Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 21

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 21
5. í viðtali við Tímann 5. ágúst 1983, sagðist skemmti- staðareigandi nokkur ekki hleypa hommum inn, því að: □ Nú væri konan búin að gefa sér glóðarauga sex sinnum og hann yrði að fara að hitta þá annars staðar. □ Heilþrigðisástandið á staðnum leyfði það ekki. □ Þeir dönsuðu of mikið og drykkju of lítið. 6. Orðanefnd Kennaraháskóla íslands hefur samið nýtt orð í merkingunni ,,öfugur“ um homma, svo sem fram kemur í grein Helga Hálfdanarsonar í Morgun- blaðinu 16. nóvember 1983. Það er orðið: □ Kynkringur. □ Kynhvolfur. □ Kynhverfur. 7. Guðmundur Þorvarðarson skrifar lesendabréf í DV 10. febrúar 1984 og: □ Kvartar yfir léttúð Norðmanna. □ Minnir á að kveikja nógu snemma á norska sjón- varpinu þegar skíðaþættirnir eru. □ Býður Alþert Guðmundssyni, kjósi hann að gerast hundpólitískur flóttamaður, að deila kjörum með kynferðispólitískum flóttamönnum frá íslandi. Svörin við ofangreindum spurningum er að finna í úr- klippusafni félagsins. Takið þátt í að nota safnið og hjálpið við að auka það og halda því við. Rekistu einhvers staðar á eitthvað, sem þú teldir koma til greina að ætti heima í úrklippusafninu, haltu því þá til haga. Við höfum íslenskt úrklippusafn, sem ætti með mikilli vinnu að geta orðið fullkomið, og safn erlendra úrklippa, sem getur aldrei orðið fullkomið eðli málsins samkvæmt. Viljirðu ekki eða getirðu ekki klippt út úr blaði eða bók, kæmi ljósrit að sömu notum. 21

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.