Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Síða 40
Matseðill
Völundar
Morgunmatur
Ferskur djús, kaffi og ristað súr-
deigsbrauð.
Millimál
Próteinsjeikur með banana,
trefjum, kakó-nibbum og chia-
fræjum.
Hádegismatur
Soðin egg, píta með grænmeti,
eða kaldur kjúklingur.
Kvöldmatur
Plokkfiskur, kjötsúpa, hakk og
spaghet tí, grilluð pitsa, kjöt-
bollur eða fiskibollur.
Föstudagspitsa
Föstudagspitsan grilluð á útigrill-
inu á pitsasteini hefur verið að slá
í gegn. Við höfum prófað alls konar
deig frá ýmsum aðilum. Deigin frá
Hagkaup og Brauð & Co hafa verið
vinsæl.
Okkar helsta trix er að hafa þær eins
þunnar og sósan og osturinn ræður
við. Flest erum við pepperoni-fólk
sumir vilja ananas og rjómaost en
aðrir ekki. Ég er reyndar einn af
þeim sem elskar sterkar pitsur og
nota banana til að fá smá sætleika
á móti. Okkur finnst frábært að nota
parmaskinku, klettasalat og ferska
hvítlauksolíu í restina og toppa pits-
una svo með umami-saltinu.
Pitsusósa
1 dós lífrænir, niðursoðnir tómatar
1 msk. af extra virgin ólífuolíu
1 lítið hvítlauksrif
½ tsk. af þurrkuðu óregano
½ tsk. Ocean Umami salt
Skerið hvítlauksrifið í grófa bita.
Setjið svo allt saman í blandara og
blandið þar til allt er maukað saman.
Þetta geymist í kæli í viku og svo er
líka hægt að frysta sósuna í allt að
3 mánuði.
40 MATUR 27. NÓVEMBER 2020 DV
Föstudagspitsa
sem slær í gegn
Matreiðslumaðurinn Völundur Snær Völundarson er vanafastur og
byrjar flesta daga á sama morgunmatnum. Kvöldmaturinn er fjöl-
breyttur en eitt er þó víst, fjölskyldan sest alltaf niður saman.
V ölundur lýsir venjuleg-um degi í lífi sínu. „Ég er með tvö sprotafyrir-
tæki sem tengjast íslenskum
lífrænum þara. Annað heitir
Algarum Organic og fram-
leiðir þarahylki og þaraduft
úr lífrænum þara. Þarinn er
einstaklega ríkur af joði ásamt
því að innihalda ómega fitu-
sýrur, trefjar, prótein og stein-
efni. Hitt er Ocean Umami salt
sem er blanda af náttúruvott-
uðu salti ásamt lífrænt vott-
uðum þara til þess að ná fram
einstöku umami-bragði sem er
fimmta bragðið í matreiðslu og
er í raun ekki hægt að ná fram
nema með réttum hlutföllum
af þara,“ segir Völundur.
„Sjálfur er ég frekar vana-
fastur. Ég byrja alltaf daginn
á ferskum safa, svo tveimur
kaffibollum og einni ristaðri
súrdeigsbrauðsneið með osti
og umami-salti. Ég fer í sund
daglega þegar það er í boði og
hef gaman af allri útiveru.“
Setjast alltaf niður saman
Völundur segist ekki fylgja
neinu ákveðnu mataræði, en
leggur þó áherslu á eitt. „Það
er nú frekar fjölbreytt mat-
aræði á þessu heimili en við
forðumst kannski helst þungan
og brasaðan mat þrátt fyrir að
hann komi á borð öðru hvoru.
Við pössum alltaf upp á að setj-
ast niður á hverju kvöldi þrátt
fyrir að við séum að borða eitt-
hvað létt,“ segir hann.
Aðspurður hvort hann verji
miklum tíma í eldhúsinu svar-
ar Völundur játandi.
„Já, eldhúsið er klárlega
minn vettvangur á heimilinu
enda finnst mér það æðislegt.
Held að ég sé ágætis kokkur,“
segir hann.
Uppáhaldsmáltíð?
„Fiskur er í algjöru uppá-
haldi. Ég elska létt eldaðan
fisk með salati og góðu vinai-
grette.“ n
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Okkar helsta
trix er að
hafa þær
eins þunnar
og sósan
og osturinn
ræður við.
Eldhúsið er vettvangur Völundar á heimilinu. MYND/SIGTRYGGUR ARI
MYND/AÐSEND