Fjölrit RALA - 06.06.1998, Blaðsíða 74
Möðruvellir 1997
64
Áhrif sláttutíma á meltanleika heys við hirðingu
úr fyrri slætti á Möðruvöllum 1997. Hver kross er
meðaltal fyrir hverja spildu. Alls 22 spildur.
Áhrif sláttutíma á uppskeru þurrefnis úr fyrsta
slætti byggt á vigtunum heys við hlöðudyr. Alls
22 spildur.
Áhrif skjólgresis á sprettu og vetrarþol vallarfoxgrass
Vorið 1996 var sáð vallarfoxgrasi með rýgresi eða byggi til skjóls á s.k. Efstumýri sem er um
3 ha að stærð. Vorið 1997 var greinilegur munur á vallarfoxgrasinu eftir því í hvaða skjóli það
hafði verið. Vallarfoxgras í skjóli rýgresis var mun lengur af stað og lágvaxnara og kalskellur
meira áberandi en þar sem byggi hafði verið sáð með. Þann 6. júlí var þekja sáðgresis metin
60-70% rýgresismegin og 80-90% byggmegin. Uppskera vallarfoxgrass var mæld þrisvar með
því að klippa meðfram 2 m löngum sláttuprikum. Klippt voru 10-15 "prik" í sinn í hvorum
hluta. Nokkuð erfitt reyndist að klippa vallarfoxgrasið í 2. og sérstaklega 3. skiptið. Var það
þá allt lagst og mjög gróft. Uppskerumælingamar eru því sennilega ekki marktækar nema í 1.
slætti. Niðurstöður uppskerumælinganna má sjá í meðfylgjandi töflu.
Uppskera vallarfoxgrass, hkg þe./ha
Rýgresiskjói Byggskjól
Sláttutími Uppsk. St.frv. Uppsk. St.frv.
7. júlí 27,9 14,2 42,8 5,6
16. júlí 33,9 17,5 39,7 10,2
26. júlí 57,6 11,2 57,9 20,1