Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 27
hálari og sleppir mér ekki fyrr en í fulla hnefana.
Þessar sögur eru eineggja tvíburar og koma hér hvor á
fætur annarri:
Ég er átta ára. Ég ligg á stofugólfinu heima með púða
undir höfðinu og horfi á sjónvarpið. í sófa á bak við mig
sitja foreldrar mínir, stjörf einsog styttur og stara á sjón-
varpið. Loftið í stofunni er mengað sígarettureyk föður
míns. Sjónvarpið lýsir upp stofuna. Birtan er blá og loft-
ið umhverfis mig skelfur. Stofan er beint framhald af
sjónvarpstækinu. Þegar slökkt verður á tækinu hverfur
stofan! Ég gýt skelfdur augunum til foreldra minna.
Grunlaus andlit þeirra eru gráblá og augun óvenju stór.
Á skerminum er amerísk bíómynd frá 1954. Hann er að
fara í striðið og þau standa í faðmlögum á brautarpallin-
um. Lestin flautar til brottfarar inní stríðið. Hann kyssir
hana, grípur pokann sinn og stekkur uppí lestina. Innan
skamms birtist hann í einum lestarglugganum. Hún
hleypur að glugganum og hann teygir sig niður til hennar
og þau faðmast og kyssast og skiptast á nokkrum orðum.
Lestin tekur af stað. Þau haldast í hendur og hún hleypur
með lestinni eftir brautarpallinum. Lestin eykur hraðann
og handtak þeirra slitnar. Með tárin i augunum kallar
hún: ,,Tom I will always love you! Always!“ Hann veif-
ar og hrópar eitthvað á móti, en orð hans hverfa í hávað-
ann af lestinni. Hún stendur ein eftir á enda brautarpalls-
ins útgrátin og horfir tómum augum eftir lestinni.
Mér leiðist! Þetta átti nú einusinni að vera striðsmynd
og nú eru búnar heilar fimm mínútur af myndinni og enn
eru allir leikararnir á lífi. Þetta er svindl! Ég loka augun-
um í mótmælaskyni.
Ég sé í huga mér skilnaðarstund okkar Donnu. Ég
flissa. Donna er nefnilega feit átta ára stelpa í næsta húsi
sem ég tók einusinni í læknisskoðun svo hún héldi nú
örugglega heilsu.
Ég er að fara í stríðið. Við Donna stöndum á strætis-
vagnastoppustöð í götunni okkar. Ég er í grænum her-
mannagalla, með Camelsígarettu í hægra munnvikinu og
hárið greitt aftur með vatni. Ég er með Robin Hood
bogann minn og örvatöskuna á bakinu og Lone Ranger
byssurnar í byssubeltinu. Ég er líka með snjáðan brúnan
bréfpoka fullan af rokeldspýtum sem ég hef límt startskot
við með límbandi: þetta eru handsprengjurnar mínar.
Við hlið mér liggur grænn sjómannapoki sem geymir rós-
óttu sængurfötin mín og tannburstann minn og Signal
kremið. Donna er bústin átta ára kona, í síðum kjól
einsog konan í myndinni. En þarsem sjónvarpið er svart-
hvítt imynda ég mér kjólinn hennar bara appelsínugulan.
Og höfuð mitt fyllist af litum: Hún er með grænt sjálflýs-
andi hár, gular augabrúnir og svartar varir. Hún horfir á
mig sínum döpru grænu augum og drepur tittlinga af ást.
Strætisvagninn kemur eftir götunni: leið 1 Njálsgata
Gunnarsbraut. Ég faðma Donnu að mér. Hún grætur.
Ég tek báðum höndum um axlir Donnu og stari beint í
útgrátin augu hennar og segi: „Donna mín. Hættu nú að
gráta. Ég kem aftur!“ Það lekur smá hor úr nefi Donnu.
,,Farðu nú heim og snýttu þér Donna mín.“
Strætisvagninn rennir uppað stöðinni. Ég kyssi Donnu
á kinnina, gríp pokann minn og stekk uppí vagninn. Með
tárin í augunum kallar Donna til mín: ,,Ég mun alltaf
elska þig! Alltaf!“
,,Ég líka! “ hrópa ég úr dyrum vagnsins.
Vagninn brunar af stað. Ég hleyp aftast í vagninn og
vinka Donnu þarsem hún stendur ein á stoppustöðinni og
veifar svörtum vasaklút og grætur bláum tárum.
Skyndilega gellur í sjónvarpinu eftir byssuskot, hug-
sýnir mínar fuðra upp, augu mín opnast og athygli mín
læsist aftur um sjónvarpsskerminn. Loksins byrjar
myndin!
Lengi sat þessi uppdiktaða skilnaðarstund hug minn
og lengi var ég sannfærður um að mín fyrsta skilnaðar-
stund yrði eitthvað í þessa áttina. En kvikmyndir eru
bara kvikmyndir og veruleikinn fer sínar eigin leiðir og
tekur ekkert mið af kvikmyndum eða skáldsögum eða
leikritum, og það fann ég þegar fyrsta skilnaðarstund
min rann upp:
Nei, ég er ekki að fara í stríð og ekki er ég staddur á
strætisvagnastoppustöð og því síður á járnbrautarpalli.
Og hvorki er ég með Camelsígarettu í hægra munnvikinu
né er hár mitt greitt aftur með vatni. Og ég er ekki einu-
sinni vopnaður! Og engin lítil bústin Donna í appelsínu-
gulum kjól með grænt sjálflýsandi hár, gular augabrýr
og svartar varir faðmar mig að sér og grætur bláum tár-
um. Og enginn svartur vasaklútur blaktir í grannri hendi...
...ég er einfaldlega hversdagslegur 17 ára skólastrákur
sem veit hvorki í þennan heim né annan og hef nýlokið
fyrsta ári í menntaskóla. Þennan dag hefur sólin fært
okkur sumarið og kennararnir einkunnabækurnar. Ég
stend á einum ganginum í skólanum með einkunnabók-
ina vafða í sívalning í svitahreistruðum lófunum og ræði
við kunningjana og hann stendur í öðrum hóp fáeinum
metrum frá með einkunnabókina vafða í sívalning í lóf-
unum. Við gjótum öðruhverju augum hvor til annars og
reynum að... já ég gýt augunum til þin í hinum hópnum
og vonleysið og örvæntingin og reiðin og vonin skip'tast á
að búa til hugsanir mínar: ,,Sjá þig kannski ekki í fjóra
mánuði!“ ,,Hvar ætlir þú vinnir í sumar?“ ,,Ef við
lendum nú ekki í sama bekk á næsta skólaári!“ ,,Hvað á
þetta að ganga lengi? í allan vetur höfum við horfst í
augu og ætlað að... hvað er eiginlega að þessu? Helvítis
pakk alltsaman!“ „Kannski þú lendir í sömu vinnu og ég
í sumar!“ „Helvíti, ég bara tek af skarið og geng til þín á
eftir þegar þú ert einn og enginn að tala við þig og...“
„Fjórir mánuðir! Ég meika það aldrei!“
Og ég stend á ganginum og þú stendur á ganginum og
við horfumst bara öðruhverju í augu vegna þess að það
sýnist eina leiðin. Og ég horfi á þig og ég þekki þig og ég
vil þig. Og hár þitt hrynur fyrir augun og hendur þínar
eru læstar um einkunnabókina sem er sívalningur. Og þú
gýtur augunum til mín. Og þú horfir á mig og þú þekkir
mig og þú vilt mig. Og kunningi þinn kallar: „Ertu ekki
að koma maður!“ Og þú gengur af stað og ég geng af
stað og við göngum á móti hvor öðrum og við göngum
hvor á móti öðrum og við göngum á móti hvor
öðrum og við göngum framhjá hvor öðrum
kærulausir hvor um annan á ytra borði
einsog tveir ókunnugir menn
sem ganga hvor
framhjá öðrum
á götu!
Þetta er dagurinn
þegar þú að hálfu gengur burt
og að hálfu dýpra inní mig en nokkrusinni.
27