Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Side 14
lynd að eðlisfari þótt hún geti líka vel verið ein með sjálfri sér. „Ég er mikið að hlusta á hljóðbækur og fallega tónlist með heyrnartólum. Ég get al- veg gleymt mér í lengri tíma og leiðist aldrei heima.“ Þakklát fyrir margt Hún segir það hjálpa sér að halda rútínu að skrifa hjá sér hvað hún ætlar að gera næsta dag. „Jákvæðni og bjartsýni hafa allt að segja. Það fyrsta sem ég geri á morgnana er að segja við sjálfa mig að þetta verði góður dagur, ef til vill sá besti í langan tíma. Auðvitað er maður mismunandi upp- lagður. Ég finn að veðrið hefur áhrif á líðanina. Það má hins vegar ekki láta sjálfsvorkunn og neikvæðni ná tökum á sér. Ég reyni að hugsa jákvætt. Ég á gott að geta gengið óstudd, er frísk og allt mitt fólk er heilsuhraust. Ég hef mína barnatrú og þakka fyrir þetta á hverju kvöldi. Ég finn líka að ég kann nú betur að meta ýmsa hluti sem maður taldi áður sjálfsagða. Það verður munur að þurfa ekki alltaf að vera með maska hér innanhúss á göngunum og þurfa ekki alltaf að spritta hendurnar,“ segir Björg. Hún reiknar ekki með að jólahaldið verði með mjög breyttu móti. „Ég hef aldrei verið í neinu fjölmenni. Ég er sannfærð um að þetta á allt eftir að ganga vel.“ 14 FRÉTTIR Björg Helgadóttir fór á námskeið í tæknilæsi eldri borgara og pantar nú sjálf mat í gegnum netið. MYND/STEFÁN Þ að breyttist ansi margt með tilkomu COVID. Ég er með undir- liggjandi sjúkdóma og ákvað fljótt að fara mjög varlega og fylgja öllum sóttvarnareglum til hins ítrasta,“ segir Björg Helgadóttir, fyrrverandi hjúkrunarfræðingur. Hún er 77 ára og almennt hin hress- asta. Björg býr ein að Árskóg- um en er í afar góðu sambandi systrabörnin og við stjúp- börnin sín – börn eiginmanns síns heitins. „Ég á mjög góða að sem hugsa vel um mig. Það vantar ekki,“ segir hún. Fyrir COVID var hún á fullu flesta daga. „Ég fór í leikfimi tvisvar í viku, tók þátt í stóla- dansi hér í félagsheimilinu og fór á æfingar hjá Gerðu- bergskórnum. Með kórnum fórum við oft á milli hjúkr- unarheimila og sungum fyrir heimilisfólk, spjölluðum og fengum kaffisopa. Þetta auð- vitað er allt hætt núna,“ segir hún. Þá var Björg einnig dugleg að hitta vini og vandamenn, og mánaðarlega frá árinu 1967 hitti hún skólasystur sínar úr hjúkrunarfræðinni. Hún fór reglulega í bíó, á tónleika og út að borða. Viðbrigðin voru því töluverð. Hringir í gamla vini Björg er hins vegar einstak- lega lausnamiðuð og hefur fundið sér ýmislegt að gera. „Ég gerði lista yfir fólk sem ég hafði ekki heyrt í lengi og skammtaði mér að hringja í tvo á dag. Þetta gerði mikla lukku og var mitt framlag þar sem ég gat ekki verið í ann- arri framvarðasveit,“ segir hún glaðlega. „Ég notaði sím- ann mikið, bæði til að láta vita af mér og heyra hvernig mitt fólk hefði það.“ Í sumar fór hún á námskeið í tæknilæsi fyrir eldri borg- ara í félagsmiðstöðinni og lærði margt nytsamlegt. „Ég hef farið að nota tölvuna og snjallsímann meira. Eftir að hafa farið á námskeiðið gat ég pantað hjá matvöruverslunum í gegn um netið og fengið sent heim. Núna er ég líka búin að panta fullt af jólabókum og er bara nokkuð ánægð með mig,“ segir hún stolt. Björg er jákvæð og félags- Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is ÞAÐ VERÐUR GÓÐUR DAGUR Í DAG Á hverjum morgni segir Björg Helgadóttir við sjálfa sig að dagurinn í dag verði góður dagur. Henni finnst það hjálpa sér við að halda rútínu að skrifa hjá sér hvað hún ætlar að gera næsta dag. 27. NÓVEMBER 2020 DV Framhald á síðu 16 ➤ Horfum á björtu hliðarnar Á tímum COVID-19 hafa flestir glímt við þá áskorun að halda daglegu lífi í föstum skorðum þrátt fyrir takmarkanir á félagslegum samskiptum. Í Árskógum í Reykjavík býr fjöldi eldri borgara sem hafa ekki farið varhluta af þeim samfélagslegu breyting- um sem hafa orðið síðan í vor. DV tók þrjá íbúa þar tali sem reyna markvisst að horfa á björtu hliðarnar og luma jafnvel á ráðum sem aðrir geta tekið sér til fyrirmyndar. Ég finn líka að ég kann nú betur að meta ýmsa hluti sem maður taldi áður sjálf- sagða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.