkan þátt í kennslu og gefa jafnvel sjálf út bækur og bæklinga og hafa sam- vinnu við yfirvöld um útgáfu á kennsluefni. í fræðslulögum eru þar skýr ákvæði um fræðslu um samkynhneigð. Ýmis önnur smærri mál bar á góma á fundinum, svo sem: sam- vinna á sviði bókmennta, hommar, lesbíur og fjölmiðlar, árið 1984 sem IGA — Alþjóðasamtök lesbía og homma — hafa lýst sem alþjóðlegu baráttuári okkar. — Einnig var rætt um mál lesbía og stöðu þeirra innan NRH. Þær telja sig afskiptar innan ráðsins, mál þeirra ber lítið á góma og fáar hafa mætt á fundi til þessa. Rætt var um hvernig bæta mætti úr þessu og komu fram eftirfarandi uppástungur: Að tekin yrði upp kvótaskipting milli kynjanna og að minnsta kosti eitt mál er sérstaklega snerti lesbiur yrði á dagskrá á hverj- um fundi. Næsti fundur ráðsins verður sið- an haldinn í Stokkhólmi í haust. En hvaða þýðingu hefur þessi fundur haft fyrir okkur, félagana úr Samtökunum’78 sem sátum fund- inn sem og alla íslenska homma og lesbíur? Að taka þátt í svona fundi og hitta, ræða við, skiptast á skoðun- um, sækja reynslu, kraft og upp- örvun til hinna baráttuglöðu félaga okkar á Norðurlöndum er lær- dómsrik og skemmtileg reynsla sem seint gleymist. Að hitta þetta fólk veitir manni styrk og bjartsýni til að berjast áfram fyrir málefnum homma og lesbía á íslandi, og vit- undina um að við munum sigra að lokum. Ekki þýðir að gefast upp því þá nást engar úrbætur, aðrir munu ekki berjast fyrir okkur. Sl. misseri hefur skapast mikil umræða um mál okkar homma og lesbia hérlendis, bæði neikvæð og jákvæð. Umræðan hefur vakið marga til umhugsunar um okkar mál, tilvist okkar og það misrétti sem við erum beitt. Hugsandi fólk hefur ekki komist hjá því að taka afstöðu til okkar og æ fleiri vakna til skilnings á kröfu okkar um jafnan rétt á við aðra i því þjóð- félagi lýðræðisins sem við státum okkur svo mjög af. Og umræðunni er ekki lokið. Að lokum vil ég hvetja alla homma og lesbíur sem enn hafa ekki komið úr felum að gera nú upp sín mál. Þetta er engum ómögulegt og saman erum við ómótstæðileg. Ólafur Guðrún frá Noregi kannar aðstæður lesbía í Hveragerði 19

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.