Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 32

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Síða 32
„Opið hús” í lok júlímánaðar síðastliðið sumar opnuðu Samtökin ’78 félagsmiðstöð — Opið hús — að Skólavörðustíg 12. Starfs- hópur félaga úr samtökunum hafði þá unnið um nokkurt skeið við að koma húsnæðinu í stand og innrétta það. Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og Opna húsið fengið sinn ákveðna svip. Við í blaðhópnum ákváðum nú eftir rúmlega hálfs árs starf að kynna okkur hvernig starfsemin hefði gengið og hvaða þýðingu Opna húsið hefði meðal lesbía og homma. Eitt þriðjudagskvöld í janúar tölti ég niður á Skólavörðustíg en fáir voru mættir enda klukkan rétt rúmlega átta. Ég sneri mér því fyrst að húsráðanda til að pumpa hana en þetta kvöld sat þessi líka fallega stelpa við afgreiðsluborðið. Hvað er opið oft hér í viku? — Það er opið þrisvar sinnum, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 20-23 og laugardaga frá kl. 16-19. Hvernig er svo aðsóknin? — Á þriðjudögum og laugardög- um er hún ákaflega misjöfn og virðist það fara mest eftir veðri. En á fimmtudögum er áberandi góð aðsókn og svo virðist sem fólk hittist hér til að spjalla og bregði sér síðan á skemmtistaði. Eru hommarnir ekki í meirihluta hér? — Jólahvað! Við konurnar höfum tekið okkur saman í andlit- inu og mætt hér vel. Það sést best á því að „sumir” hafa kvartað yfir því að við værum að yfirtaka stað- inn. En annars er þetta allt í mesta „bróðerni” hjáokkur. í þessu birtast tvær ungar stúlkur í dyrunum. Ég vind mér að þeim með kaffibollann í annarri hendi og skriffærin í hinni og spyr hvort þær komi oft hingað. — Já, eins oft og við getum. Og hvað dundið þið ykkur við? — Við kjöftum saman yfir kaffi- bolla eða kókglasi, teflum saman, sýnum okkur og sjáum aðrar. Það er ákaflega þægilegt að hittast hér, músíkin „mátulega” stillt og gott að ræða um hvað sem er. Finnst ykkur eitthvað mætti fara betur? — Já, við mættum gera meira af því að efna til uppákoma af ýmsu tagi, umræðu- og upplestrarkvölda, spilakvölda til að lífga upp á liðið hér. Jú, svo finnst okkur stólarnir ósköp óþægilegir. Það væri nú ekki mikið mál að bæta úr þessu með sessum, ha! Rétt í þessu birtist ungur og efnilegur piltur á staðnum. Hann virðist vera heppilegt fórnarlamb svo ég ákveð að klófesta hann og spyr hvort hann komi hér oft. — Já, ég kem hér mjög reglulega, því með Opna húsinu hafa hommar og lesbíur fengið nýjan vettvang til að hittast. Áður fyrr var ákaflega erfitt fyrir nýtt fólk í félagsstarfinu að nálgast Sam- tökin því við hittumst helst í heima- húsum og starfsaðstaðan var erfið. Mér virðist Opið hús nýtast bara vel sem e.k. stökkpallur fólks inn í félagið. Koma bara lesbíur og hommar hingað? — Nei, aldeilis ekki. Hingað koma margir aðrir vinir okkar sem vita hvar okkur er að finna á þeim dögum sem opið er. Það er upplífg- andi að hitta ólíkan hóp fólks og yfirleitt er andrúmsloftið gott hérna. Nú svo tökum við gjarnan við gestum hér sem óska eftir að kynnast starfsemi félagsins. Hvernig telur þú mikilvægast að nýta Opið hús? — Hér lærir fólk að kynnast hvert öðru og rabba við aðra homma og lesbíur á afslappaðan hátt. En það er mikilvægt að nýta Opið hús til að kynna nýju fólki félagið og benda því á þá möguleika sem það hefur til starfa í því, benda því t.d. á starfshópana sem allir geta myndað um áhugamál sín. Það fylgir því mikil vinna að halda svona félagsmiðstöð gangandi og ef starfið á að eflast þá þurfum við að verða fleiri sem sinnum skyldustörf- unum í sambandi við Opið hús. Annars er ég bara bjartsýnn á fram- tíðina. H.G. 32

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.