Fréttablaðið - 03.11.2020, Síða 20

Fréttablaðið - 03.11.2020, Síða 20
Mest seldi tengil­ tvinnbíllinn í Evrópu er Mercedes­ Benz A­lína en í f lokki tvinnbíla er það Toyota Corolla sem leiðir. w w w .fr et ta bl ad id .is Umsjón blaðsins NjallGunnlaugsson njall@frettabladid.isBílar Auglýsingar: Atli Bergmann atli@frettabladid.is | Sími 550 5657 Útgáfufélag: Torg ehf. | Kalkofnsvegur 2 | 101 Reykjavík | Sími 550 5000 Ford hefur tilkynnt að skipt verði um allar rafhlöður í Ford Kuga tengil tvinnbílnum eftir að tilkynnt var um innköllun á þeim vegna hættu á bruna í rafhlöðu. Innköll- unin kom til vegna bruna í fjórum slíkum bílum í sumar sem rakinn var til framleiðslugalla í rafhlöðu. BMW notar sömu gerð rafhlöðu í sína tengiltvinnbíla og setti nýlega af stað sams konar innköllun. Ford ætlar sér að innkalla alla Ford Kuga PHEV bíla sem framleiddir hafa verið og skipta algerlega um rafhlöðuna og rafbúnað tengdan henni. Mun innköllunin hefjast í desember á þessu ári og ljúka í lok mars á næsta ári. Ford segir að enn sé óhætt að nota bílana ef þeir eru ekki hlaðnir og eigendur keyri aðeins í EV Auto- eða Normal-stillingu, en þá notar bíllinn vélina ef ekkert er á rafhlöðunni. Í samtali við Frétta- blaðið staðfesti Gísli Jón Bjarna- son, sölustjóri Ford á Íslandi, þessa niðurstöðu Ford og að skipt yrði um rafhlöðu í öllum bílunum. „Til að koma til móts við viðskipta- vini munu þeir fá bensínkort að verðmæti 80.000 kr. Við hringdum strax á föstudaginn í þá 26 við- skiptavini sem eru búnir að fá þessa bíla afhenta hjá Brimborg og upplýstum þá um stöðuna,“ sagði Gísli Jón um innköllunina hérlendis. Ford skiptir um rafhlöður í Kuga PHEV COVID-19 faraldurinn hefur haft mikil áhrif á bílasölu í Evrópu. Þegar bílasala er farin að taka við sér á ný má sjá mikla aukningu í sölu rafvæddra bíla og velta má því fyrir sér hvort faraldurinn hafi áhrif á val almennings á bílum. Samkvæmt tölum JATO Dyna- mics sem greinir sölu nýrra bíla í Evrópu, var septembermánuður sá fyrsti þar sem skráningar raf- væddra bíla tóku fram úr skrán- ingum nýrra dísilbíla. Með rafvæddum bíl er átt við raf bíla, tengiltvinnbíla og tvinnbíla. Dísil- bílar eru nú komnir niður fyrir 25% markaðshlutdeild og bensín- bílar eru með 47% en þeir voru með 59% markaðshlutdeild á sama tíma í fyrra. Hlutdeild rafvæddra bíla jókst um 25% í septembermánuði en þá voru 327.800 slík ökutæki skráð í Evrópu. Sala nýrra bíla er á uppleið aftur og eru það rafvæddir bílar sem leiða þá þróun. Alls voru 1,3 milljónir bílar skráðar í Evrópu í septembermánuði sem er 1% aukning frá sama mánuði í fyrra. Heildartölur fyrir 2020 sýna hins vegar að sala nýrra bíla er 29% minni en á fyrstu níu mánuðum síðasta árs. Það er Toyota-merkið sem leiðir í skráningum rafvæddra ökutækja en mikil aukning er hjá Volkswagen Group. Þýski risinn skráði 40.300 rafvædd ökutæki í september sem setur hann í annað sæti á eftir Toyota. Það kemur ekki á óvart að Tesla Model 3 var mest seldi raf bíllinn með 15.702 skráða en Renault Zoe var í öðru sæti. Nýliðinn Volkswagen ID.3 var svo í þriðja sæti. Mest seldi tengil- tvinnbíllinn í Evrópu er Mercedes- Benz A-lína en í f lokki tvinnbíla er það Toyota Corolla sem leiðir. Báðir seldust þó í færri eintökum en Tesla Model 3. Ísland er í öðru sæti í heiminum þegar kemur að hlutdeild tengiltvinnbíla en hlut- deild þeirra á fyrstu níu mánuðum ársins er 43% af sölu. Rafvæddir bílar seljast í fyrsta skipti betur en dísilbílar í Evrópu Toyota er mest selda rafvædda bílamerkið vegna hybrid-væðingar sinnar og Corolla er mest seldi tvinnbíllinn. Tesla Model 3 er mest seldi rafbíllinn í Evrópu með rúmlega 15.700 eintök sem af er árinu en stór hluti þeirrar tölu er vegna sölu í Noregi og Íslandi. Tesla-bílaframleiðandinn opnar í vikunni nýja ofurhleðslustöð fyrir Tesla-raf bíla í Staðarskála í Hrútafirði. Stöðin er með átta 250 kW hlöðum sem eru 70% aflmeiri en það sem algengast er hérlendis í svokölluðum hraðhleðslustöðv- um. Vert er að taka fram í því sam- bandi að önnur fyrirtæki eru að setja upp stöðvar með stuðningi Orkusjóðs sem Tesla fær ekki. Eins og fram kom í Viðskipta- blaði Morgunblaðsins í síðustu viku stefnir Tesla á að byggja upp net ofurhleðslustöðva á Íslandi og verða byggðar stöðvar sem þessar á Akureyri, Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri og nágrenni Selfoss. Að sögn Even Sandvold Roland, samskipta- stjóra Tesla fyrir Noreg og Ísland, er stefnan að setja upp net stöðva í náinni framtíð en COVID-19 faraldurinn hefur haft áhrif á þau áform eins og annað. „Við munum setja upp fjölda nýrra stöðva á Íslandi í náinni framtíð og höfum ekki rekið okkur á nein vandræði hér,“ sagði Roland í samtali við Fréttablaðið. „Ofurhleðslustöðvar eru lykilat- riði þegar kemur að vali viðskipta- vina á raf bíl. Ofurhleðslunet okkar er notendavænt, hraðvirkt og öruggt og gerir okkar not- endum kleift að geta farið þangað sem þeir vilja. Við hlökkum til að tengja f leiri stöðvar á Íslandi í náinni framtíð,“ sagði Roland einnig. Með öflugustu stöðvarnar Tesla mun hafa mikla sérstöðu þegar kemur að ferðum raf bíla landshluta á milli þegar net Tesla verður komið upp. Tesla-eigendur munu geta skipulagt ferðir út frá öflugri og hraðvirkari hleðslu á stöðvum Tesla. Mun það eflaust hafa áhrif á marga þegar kemur að val á rafmagnsbíl. Bílablað Fréttablaðsins spurði Jón Trausta Ólafsson, formann Bílgreinasambandsins og forstjóra Öskju, hvort til stæði að bílaum- boð á Íslandi svöruðu þessu útspili Tesla. Að sögn Jóns Trausta eru umboðin ekki að byggja upp sam- eiginlegt net hleðslustöðva. Mörg fyrirtæki eru um hituna þegar kemur að hleðslustöðvum og eru ON, Ísorka og Hlaða þegar farin að byggja upp net víða um landið. Þar er þó ekki að finna eins öflugar stöðvar. ON býður upp á næstöflugustu stöðvarnar en þær eru 150 kW og hafa tvær verið settar upp. Til stendur að setja átta upp í viðbót. Aðrar hleðslustöðvar eru 22 eða 50 kW og því ljóst að samkeppnin á langt í land til að mæta hraðhleðslu Tesla á Íslandi. Tesla opnar ofurhleðslustöð í Staðarskála Ford Kuga PHEV eigendur á Íslandi fá nýja rafhlöðu og 80.000 króna bensínkort vegna innkölluninnar. Við ofurhleðslu Tesla í Hrútafirði geta átta bílar hlaðið í einu og fengið um 300 km af hleðslu á einu korteri sem dugir bílnum til Akureyrar. 2 BÍLAR 3 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.