Samtökin '78 - Úr felum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Qupperneq 22

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Qupperneq 22
 'kIk ’ Í\1 ; ' * i IffMK I > apjL; n MfflmÉmS m . i HlP m M Sf ■M Þegar hommar stofna leikhús Saga danska hommaleikhópsins „Den lette ende” í Kaup- mannahöfn er merkilegur vitnisburður um það hvernig homm- ar geta nálgast hver annan í skapandi starfi. Fréttasnápur blaðsins hitti einn af stofnendunum, leikarann og leikstjórann Gunnar Rose, í Kaupmannahöfn í ágúst síðastliðnum og hann reyndist fús til að segja frá reynslu sinni. Fyrst var hann spurður hvernig hugmyndin að leikhópnum hefði upphaflega orðið til. — Það var fyrir einum fjórum árum. Ég var þá kennari við Leik- listarskóla ríkisins hér í Kaup- mannahöfn. Einn af nemendum mínum, Bent Jacobsen, sagðist hafa frétt af nokkrum karlmönnum sem langaði til að stofna leikhóp. Við vorum svo 5 sem hittumst, þar af 3 menntaðir leikarar eða leikhús- menn. Nú, þarna stofnuðum við basisgrúppu eða umræðuhóp og hittumst tvisvar í viku í heilt ár, við reyndum að ræða persónulega og opinskátt um líf okkar og tilfinn- ingar og æfðum okkur í að impróví- sera eða spinna upp leikræn atriði út frá umræðuefnunum. Við vorum samt fljótir að átta okkur á þvi að í staðinn fyrir að tala bara saman yrðum við strax að reyna að skapa eitthvað, leggja eitthvað af mörkum. Við vildum nota reynslu okkar sjálfra til að sýna hommum að þeir ættu sér sameiginlega reynslu og menningu. Við þær aðstæður sem nú ríkja tel ég starf okkar mikilvægt, en hvort það verður nauðsynlegt um alla eilífð að reka sérstakt homma- leikhús, veit ég ekki. En svo lengi sem við erum utangarðsmenn í þessu samfélagi og kúgaðir á alla lund þá er nauðsynlegt að leita allra leiða til að tjá menningu okkar og halda fast i sögu okkar svo hún gufi ekki út í loftið og gleymist. Þvi hún gleymist ef enginn er til að festa hana á blað, setja hana á svið, mála hana á léreft eða syngja um hana. Ég finn svo sárt til þess í leikstarf- inu hvað við höfum lítinn grundvöll til að byggja á. Þegar maður ætlar sér að vinna úr reynslu sinni sem hommi á listrænan hátt þá þarf alltaf að byrja frá grunni. Og það er auðvitað vegna þess að við reynum svo sjaldan að tjá reynslu okkar og við höfum svo fáa vitnisburði um sögu og menningu homma til að styðjast við. 22

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.