Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Page 20
1. Morgunblaðið flutti þá frétt 18. april 1983, að senni-
lega væri upprunastaður áunninnar ónæmisbæklunar
fundinn. Hann kvað vera:
□ í svínastíu á Haíti.
□ í veiðihúsi við Grímsá.
□ í dollaraverslun í Varsjá.
2. Hjúkrunarskólinn og ráðuneytisstjóri Menntamála-
ráðuneytisins ollu undrun lesenda Helgarpóstsins 16.
júní 1983. Það var vegna ákvörðunar um:
□ Að framvegis yrðu nemendur einungis teknir inn í
skólann úr röðum lesbía og homma, svo að frátafir
í námi vegna barnsburðar myndu minnka um 30%.
□ Að banna fund nemenda með skólahóp Samtak-
anna ’78.
□ Að sleppa hjúkrunarnemum við blaðsíðu 82 í
heilsufræðinni.
3. í fréttahrinu um áunnina ónæmisbæklun í útvarpinu
27. ágúst 1983, nefndi fréttamaður ráð er mættu duga
til þess að „halda landinu hreinu“:
□ Afturhvarf til fornra lífshátta, að því viðbættu að
í baðstofu, göngum og útihúsum yrði lokað sjón-
varpseftirlitskerfi.
□ Brottvísun homma til Kaupmannahafnar og sér-
stök rækt lögð við hreinan landsbyggðarstofn.
□ Ferðabann á homma og herinn burt.
4. í þingræðu, sem prentuð var í Þjóðviljanum 2. des-
ember 1981, lýsti Guðmundur J. Guðmundsson á-
hyggjum sínum af því, að sjálfsvirðingu fanga á Litla-
Hrauni væri hætt, sökum þess að:
□ Þeir sofa stundum saman.
□ Á meðan þeim er haldið inni komast þeir ekki hjá
því að minnast lögbrotanna.
□ Flóttavarnir eru hégómi einber miðað við það sem
tíðkast í alvörufangelsum í öðrum löndum.
20