Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 22
22 FÓKUS Elísabet Hulda, nýkjörin Miss Universe Iceland FEGURÐARSAM- KEPPNIN MISSKILIN ÞVÍ ORÐIÐ ER ÚRELT Elísabet Hulda Snorradóttir bar sigur úr býtum í keppninni Miss Universe Iceland sem haldin var á dögunum. Hún segir kvikmyndina Miss Congenial­ ity hafa verið kveikjuna að þátttöku sinni en hún fékk mikla gagnrýni fyrir að taka þátt í keppninni. E lísabet Hulda er fædd og uppalin í Mosfellsbæ en bjó í frönskumæl- andi hluta Belgíu sem barn. Hún ferðaðist víða um heim- inn vegna starfa foreldra sinna sem hún segir kveikjuna á áhuga sínum fyrir ólíkum tungumálum og menningar- heimum. „Áhugi minn á Asíu kvikn- aði þegar ég var fjórtán ára og kynntist japanska staf- rófinu Hiragana. Ég gerði mér margar ferðir á Borgar- bókasafnið þar sem ég sat tím- unum saman að kenna sjálfri mér japönsku. Árið 2016 ferðaðist ég í fyrsta skipti til Japans þar sem ég var skráð í tungumálaskóla yfir sumarið í borginni Hokkaido og bjó hjá yndislegri fósturfjölskyldu. Að sumarskólanum loknum fór ég síðan til Suður-Kóreu þar sem ég hitti pabba minn og við ferðuðumst saman heim til Íslands eftir viku í höfuð- borginni, Seúl. Ég fór síðan aftur út næsta ár og eyddi þá lengri tíma í Suður-Kóreu þar sem ég var að vinna við sjálf- boðavinnu. Það sumar var ég í sumarskóla í Tókýó og lærði tungumálið enn betur. Vorönnina 2018 tók ég síðan pásu frá framhaldsskólanum þar sem ég fékk styrk til þess að ferðast til Kýótó og vera „prufu“-nemandi í nýjum tungumálaskóla þar.“ Eini nemandinn í kínverskum fræðum Vorið 2019 lauk Elísabet fram- haldsskólagöngu sinni og stefndi strax til Kóreu þar sem henni fannst ekkert nám heillandi hér heima. Í hálf- gerðri rælni leit hún þó við á háskólakynningu og rak þar augun í kínversk fræði með þeim afleiðingum að hún skráði sig í BA-nám við Há- skóla Íslands. „Ég held að ég sé eini nem- andinn sem skráði sig í kín- versk fræði sem aðalgrein þetta vor. Útskriftargjöfin mín úr framhaldsskóla var síðan ferð til Kína sem rættist loks- ins í janúar núna í ár, en það var rétt áður en COVID skall á. Ég og mamma vorum í Beij- ing yfir kínversku áramótin og borgin var alveg auð. Það var ekki fyrr en eftir fyrstu tvo dagana þar sem það kviknaði á perunni að fólk væri hvergi sjáanlegt út af veirunni. Við snerum aftur til Íslands fyrr en áætlað var vegna hræðslu um að festast í landinu ef landamæri skyldu lokast. Ég er nú á öðru ári í kín- verskum fræðum og ákvað að taka aðra aðalgrein sem er japanskt mál og menning. Í báðum aðalgreinum er ætlast til þess að nemandinn fari í skiptinám á þriðja ári þann- ig ef COVID leyfir þá verð ég vonandi flutt til Kína næsta haust.“ Vildi upplifa ferlið í eigin persónu „Ég tel kvikmyndina Miss Con- geniality með Söndru Bullock vera stóra ástæðu fyrir því að ég fékk áhuga á að keppa. Ég horfði á hana stanslaust þegar ég var lítil og fór jafn- vel inn í herbergi eftir á og byrjaði að herma eftir atrið- unum sem gerðust í myndinni. Svona keppnir voru líka meira áberandi í samfélaginu þegar ég var yngri, og ég man eftir því að sjá fréttir um þær á for- síðunni á Fréttablaðinu og í sjónvarpinu. Frænka mín, Ósk Gunnarsdóttir, vann svo Ung- frú Reykjavík árið 2008 og ég man sterkt eftir því að segja fólki að það væri sko frænkan mín sem hefði unnið. Ég var líka svo forvitin um hvernig þetta ferli væri í alvörunni. Eftir að ég kynnti mér betur hvernig Miss Universe keppn- in væri þá ákvað ég að sækja um og upplifa ferlið í eigin per- sónu.“ Nú tókstu líka þátt á síðasta ári, hvers vegna ákvaðstu að taka aftur þátt í ár? „Ég ætlaði mér að ferðast til Suður-Kóreu og Japans í sumar með vinkonum og fara síðan í skiptinám til Suður- Kóreu út haustönnina, en út af COVID breyttust plönin mín mikið. Ég ákvað að taka ábyrgu ákvörðunina sem var að fresta skiptináminu og vera hér heima í skólanum í ár til viðbótar. Ég varð frekar óör- ugg með framtíðina og hvað ég vildi gera með lífið mitt á því tímabili. Ég frétti síðan af því að það væri aftur búið að opna fyrir umsóknir þar sem ein- hverjir keppendur hefðu hætt við og það væri opið pláss. Ég fann fyrst fyrir smá mót- spyrnu frá aðstandendum en ákvað samt að reyna á þetta aftur, og það skilaði sér.“ Sundfataatriðið dregur keppnina niður Elísabet Hulda segist hafa fundið fyrir misjöfnum við- Elísabet talar fjölda tungu- mála og stefnir á að bæta í. MYND/VALLI 27. NÓVEMBER 2020 DV Íris Hauksdóttir ritstjorn@dv.is brögðum í þau skipti sem hún tilkynnti sínum nánustu um þátttöku sína. Hún segist þó skilja inntak þeirrar gagnrýni enda sé fegurðarsamkeppni vandmeðfarið hugtak. „Álit á keppninni er að mínu mati misskilið því orðið sjálft er úrelt og lýsir ekki hvað þessar keppnir standa fyrir í nútím- anum. Mér finnst þróun feg- urðarsamkeppna voða áhuga- verð og sérstaklega þar sem fegurðarsamkeppnir hafa allt- af átt sér stað, þótt þær væru bornar fram á ólíkan máta. Í mínu tilfelli fékk ég ekki bestu viðbrögð þegar ég sótti fyrst um, og ennþá verri við- brögð þegar ég sagðist ætla að gera þetta aftur. Ég fékk stanslaust að heyra: „En þú ert ekki týpan í þetta,“ eða: „Hvað er stelpa eins og þú að gera í þessu?“ Þegar ég heyrði þessar spurningar spurði ég alltaf til baka: „Hver er þá stelpan eða týpan til að gera þetta?“ Fólk varð þá pínu tekið til baka þar sem einu svörin sem þau höfðu var neikvæð ímynd. Það sem ég kunni mest að meta var þegar fólk spurði mig: „Hvað snýst þetta um?“ og „Af hverju ertu að þessu?“ því þá loksins gat ég útskýrt fyrir fólki af hverju þetta væri hlutur sem ég vildi gera og láta rætast. Fyrir mér er þátttakan ákveðið tækifæri til að vekja athygli á því sem liggur þér á hjarta. Og það er ekki eitthvað sem aðeins sigurvegarinn fær, heldur fá allar stelpur tækifærið til að gera það yfir tímabilið. Sigurvegarinn fer annars út á alþjóðlegt svið sem fulltrúi Íslands og hefur tæki- færi til að kynna sig og landið sitt. Það álit að þessi keppni sé yfirborðskennd og snúist ekki um neitt annað en útlit er eitt- hvað sem við erum að berjast gegn. Það sem stingur mig líka er að þeir sem ekki þekkja til vísa oft til sundfataatriðis- ins með það að markmiði að draga keppnina niður. Á sama tíma fara Íslendingar margir hverjir í sund sirka tvisvar í viku.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.