Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Side 39
S æl, Kristín. Maðurinn minn er búinn að vera atvinnulaus síðan í sumarbyrjun. Hann er vel menntaður og var alltaf vel liðinn í starfi en var sagt upp vegna samdráttar í tengslum við kórónufaraldurinn. At- vinnuleysið hefur lagst mjög þungt á hann og er þetta nýr veruleiki fyrir hann. Í sumar var hann duglegur að fara í göngutúra og sund, en hann er nú löngu hættur göngutúrunum og sundlaug- ar auðvitað lokaðar. Vegna tekjufallsins eru síðan frekari takmarkanir á hvað er hægt að gera til að létta lundina. Ég er nú orðin mjög áhyggjufull. Ég og krakkarnir förum til skóla og vinnu á morgnana, ég vissi að hann væri farinn að sofa lengur á morgnana en stundum er hann enn í rúminu þegar ég kem heim úr vinnunni seinnipartinn. Hann reynir að gera lítið úr þessu, segist bara hafa að- eins lagt sig en ég held að hann sé oftar en ekki algjör- lega aðgerðalaus yfir daginn. Hvað get ég gert til að hjálpa honum, eða hvað getur hann gert til að hjálpa sjálfum sér þannig að þunglyndið gleypi hann ekki og hann verði ekki lengur vinnufær þegar fer að rofa til? Erfið staða Sæl! Æi, þetta er erfið staða sem því miður allt of margir eru að glíma við þessa dag- ana. Við munum vafalaust sjá meira af þessum afleiðingum COVID þegar fram í sækir og mættum sem kerfi og sam- félag mæta þessum vanda með fleiri úrræðum. Þetta hljómar eins og að- stæðubundið þunglyndi sem merkir að breytingar á að- stæðum ykkar gætu líka haft góð áhrif. Þú og krakkarnir farið út á morgnana en hann er ennþá heima. Gæti það breytt einhverju að búa til lítið virkniplan fyrir hann? Verkefni sem þarf að leysa heima fyrir? Heimsækja ætt- ingja eða vini í sambærilegri stöðu? Atvinnuleit í klukku- stund á dag? Eins og þú segir þá hafa lokanir í líkamsræktarstöðv- um, sundi og fleira gríðarleg áhrif á andlega líðan fólks í hans stöðu en sumt má samt ennþá til dæmis göngutúr eða bíltúr og mögulega gæti slíkt gert gæfumuninn fyrir hann. Byrja á samtali Fjárhagur, atvinnumál, heilsa og annað hefur vissu- lega áhrif á hamingju okkar og líðan. En ef þú spyrð ham- ingjusöm pör hvers vegna þau eru hamingjusöm þá er tíðasta svarið „vinátta“. Í þessu samhengi verð ég að viðurkenna að mér finnst gott að þú finnir fyrir áhyggjum, þú ert að velta fyrir þér hvað þú getur gert og hvernig þú getur verið til staðar. Það segir mér að þið eruð vinir, þú vilt honum vel og vilt vera til staðar. Nýlega hafa fræðin sýnt að parameðferð skilar sambærilegum árangri við meðhöndlun þunglyndis og kvíða og einstaklingsmeð- ferð. Þetta ýtir undir það að þið saman getið gert krafta- verk í þessum aðstæðum ef vilji er fyrir hendi. Það er yfirleitt árangurs- ríkt að byrja að leysa vanda með því að opna samtal. Ekki vera hrædd við að stinga á kýlið en það getur verið vandasamt að gera það vel í viðkvæmum aðstæðum sem þessum. Helsti parasérfræð- ingur í heiminum er málvís- indakona. Það segir okkur að hvaða orð við notum, í hvaða samhengi og hvaða tóni getur skipt öllu máli upp á hvert samtalið leiðir. Þarna geta spurningar verið mjög voldugar. Í staðinn fyrir að fullyrða að maðurinn þinn sé orðinn þunglyndur og sofi heilu dagana þá gæti verið ráð að spyrja hann: „Hvernig líður þér?“, „Hvað þarftu svo þér líði betur?“, „Hvernig hjálp getur reynst þér vel?“, „Hvað get ég gert?“ Ekki hika heldur við að tala út frá þinni eigin líðan. Segðu honum að þú sért óörugg og áhyggju- full í hans garð og að þú viljir gjarnan að þið finnið út úr þessum aðstæðum saman. Um leið og við byrjum setn- ingar á „mér líður… “ í stað „mér finnst... “ eða „þú ættir að…“, þá drögum við verulega úr líkum á varnarviðbrögðum frá hinum aðilanum. Fylgifiskar atvinnumissis Viðhorf ykkar til atvinnu- missisins getur skipt sköpum varðandi framhaldið. Um þessar mundir erum við að glíma við náttúruhamfarir, ófyrirséðar og fordæma- lausar aðstæður. Það er ekki við manninn þinn að sakast í hvaða stöðu þið eruð, heldur þessi skrítnu og lúmsku vá. Aftur á móti er algengur fylgifiskur atvinnumissis sjálfsgagnrýni og lágt sjálfs- mat. Þú gætir því litið á það sem þitt hlutverk að minna manninn þinn á hvers vegna þessi staða kom upp, hvaða styrkleikum hann býr yfir og hvað þú sért stolt af honum. Nú reynir á hæfnina til þess að sjá glasið hálffullt frekar en hálftómt, enda getur at- vinnumissir skapað ný tæki- færi sem annars hefðu ekki komið upp. Er þetta tími til þess að fara í nám? Er þetta tíminn til þess að feta inn á aðrar atvinnubrautir? Geng- ur hann um með nýsköp- unarhugmynd í maganum? Oft þurfum við aðstoð við að sjá ljósið og þar geta makar komið sterkir inn. Ef þunglyndið fer að aukast, vanvirknin að vinda upp á sig og þú metur andlega heilsu hans veika, þá mæli ég hiklaust með því að þið leitið til sálfræðings eða heimilis- læknis. Þessir aðilar eru ein- mitt ætlaðir fólki sem glímir við slíkan vanda og ekki að ástæðulausu, þau geta sann- arlega hjálpað. Mikið er maðurinn þinn heppinn að eiga þig að og ég er viss að með sameiginlegu átaki, breyttu viðhorfi, utan- aðkomandi aðstoð og nýrri stefnu komist þið í gegnum þetta. Það sem drepur okkur ekki, það styrkir! n Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem hefur áhyggur af þunglyndum maka. MAKINN ÞUNGLYNDUR Í KJÖLFAR ATVINNULEYSIS Sérfræðingur svarar MYND/GETTY FÓKUS 39DV 27. NÓVEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.