Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Síða 39
S æl, Kristín. Maðurinn minn er búinn að vera atvinnulaus síðan í
sumarbyrjun. Hann er vel
menntaður og var alltaf vel
liðinn í starfi en var sagt upp
vegna samdráttar í tengslum
við kórónufaraldurinn. At-
vinnuleysið hefur lagst mjög
þungt á hann og er þetta nýr
veruleiki fyrir hann.
Í sumar var hann duglegur
að fara í göngutúra og sund,
en hann er nú löngu hættur
göngutúrunum og sundlaug-
ar auðvitað lokaðar.
Vegna tekjufallsins eru
síðan frekari takmarkanir
á hvað er hægt að gera til
að létta lundina. Ég er nú
orðin mjög áhyggjufull. Ég
og krakkarnir förum til
skóla og vinnu á morgnana,
ég vissi að hann væri farinn
að sofa lengur á morgnana
en stundum er hann enn í
rúminu þegar ég kem heim
úr vinnunni seinnipartinn.
Hann reynir að gera lítið úr
þessu, segist bara hafa að-
eins lagt sig en ég held að
hann sé oftar en ekki algjör-
lega aðgerðalaus yfir daginn.
Hvað get ég gert til að hjálpa
honum, eða hvað getur hann
gert til að hjálpa sjálfum sér
þannig að þunglyndið gleypi
hann ekki og hann verði ekki
lengur vinnufær þegar fer að
rofa til?
Erfið staða
Sæl! Æi, þetta er erfið staða
sem því miður allt of margir
eru að glíma við þessa dag-
ana. Við munum vafalaust sjá
meira af þessum afleiðingum
COVID þegar fram í sækir og
mættum sem kerfi og sam-
félag mæta þessum vanda
með fleiri úrræðum.
Þetta hljómar eins og að-
stæðubundið þunglyndi sem
merkir að breytingar á að-
stæðum ykkar gætu líka haft
góð áhrif. Þú og krakkarnir
farið út á morgnana en hann
er ennþá heima. Gæti það
breytt einhverju að búa til
lítið virkniplan fyrir hann?
Verkefni sem þarf að leysa
heima fyrir? Heimsækja ætt-
ingja eða vini í sambærilegri
stöðu? Atvinnuleit í klukku-
stund á dag?
Eins og þú segir þá hafa
lokanir í líkamsræktarstöðv-
um, sundi og fleira gríðarleg
áhrif á andlega líðan fólks í
hans stöðu en sumt má samt
ennþá til dæmis göngutúr eða
bíltúr og mögulega gæti slíkt
gert gæfumuninn fyrir hann.
Byrja á samtali
Fjárhagur, atvinnumál,
heilsa og annað hefur vissu-
lega áhrif á hamingju okkar
og líðan. En ef þú spyrð ham-
ingjusöm pör hvers vegna
þau eru hamingjusöm þá er
tíðasta svarið „vinátta“. Í
þessu samhengi verð ég að
viðurkenna að mér finnst gott
að þú finnir fyrir áhyggjum,
þú ert að velta fyrir þér hvað
þú getur gert og hvernig þú
getur verið til staðar. Það
segir mér að þið eruð vinir,
þú vilt honum vel og vilt vera
til staðar. Nýlega hafa fræðin
sýnt að parameðferð skilar
sambærilegum árangri við
meðhöndlun þunglyndis og
kvíða og einstaklingsmeð-
ferð. Þetta ýtir undir það að
þið saman getið gert krafta-
verk í þessum aðstæðum ef
vilji er fyrir hendi.
Það er yfirleitt árangurs-
ríkt að byrja að leysa vanda
með því að opna samtal. Ekki
vera hrædd við að stinga
á kýlið en það getur verið
vandasamt að gera það vel í
viðkvæmum aðstæðum sem
þessum. Helsti parasérfræð-
ingur í heiminum er málvís-
indakona. Það segir okkur
að hvaða orð við notum, í
hvaða samhengi og hvaða
tóni getur skipt öllu máli upp
á hvert samtalið leiðir. Þarna
geta spurningar verið mjög
voldugar. Í staðinn fyrir að
fullyrða að maðurinn þinn
sé orðinn þunglyndur og sofi
heilu dagana þá gæti verið
ráð að spyrja hann: „Hvernig
líður þér?“, „Hvað þarftu svo
þér líði betur?“, „Hvernig
hjálp getur reynst þér vel?“,
„Hvað get ég gert?“ Ekki hika
heldur við að tala út frá þinni
eigin líðan. Segðu honum að
þú sért óörugg og áhyggju-
full í hans garð og að þú
viljir gjarnan að þið finnið út
úr þessum aðstæðum saman.
Um leið og við byrjum setn-
ingar á „mér líður… “ í stað
„mér finnst... “ eða „þú ættir
að…“, þá drögum við verulega
úr líkum á varnarviðbrögðum
frá hinum aðilanum.
Fylgifiskar atvinnumissis
Viðhorf ykkar til atvinnu-
missisins getur skipt sköpum
varðandi framhaldið. Um
þessar mundir erum við að
glíma við náttúruhamfarir,
ófyrirséðar og fordæma-
lausar aðstæður. Það er ekki
við manninn þinn að sakast í
hvaða stöðu þið eruð, heldur
þessi skrítnu og lúmsku vá.
Aftur á móti er algengur
fylgifiskur atvinnumissis
sjálfsgagnrýni og lágt sjálfs-
mat. Þú gætir því litið á það
sem þitt hlutverk að minna
manninn þinn á hvers vegna
þessi staða kom upp, hvaða
styrkleikum hann býr yfir og
hvað þú sért stolt af honum.
Nú reynir á hæfnina til þess
að sjá glasið hálffullt frekar
en hálftómt, enda getur at-
vinnumissir skapað ný tæki-
færi sem annars hefðu ekki
komið upp. Er þetta tími til
þess að fara í nám? Er þetta
tíminn til þess að feta inn á
aðrar atvinnubrautir? Geng-
ur hann um með nýsköp-
unarhugmynd í maganum?
Oft þurfum við aðstoð við að
sjá ljósið og þar geta makar
komið sterkir inn.
Ef þunglyndið fer að
aukast, vanvirknin að vinda
upp á sig og þú metur andlega
heilsu hans veika, þá mæli ég
hiklaust með því að þið leitið
til sálfræðings eða heimilis-
læknis. Þessir aðilar eru ein-
mitt ætlaðir fólki sem glímir
við slíkan vanda og ekki að
ástæðulausu, þau geta sann-
arlega hjálpað.
Mikið er maðurinn þinn
heppinn að eiga þig að og ég
er viss að með sameiginlegu
átaki, breyttu viðhorfi, utan-
aðkomandi aðstoð og nýrri
stefnu komist þið í gegnum
þetta. Það sem drepur okkur
ekki, það styrkir! n
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina
í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni
svarar Kristín spurningu lesanda sem
hefur áhyggur af þunglyndum maka.
MAKINN ÞUNGLYNDUR
Í KJÖLFAR ATVINNULEYSIS
Sérfræðingur svarar
MYND/GETTY
FÓKUS 39DV 27. NÓVEMBER 2020