Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Page 34
Vandamál? Spurningar? Geðillskukast?
Svaiur leggur sig fram um að svara öllum af einlægni.
Utanáskriftin er:
Svalur, Pósthólf 4166, 124 Reykjavík. Ekki er verra að
eiga Blíðu að, hún er stoð og stytta kvenfólksins. Blíða
hefur sama pósthólf og Svalur.
Reykjavík, 5. janúar 1984
Kæri Svalur.
Ég er tvítugur strákur og hef
núna undanfarið velt töluvert vöng-
um yfir því hvert mitt raunverulega
,,eðli“ sé. Allt fram að þessu hef ég
verið skotinn í stelpum en nú bregð-
ur svo við að ég er farinn að hafa
töluverðan áhuga á kvenlegum
strákum og sá áhugi er í rauninni
meiri en áhugi minn á stelpum þótt
ég sé hrifinn af þeim líka. Hvernig
stendur á þessu? Er ég bísexúal? (Ef
svo er hef ég þá nokkurt erindi í
Samtökin ’78 til dæmis?) Eða er ég
heterósexúal maður með hómósex-
úal tilhneigingar? Eða er hægt að
skilgreina mig sem hómósexúal, og
þá til dæmis vegna þess að ég hef
sjálfur alltaf verið talinn fremur
kvenlegur (stundum þess vegna leg-
ið undir grun fyrir það að vera
hommi)?
Ég vil taka það fram að ég hef oft
orðið fyrir vonbrigðum með ýmsar
stelpur sem ég hef orðið skotinn í.
Fyrr eða síðar byrja þær oftast með
einhverjum strákum sem eru svo
karlmannlegir að mig rekur í roga-
stans yfir því að þau geti átt nokkuð
sameiginlegt. Er það vonlaust fyrir
mig, eins kvenlegur og ég er, að ná
mér í stelpu sem gæti skilið mig?
(Þrátt fyrir allt er samband við
stelpu heppilegast ef ég vil eignast
afkomendur). Og þá varðandi kyn-
lífið til dæmis, stelpu sem ætlaðist
ekki til þess að ég færi að leika eitt-
hvert karlmannshlutverk í rúminu
(eða bara yfirleitt)?
Og ef ég færi að vera með kven-
legum strák? Litirðu þá svo á að ég
væri þarna loksins búinn að verða
mér úti um manneskju sem skildi
mig fullkomlega, kynferðislega séð
eða teldirðu að þetta samband væri
eingöngu sakir vonbrigða minna
með konur og þannig flótti frá þeim
vanda? Einnig langar mig til að
spyrja þig að því hvort þú álítir rétt
fyrir mig að segja fjölskyldu minni
frá þessu. Ertu mér sammála í því
að ég ætti fyrst að verða mér úti um
traust samband við einhverja per-
sónu?
Ég vil svo að lokum þakka þér
kærlega fyrir alla þá viðleitni sem
þú kannt að sýna til þess að leysa úr
þessum sálarflækjum mínum.
Með bestu kveðjum
Vinur
34