Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 24

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 24
við í fyrsta skipti fengið leikstjóra að sýningum okkar og það er mikill léttir. Hingað til höfum við orðið að leikstýra hver öðrum. Hvað geturðu sagt mér um stöðu ykkar innan hommaheimsins? Við vitum báðir að hommar eru sundur- leitur hópur. Hvaða stuðning hafið þið t.d. fengið frá dönsku Samtök- unum? — Tvær fyrstu sýningarnar sýnd- um við í húsi Samtakanna í Kna- brostræde í Kaupmannahöfn. Þær hlutu dúndrandi aðsókn og við færðum veitingasölunni ómældar tekjur í kassann með öllum þeim gestum sem komu og sáu sýningarn- ar. Svo gáfum við ágóðann af fyrstu sýningu okkar til Samtak- anna með þeim orðum að hann ætti að vera til að styrkja pólitískt og menningarlegt starf. En það rann beint í diskótekið sem rekið var með bullandi tapi um þetta leyti. Yfir- leitt má segja að við höfum mætt lítilsvirðingu á þeim bænum. Blað Samtakanna PAN hefur t.d. aldrei birt frumsamda gagnrýni eða um- sögn um sýningar okkar. Einu sinni var ég spurður af þeim sem stóðu að skemmtunum innan Samtakanna hvort ég gæti ekki út- vegað skemmtikrafta sem vildu koma fram í PAN diskótekinu. Þeir höfðu áhuga á að fá einhverja vin- sæla heteróskemmtikrafta á borð við Jesper Klein og Co. (e.k. Hallar og Laddar þeirra Dana). Þá benti ég þeim á hommakórinn sem vakti mikla athygli um þetta leyti en fékk það svar að hann væri of skemmtilegur! Aulaleg afsökun. Sannleikurinn er sá að kórinn er of pólitískur og of ögrandi fyrir smekk þeirra sem þar sitja og ákveða hvað sé góð og vond skemmtun fyrir homma. Leiksýning aldarinnar Nú fékk „Bossemyter” frábæra dóma og var kölluð „leiksýning aldarinnar” í dönsku dagblaði á sínum tíma. Nú finnst mér svona gífuryrði kannski svolítið hæpin en... — Nei, finnst þér það. Mundu að aðrar eins stjörnur og við erum... ...hérna, ég var nú að hugsa um að kannski hafið þið sagt eitthvað þýðingarmikið þó svo að þið hafið ekki verið með sýningu aldarinnar. — Ekki það? Guð, mér fannst þetta allt svo rétt og satt. En þessi orð sem þú vitnaðir til að segja eitt- vitað sitthvað um þarfir þeirra sem skrifuðu gagnrýnina og þá um danskt leikhús í dag: Óviðkomandi, heldur leiðinlegt og fullt af endur- tekningu. Svo standa allt í einu fimm menn á sviðinu sem liggur eitthvað á hjarta, frá fyrstu mínútu til þeirra siðustu. Og þess vegna stöndum við á sviðinu. Svona skil- greinum við leikhús sem á að standa undir nafni: Lifandi leikhús, leik- hús alls almennings, leikhús sem snertir menn. Og það verður það aðeins ef leikarinn er þar af sannri þörf en ekki vegna þess að honum var fengið eitthvert hlutverk í hendur af leikhússtjórninni. Ég fékk þessa trú mína staðfesta þegar við sýndum „Pas pá boss- erne” á leiklistarhátíð þar sem sýndar voru barna- og unglingasýn- ingar. Eftir sýninguna kom til okk- ar fólk sem sagðist hafa verið að gleyma hvað lifandi leikhús væri, leikhús sem talaði við börn og ungl- inga af sannri þörf. Nú hefði það áttað sig við að sjá sýningu eins og okkar hverju það væri að gleyma.

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.