Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 27

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 27
hálari og sleppir mér ekki fyrr en í fulla hnefana. Þessar sögur eru eineggja tvíburar og koma hér hvor á fætur annarri: Ég er átta ára. Ég ligg á stofugólfinu heima með púða undir höfðinu og horfi á sjónvarpið. í sófa á bak við mig sitja foreldrar mínir, stjörf einsog styttur og stara á sjón- varpið. Loftið í stofunni er mengað sígarettureyk föður míns. Sjónvarpið lýsir upp stofuna. Birtan er blá og loft- ið umhverfis mig skelfur. Stofan er beint framhald af sjónvarpstækinu. Þegar slökkt verður á tækinu hverfur stofan! Ég gýt skelfdur augunum til foreldra minna. Grunlaus andlit þeirra eru gráblá og augun óvenju stór. Á skerminum er amerísk bíómynd frá 1954. Hann er að fara í striðið og þau standa í faðmlögum á brautarpallin- um. Lestin flautar til brottfarar inní stríðið. Hann kyssir hana, grípur pokann sinn og stekkur uppí lestina. Innan skamms birtist hann í einum lestarglugganum. Hún hleypur að glugganum og hann teygir sig niður til hennar og þau faðmast og kyssast og skiptast á nokkrum orðum. Lestin tekur af stað. Þau haldast í hendur og hún hleypur með lestinni eftir brautarpallinum. Lestin eykur hraðann og handtak þeirra slitnar. Með tárin i augunum kallar hún: ,,Tom I will always love you! Always!“ Hann veif- ar og hrópar eitthvað á móti, en orð hans hverfa í hávað- ann af lestinni. Hún stendur ein eftir á enda brautarpalls- ins útgrátin og horfir tómum augum eftir lestinni. Mér leiðist! Þetta átti nú einusinni að vera striðsmynd og nú eru búnar heilar fimm mínútur af myndinni og enn eru allir leikararnir á lífi. Þetta er svindl! Ég loka augun- um í mótmælaskyni. Ég sé í huga mér skilnaðarstund okkar Donnu. Ég flissa. Donna er nefnilega feit átta ára stelpa í næsta húsi sem ég tók einusinni í læknisskoðun svo hún héldi nú örugglega heilsu. Ég er að fara í stríðið. Við Donna stöndum á strætis- vagnastoppustöð í götunni okkar. Ég er í grænum her- mannagalla, með Camelsígarettu í hægra munnvikinu og hárið greitt aftur með vatni. Ég er með Robin Hood bogann minn og örvatöskuna á bakinu og Lone Ranger byssurnar í byssubeltinu. Ég er líka með snjáðan brúnan bréfpoka fullan af rokeldspýtum sem ég hef límt startskot við með límbandi: þetta eru handsprengjurnar mínar. Við hlið mér liggur grænn sjómannapoki sem geymir rós- óttu sængurfötin mín og tannburstann minn og Signal kremið. Donna er bústin átta ára kona, í síðum kjól einsog konan í myndinni. En þarsem sjónvarpið er svart- hvítt imynda ég mér kjólinn hennar bara appelsínugulan. Og höfuð mitt fyllist af litum: Hún er með grænt sjálflýs- andi hár, gular augabrúnir og svartar varir. Hún horfir á mig sínum döpru grænu augum og drepur tittlinga af ást. Strætisvagninn kemur eftir götunni: leið 1 Njálsgata Gunnarsbraut. Ég faðma Donnu að mér. Hún grætur. Ég tek báðum höndum um axlir Donnu og stari beint í útgrátin augu hennar og segi: „Donna mín. Hættu nú að gráta. Ég kem aftur!“ Það lekur smá hor úr nefi Donnu. ,,Farðu nú heim og snýttu þér Donna mín.“ Strætisvagninn rennir uppað stöðinni. Ég kyssi Donnu á kinnina, gríp pokann minn og stekk uppí vagninn. Með tárin í augunum kallar Donna til mín: ,,Ég mun alltaf elska þig! Alltaf!“ ,,Ég líka! “ hrópa ég úr dyrum vagnsins. Vagninn brunar af stað. Ég hleyp aftast í vagninn og vinka Donnu þarsem hún stendur ein á stoppustöðinni og veifar svörtum vasaklút og grætur bláum tárum. Skyndilega gellur í sjónvarpinu eftir byssuskot, hug- sýnir mínar fuðra upp, augu mín opnast og athygli mín læsist aftur um sjónvarpsskerminn. Loksins byrjar myndin! Lengi sat þessi uppdiktaða skilnaðarstund hug minn og lengi var ég sannfærður um að mín fyrsta skilnaðar- stund yrði eitthvað í þessa áttina. En kvikmyndir eru bara kvikmyndir og veruleikinn fer sínar eigin leiðir og tekur ekkert mið af kvikmyndum eða skáldsögum eða leikritum, og það fann ég þegar fyrsta skilnaðarstund min rann upp: Nei, ég er ekki að fara í stríð og ekki er ég staddur á strætisvagnastoppustöð og því síður á járnbrautarpalli. Og hvorki er ég með Camelsígarettu í hægra munnvikinu né er hár mitt greitt aftur með vatni. Og ég er ekki einu- sinni vopnaður! Og engin lítil bústin Donna í appelsínu- gulum kjól með grænt sjálflýsandi hár, gular augabrýr og svartar varir faðmar mig að sér og grætur bláum tár- um. Og enginn svartur vasaklútur blaktir í grannri hendi... ...ég er einfaldlega hversdagslegur 17 ára skólastrákur sem veit hvorki í þennan heim né annan og hef nýlokið fyrsta ári í menntaskóla. Þennan dag hefur sólin fært okkur sumarið og kennararnir einkunnabækurnar. Ég stend á einum ganginum í skólanum með einkunnabók- ina vafða í sívalning í svitahreistruðum lófunum og ræði við kunningjana og hann stendur í öðrum hóp fáeinum metrum frá með einkunnabókina vafða í sívalning í lóf- unum. Við gjótum öðruhverju augum hvor til annars og reynum að... já ég gýt augunum til þin í hinum hópnum og vonleysið og örvæntingin og reiðin og vonin skip'tast á að búa til hugsanir mínar: ,,Sjá þig kannski ekki í fjóra mánuði!“ ,,Hvar ætlir þú vinnir í sumar?“ ,,Ef við lendum nú ekki í sama bekk á næsta skólaári!“ ,,Hvað á þetta að ganga lengi? í allan vetur höfum við horfst í augu og ætlað að... hvað er eiginlega að þessu? Helvítis pakk alltsaman!“ „Kannski þú lendir í sömu vinnu og ég í sumar!“ „Helvíti, ég bara tek af skarið og geng til þín á eftir þegar þú ert einn og enginn að tala við þig og...“ „Fjórir mánuðir! Ég meika það aldrei!“ Og ég stend á ganginum og þú stendur á ganginum og við horfumst bara öðruhverju í augu vegna þess að það sýnist eina leiðin. Og ég horfi á þig og ég þekki þig og ég vil þig. Og hár þitt hrynur fyrir augun og hendur þínar eru læstar um einkunnabókina sem er sívalningur. Og þú gýtur augunum til mín. Og þú horfir á mig og þú þekkir mig og þú vilt mig. Og kunningi þinn kallar: „Ertu ekki að koma maður!“ Og þú gengur af stað og ég geng af stað og við göngum á móti hvor öðrum og við göngum hvor á móti öðrum og við göngum á móti hvor öðrum og við göngum framhjá hvor öðrum kærulausir hvor um annan á ytra borði einsog tveir ókunnugir menn sem ganga hvor framhjá öðrum á götu! Þetta er dagurinn þegar þú að hálfu gengur burt og að hálfu dýpra inní mig en nokkrusinni. 27

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.