Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 29

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 29
sins, en skrifstofustúlkur DV báru það fyrir sig að einhver „samning- ur” væri á milli þeirra á DV og strákanna um að orðin lesbía og hommi megi ekki birtast i smáuglýs- ingum en lagi sé með stærri auglýs- ingar! Auðvitað er allt tal um samning bara fyrirsláttur. Auglýs- ingar frá okkur eru bara gjald- gengar svo lengi sem hægt er að græða verulega á þeim. Það var nú svolítill kvíði í okkur fyrir kvöldið eins og gefur að skilja en Ketill hug- hreysti okkur eftir bestu getu. Árangurinn? — Hann verður bara að teljast góður, þarna mættu einar 14 stelpur með okkur 5. Þar á meðal voru nokkur ný andlit sem gaman var að sjá og vonumst við til að þær láti sjá sig í framtíðinni hérna hjá okkur á opnu húsi. Einnig mættu þarna stelpur sem við vitum af og hafa stundum látið sjá sig á opnu húsi enda vonumst við líka eftir því að þær komi og ljái okkur lið í bar- áttunni. ÞEtta kvöld var eins og venjulegt kvöld á opnu húsi Sam- takanna, nema hvað hér voru bara konur, ekkert fast prógram til að andrúmsloftið yrði ekki of þvingað. Veitingar til taks ef annað brygðist, en allt gekk vel. Viljið þið segja eitthvað að lokum? — Við vonumst til þess að allar þær sem ekki hafa þorað að mæta umrætt laugardagskvöld láti nú samt sem áður verða af því að koma til okkar á opið hús (sem auglýst er annars staðar hér í blaðinu). Og við vonumst til að sjá þær aftur sem þarna komu í fyrsta skipti. Við söknum líka mikið þeirra sem eru opinberar lesbíur, því þær hafa varla látið sjá sig hér, og við hvetj- um þær hér með til að láta sjá sig og sýna meiri samstarfsvilja. Við von- umst eftir samstarfi allra þeirra sem eru tilbúnar að leggja hönd á plóg- inn til þess að gera félagið að Félagi homma og lesbía en ekki bara homma. Við viljum einnig þakka þeim sem hjálpuðu okkur, þó sérstaklega Katli, Þorvaldi og uppvöskurunum. Munum að sameinaðar stöndum við, sundraðar föllum við. H.G. Vina mín Eins og Afródíta hin gríska gengurðu um, feimna vina, og umvefur mig mýkt og hlýju. Eins og þyrstur ferðalangur lauga ég mig í lind þinni teyga til botns þínar gullnu veigar. Eins og gult og rautt sameinumst við í sólarlagsunaði umvefjumst mýkt og hlýju og hvílum í undraheimi trúnaðarins. Elísabet Þorgeirsdóttir 22. 10. 1976 29

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.