Fréttablaðið - 03.11.2020, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 03.11.2020, Blaðsíða 34
Myndunum var lekið af starfsmönn- um Harley-Davidson. 8 BÍLAR 3 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R Harley-Davidson hefur kynnt til sögunnar rafmagnsreiðhjól undir merki Serial 1, sem er fyrirtæki innan Harley-Davidson Company. Hjólið ber samt merki Harley- Davidson á afturgafflinum og ber þess merki að sækja hönnun sína til fyrsta Harley-Davidson mótorhjólsins sem kom fram á sjónarsviðið árið 1903. Fyrsta mótorhjól Harley-David- son var einfaldlega kallað Serial one innan fyrirtækisins, sem var bara lítill skúr á þessum tíma, svo að nafnið á rafhjólamerkinu er sterk tilvísun líka. Nú, 117 árum síðar, kynna lykilstarfsmenn innan Harley-Davidson þetta rafhjól sem byggt var á síðustu vikum, sem einstakt eintak. Það virðist þó vera byggt á grunni frumgerða rafmagnsreiðhjóla sem Harley-Davidson hefur verið að þróa og sýnd voru á EICMA sýningunni árið 2019. Það sem er sérstakt við nýja hjólið er hversu mikið af útliti sínu það sækir í fyrsta mótorhjólið. Dekkin eru hvít eins og á 1903 mótorhjólinu og hnakkurinn er gamaldags gormahnakkur klæddur brúnu leðri. Loks er drifið á hjólinu brún reim í stað keðju, sem eitt og sér er sterk tilvísun í gamla hjólið sem dreif afturdekkið með brúnni leðurreim. Loks er mótorinn sjálfur í grindinni, í stað miðju afturfelgunnar eins og vinsælt er í rafhjólum. Hvort að þetta fallega rafhjól nái í sýningarsali Harley- Davidson er ekki sagt í tilkynn- ingu frá Serial 1, en vorið 2021 mun þó vera sá tími sem reiðhjól merkisins fara á markað. Rafmagnsreiðhjól frá Harley-Davidson Rafhjólið er með hvítum dekkjum, gamaldags hnakki og reim í stað keðju, eins og fyrsta mótorhjól Harley-Davidson sem kom fram árið 1903. Mótorhjól fyrir árið 2021 eru nú farin að birtast eitt af öðru á frumsýningum á netinu. Eitt þeirra er endurnýjað Yamaha MT-09 sem kemur með nýju útliti, minni þyngd og stærri vél en áður. Nakin mótorhjól í millistærðar- flokki hafa verið góð söluvara og vinsældir þeirra halda áfram að aukast. Vélin er nú orðin 889 rúmsentimetrar sem skilar meira afli og togi. Með þessari þriðju kynslóð er gerð töluverð breyt- ing á útliti. Búið er að skipta út tvö földu framljósunum fyrir eitt díóðuaðalljós og komin eru tvö díóðudagljós sitt hvorum meg- in. Vélin er sýnilegri en áð ur, sem og fjöðrun hjólsins en búið er að færa bensíntankinn neð ar á hjólið. Pústkerfið er líka fyrirferð- arminna en áður og nær vélinni, auk þess að vera léttara. Vélin uppfyllir hinn nýja Euro5 meng- unarstaðal, þrátt fyrir meira afl. Togið er neðar á snúningssviðinu en áður, sem ætti að gera hjólið enn skemmtilegra í akstri. Margir völdu áður að fá sér SP útgáfuna til að fá betri fjöðrun en nýja hjólið fær 41 mm fjölstillanlega KYB framdempara. Einnig er endur- hönnuð KYB fjöðrun að aftan, sem líka er stillanleg. Felgurnar eru enn léttari en áður enda steyptar í einu lagi. Hjólið mun koma í þremur litum þegar það kemur á markað í mars á næsta ári. Ný kynslóð Yamaha MT-09 Öflugri vélin er sýnilegri en áður og allt þar í kringum er samanreknara. Afabarn hans, Súsanna Rós West- lund, varð fyrir svörum og f ljót- lega kom í ljós að mynd væri til af karlinum. „Sú mynd er í kýrauga úr messing, ótrúlega f lott mynd,“ sagði hún. Fékk ég ljósmynd af myndinni senda og sá þá að um mjög gamalt hjól var að ræða. Hjólið á myndinni er Excelsior Model 7-C, skráð 8 hestöf l, eins og slegið var upp í auglýsingum fyrir hjólið. Í gömlum skráningarpapp- írum frá 1922 kemur fram að til hafi verið átta hestaf la Excelsior- hjól fram til ársins 1921, með grindarnúmerið 96061. Það þýðir að það var framleitt 1914-15, sem passar við hjólið á myndinni og er því um elsta mótorhjól sem til er á mynd hérlendis að ræða. Bestu mótorhjól síns tíma Excelsior mótorhjólin voru hrað- skreiðustu og áreiðanlegustu hjólin í Bandaríkjunum á sínum tíma og unnu meðal annars tvær fyrstu Cannonball þolaksturs- keppnirnar. Excelsior V2 með 61 kúbiktommu vél eins og þetta, var fyrsta framleiðslumótorhjólið til að ná 100 mílna hraða árið 1912. Árið 1914 var hjólið komið með tveggja gíra kassa og blað- fjöðrun að framan eins og sést á þessu hjóli. Þriggja gíra kassi kom árið 1915 en því miður sjáum við Mótorhjólamyndin í kýrauganu Sams konar Excelsior-mótorhjól og selt var á uppboði nýlega, með annars konar gasljóskeri en hjól Ossians. Ossian Westlund veifar kumpánlega til ljósmyndarans gegnum kýraugað. Í grúski bílablaðamanns Frétta- blaðsins um gömul mótorhjól, kemur stundum eitthvað skemmtilegt upp úr dýpi liðinna daga. Ég hafði rekist á frásögn um Ossian Westlund og „tvíhjólabifreið“ hans frá því um 1920 á yfirferð um netið og ákvað að setja mig í samband. Sá orðrómur er uppi að mikilla tíðinda sé að vænta frá austur- ríska framleiðandanum KTM. Eru tíðindin í formi öflugri útgáfu 1290 Super Duke hjólsins í ljósi velgengi merkisins í MotoGP. Verður hjólið þó aðeins framleitt í minna en 500 eintökum. Eins og búast má við verður hjólið búið allra nýjustu tækni í spólvörn og þess háttar. Einnig verður notkun koltrefja allsráðandi og sérstakir léttmálmar í fótstigum og handföngum. Sérstakt Akrapovic pústkerfi verður í hjólinu og það verður níu kílóum léttara en hefðbundna hjólið að sögn tíma- ritsins Motociclismo. Þótt hjólið hafi ekki fengið nafn ennþá er búist við að það verði einfaldlega kallað Super Duke RR og ef orðrómurinn er sannur munum við sjá eitthvað meira snemma á næsta ári. Kemur öflugri Super Duke á næsta ári? KTM Super Duke R kemur væntan- lega í öflugri RR útgáfu á næsta ári. Harley-Davidson er um það bil að setja á markað hjól sem keppa mun á markaði þar sem ríkir mikil samkeppni. Er það í formi Pan America ferðahjólsins sem nýlega náðust myndir af nánast fullbúnu. Vitað hefur verið af tilurð þess í nokkurn tíma, enda hjólið merkt sem framtíðarmódel á heimasíðu Harley-Davidson. Það var einnig sýnt sem til- raunahjól á EICMA sýningunni í nóvember í fyrra. Myndunum var „lekið“ af starfsmönnum Harley- Davidson, ásamt staðfestingu á því að hjólið yrði kynnt á næsta ári. Hjólið virðist fullbúið á myndunum með litaskjá í mæla- borði og fullbúið til ferðalaga. Harley-Davidson Pan America á markað næsta vor  Pan America- hjólið virðist vera tilbúið á markað á þessum myndum sem lekið var frá verksmiðjunni. Ekkert hefur heyrst enn þá hvort hjólið verði samkeppnishæft í verði, til að mæta stífri sam- keppni frá merkjum eins og BMW, Honda, Ducati og KTM. ekki á myndinni hvort hann sé í hjólinu eða ekki. Árið 1921 keypti Excelsior Henderson merkið og þar með voru dagar þessa V2 mótors taldir. Seldi hjólið til Svíþjóðar Súsanna sagði einnig að til væri gömul grein um afa hennar og mótorhjólið. Í Morgunblaðinu þann 13. mars 1931 er fjallað um Westlund. Þar er meðal annars minnst á bif hjólið og sögu tengda því. Við grípum niður í frásögn Morgunblaðsins um mótorhjólið. „Svo var það einn góðan veður- dag, að maður var á bif hjóli inn við Elliðaár. Hjólið datt í árnar. Það skemdist. Eigandinn fjekk ekki gert við það og seldi það fyrir hálfvirði en Westlund keypti. Bif hjól eru merkilegir gripir. Það fanst Westlund. Hann plokkaði hjólið alt í sundur ögn fyrir ögn, og einkum þó hreyfilinn. Af því lærði hann margt. Margar tilraunir gerði hann. En að því kom að bif hjólið var sem nýtt og Westlund settist á bak, marg- fróðari um hreyf la og hjól, en er hann byrjaði. Ári seinna fór hann í skemmtiferð um Noreg og Svíþjóð á hjólinu. Hann seldi það í Málmey nokkur hundruð krónum dýrara en hann hafði keypt það.“ Í einkasafni í Helsing- borg í Svíþjóð má meðal annars finna safn mótorhjóla sem nú er reyndar lokað, þar sem erfingjar eru að selja safnið. Meðal gripa þar er Excelsior mótorhjól af sömu árgerð, einnig með hliðarvagni og sams konar ljóskeri. Leiða má líkur að því að um sama hjól sé að ræða, en framtíðin mun vonandi leiða það í ljós.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.