Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Side 34
34 FÓKUS
G reta Salóme Stefáns-dóttir er söngkona, fiðluleikari og laga-
höfundur, en hún er líka í
hörkuformi og getur gert
armbeygjur eins og enginn sé
morgundagurinn. Á milli þess
sem hún brillerar í stúdíóinu
tekur hún á því í ræktinni,
réttara sagt heimaræktinni
þessa dagana.
Við heyrðum í Gretu um
hvaðan hún fær metnaðinn
fyrir að æfa á tímum COVID
og gefur hún nokkur góð ráð.
Íþróttaálfur
„Ég hef nú eiginlega alltaf
verið hálfgerður íþróttaálfur.
Ég var í frjálsum íþróttum
sem krakki og var lengi í sam-
kvæmisdansi. Ég var alltaf
rosalega virk og hef alltaf
haft mjög mikla þörf fyrir að
hreyfa mig,“ segir Greta.
Árið 2008 flutti hún heim
frá Bandaríkjunum og byrj-
aði í Bootcamp. „Þar fékk ég
þessa algjöru bakteríu og hef
ekki losnað við hana síðan,“
segir Greta og hlær. Hún
hefur síðan þá stundað fleiri
íþróttir, eins og CrossFit.
„Ég er rosalega háð því að
hreyfa mig,“ segir hún.
Setur sér markmið
„Það mér finnst skemmtileg-
ast að gera er að skora á sjálfa
mig. Ég verð alltaf að hafa
einhver markmið, eitthvað
meira en að fara bara í rækt-
ina. Ég verð að sjá einhvern
árangur, annaðhvort að ég sé
að taka meiri þyngdir í lyftum
eða hlaupa hraðar eða eitt-
hvað svoleiðis. Mér finnst það
hjálpa mér rosalega mikið, að
hafa að einhverju að stefna,“
segir hún.
Aðspurð hvaða markmið
hún sé með núna svarar Greta
hlæjandi: „Að komast í gegn-
um 2020.
Og líka að missa ekki damp-
inn. Núna, fyrir mig og held
marga aðra, þá skiptir máli
að missa ekki hausinn. Það
er rosalega auðvelt að fara í
fósturstellinguna og bíða eftir
að þetta sé allt búið.“
Greta segir að hreyfing hafi
hjálpað henni hvað mest að
komast í gegnum árið. Hvort
sem það er að skella sér í
íþróttaföt og út að hlaupa eða
taka æfingu á stofugólfinu
þá leggur hún áherslu á að
UM LEIÐ OG MAÐUR BYRJAR ÞÁ
SÉR MAÐUR ALDREI EFTIR ÞVÍ
Tónlistarkonan Greta Salóme hefur stundað hreyfingu af kappi undanfarin tólf ár
og heldur áfram þrátt fyrir COVID. Hún segir að lykillinn sé einfaldlega að byrja.
Greta segir
hreyfingu
hafa hjálpað
sér hvað mest
í COVID.
MYND/AÐSEND
Greta skorar á sjálfa sig og setur sér markmið. MYNDIR/AÐSENDAR
hreyfa sig. „Ég er hörð á því
að sinna sjálfri mér og sinna
líkamanum mínum og passa
að ástandið nái ekki yfirhönd-
inni, þá finnst mér hreyfingin
hjálpa hvað mest,“ segir hún.
Hvaðan kemur þessi
metnaður?
Greta viðurkennir að hún sé
ekki alltaf með metnað til að
æfa.
„Ég finn alls ekki alltaf
fyrir metnaðinum eða „pepp-
inu“ til þess að æfa, mig
langar ekki alltaf að æfa. En
ég treysti voða lítið á „pepp“
eða hvatningu. Ég trúi að
það komi um leið og maður
byrjar. Ég reyni sem minnst
að treysta á að fá hvatningu
einhvers staðar frá, ég held að
það sé hættulegt að gera það
því þá myndi maður alls ekki
æfa á hverjum degi eða senni-
lega bara lítið æfa,“ segir hún.
„Ég fer í íþróttafötin og
byrja að teygja, maður hættir
ekkert við þá. Ég plata mig
stundum í það að taka æfingu.
Málið er bara að byrja. Um
leið og maður byrjar þá sér
maður aldrei eftir því.“
Heimaæfingar
Greta hefur verið að fylgja
27. NÓVEMBER 2020 DV
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
æfingaprógrammi í snjall-
símaforriti sem kallast
SWEAT. Hún segir að það sé
þægilegt að fylgja einhverju
prógrammi og ekki þurfa að
skipuleggja hverja æfingu
fyrir sig.
Greta er með ansi tilkomu-
mikla ræktaraðstöð heima hjá
sér. „Ég er með ketilbjöllur,
handlóð og stöng heima. Svo
er ég líka í næringarþjálfun
hjá Inga Torfa. Það hefur
hjálpað mér mikið, að vera
með einhvern á öxlinni til að
passa að maður detti ekki í
einhverja vitleysu,“ segir hún
og bætir við að eftir að hún
byrjaði í næringarþjálfun
borði hún miklu meira.
Ráð
Það mætti segja að Greta sé
reynslubolti þegar kemur
að hreyfingu, hún er búin að
stunda íþróttir og hreyfingu
af kappi í rúman áratug, og
þegar kemur að því að gefa
öðrum ráð hefur hún það ein-
falt. „Mitt helsta ráð er að
byrja, þá er hálfur sigurinn
unninn,“ segir hún. Eins og
hún sagði áður þá reynir hún
að treysta sem minnst á að
finna fyrir hvatningu heldur
gerir hún bara hlutina. „Þetta
er alls ekki alltaf gaman.
Þetta er eins og að vakna á
morgnana, það er ekki alltaf
gaman að vakna en um leið og
maður er kominn út í daginn
þá er það ekkert mál.“
Annað ráð sem hún gefur er
að taka ekki of stóran bita í
einu. „Bestu æfingarnar mín-
ar hérna heima eru oftast um
40-45 mínútur og það er bara
alveg nóg,“ segir hún.
„Það skiptir líka máli að
vera ekki of harður við sig.
Það koma stundum dagar þar
sem þú getur ekki æft og það
er bara allt í lagi, þá æfirðu
bara daginn eftir. Forðastu
„allt eða ekkert“ hugsunar-
háttinn. Það er partur af lífs-
stílnum að taka æfingu og ef
þú missir af æfingu þá er ekki
allt ónýtt. Ef þú borðar óhollt
einn daginn þá er það líka í
lagi. Haltu bara áfram. Gerðu
þetta meira að lífsstíl sem þú
getur haldið til streitu frekar
en einhverri törn eða átaki. Ég
hef þurft að reka mig á það
oftar en einu sinni og oftar en
tvisvar.“
Greta talar af reynslunni.
„Ég er búin að brjóta mjöðm
eftir að hafa hlaupið 300 kíló-
metra á hlaupabretti á 40
dögum. Ég er búin að fara í
gegnum allan pakkann.“ n