Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Page 30
30 FÓKUS
VIÐ ÞURFUM SVO
MIKLU MINNA EN
VIÐ HÖLDUM
Guðrún Helga Jóhannsdóttir er fimm
barna móðir með þrjár háskólagráður og
enga þörf fyrir auka dót og drasl. Hún
segir samverustundir vera hina sönnu gjöf
sem gjarnan megi muna oftar eftir.
Guðrún býr í dag í Gríms-nesinu ásamt eigin-manni sínum Yakhya
Diop. Guðrún og Yakhya eru
rík af börnum og eiga bæði
þrjú börn frá fyrri sambönd-
um. Saman eiga þau Alexand-
er Amadou og Heklu Aïchu
svo samanlagt telur fjölskylda
þeirra tíu manns. Börnin eru
á aldrinum 2-25 ára en börn
Yakhya búa í Senegal. Elsta
dóttir Guðrúnar er flutt að
heiman þannig að í augna-
blik inu búa fjögur barnanna
heima. Guðrún og eiginmaður
hennar hafa tileinkað sér míní -
mal ískan lífsstíl og segja það
að eiga minna skila sér í raun í
meiri upplifunum og tíma.
„Ég ákvað aldrei beint að
fara að lifa mínímalískum
lífsstíl heldur gerðist það
samfara ferðalögum mínum
og flutningum,“ segir Guðrún,
sem hefur búið í Danmörku,
Frakklandi og í Senegal þar
sem hún vann að rannsókn fyr-
ir doktorsverkefni sitt. Ferða-
lög hafa alltaf verið stór hluti
af lífi hennar en hún heldur
úti síðunni mommyneedsto-
travel. com og samnefndri
Insta gramsíðu. Þar skrifar
hún um ferðalög fjölskyldunn-
ar og mínímalískan lífsstíl.
„Þegar ég bjó í Danmörku
keyrðum við út um alla Evr-
ópu. Ég held að ég hafi alltaf
verið með svona mikla ferða-
þrá. Ég var þó ekki alltaf
svona mínímalísk. Þegar ég
bjó í Danmörku fyrir 10 árum
síðan var ég í mikilli efnis-
hyggju. Það þurfti allt að vera
til, mikið jólaskraut og mikið
keypt. Það hefur breyst og
í dag finnst mér minna vera
meira. Eftir að hafa flutt
þrisvar milli landa með bara
ferðatöskur þá lærir maður að
forgangsraða.“
Einstæð móðir í Senegal
„Við erum ekki hætt að
ferðast. Við erum bara í smá
pásu að koma okkur upp húsi,“
segir Guðrún sem hefur mikið
dálæti á Afríku. Við ætluðum
að vera í Senegal yfir jólin en
það gekk ekki sökum farald-
ursins.“
Hún segir Senegal vera góð-
an stað og að það hafi reynst
sér auðveldara að vera ein-
stæð móðir með þrjú börn
þar heldur en hér á Íslandi.
„Það er mun ódýrara að lifa
þar. Ég var með heimilishjálp
sem sá um að þrífa og elda
ofan í okkur og næturvörð
sem tryggði öryggi okkar á
kvöldin. Það var farið út í búð
fyrir okkur og eldaður kvöld-
matur. Það var mjög þægilegt
líf en krakkarnir vildu frekar
vera á Íslandi.“
27. NÓVEMBER 2020 DV
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is