Feykir - 26.06.2019, Blaðsíða 1
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Veiði að hefjast í húnvetnsku laxveiðiánum
Húnavatnssýslur
Nú eru laxveiðiárnar að opna ein af
annarri. Fyrsti veiðidagur í Blöndu var
5. júní og á miðvikudag í síðustu viku
höfðu veiðst þar 85 laxar. Tveir þeirra
munu hafa verið 98 cm langir sem
eru þeir stærstu sem veiðst hafa á
þessu sumri.
Tíu laxar veiddust fyrsta daginn í
Miðfjarðará en þar voru aðstæður
frekar erfiðar vegna vatnsskorts,
einkum í Vesturá, en Miðfjarðará
verður til úr Vesturá, Núpsá og
Austurá. Laxarnir veiddust flestir í
Austurá, að því er segir á veiðivefnum
votnogveidi.is, en þar eru fleiri djúpir
veiðistaðir en annars staðar á
svæðinu. Einnig voru vaktir styttar
úr 6 klst í 4 til að draga úr álagi.
Miðvikudaginn 19. höfðu 24 laxar
komið á land í Miðfjarðará, sá stærsti
97 cm.
Þá hófst veiði í Víðidalsá og
Vatnsdalsá á fimmtudag. Á
votnogveidi.is segir að líf hafi verið í
þeim báðum þó báðar séu sagðar illa
farnar vegna langvarandi þurrka. /FE
25
TBL
26. júní 2019
39. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 11
Brynjar Ægir og
Guðný Kristín matreiða
Grillað lamb með
ostasósu og
rabbarbarabaka
BLS. 10
Magnús Freyr Gíslason ræðir um
tónleikaferðalagið með
Stafrænn Hákon
„Það þarf ekki að maxa
allt og hætta svo ef
maður meikar það ekki“
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
BORGARFLÖT 19 550 SA ÐÁRKRÓKUR & 8 9 5 27
Meirapróf - Vinnuvélanámskeið
Ökunám - Endurmenntun
Birgir Örn Hreinsson
Ökukennari
S: 892-1790
bigh@simnet.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400
HEIMILISMATUR Í HÁDEGINU
Heitur matur kr. 1.490 | Súpa og brauð kr. 1.100
www.ommukaffi.is
Sextándu Smábæjaleikarnir
Leiknir 250 leikir
í blíðskaparveðri
Frjálsíþróttadeild Hvatar
Góður árangur á MÍ
Meistaramót Íslands 11-14 ára var
haldið á Laugardalsvelli dagana 22.
og 23. júní og voru um 230 krakkar,
víðsvegar af landinu, skráðir til leiks.
Frjálsíþróttadeild Hvatar átti þar tvo
keppendur, þær Aðalheiði
Ingvarsdóttur og Unni Borg Ólafsdóttur
sem kepptu í flokki 13 ára stúlkna.
HSK/Selfoss vann stigakeppnina með
133,5 stig en þau voru einnig með
fjölmennasta lið mótsins.
Aðalheiður varði Íslandsmeistartitil
sinn í spjótkasti á mótinu með kast upp
á 29,85 m. Hún keppti einnig í
langstökki, 100 m hlaupi og kúluvarpi.
Unnur Borg komst þrisvar á pall, varð í
öðru sæti í 600 m hlaupi á tímanum
1:55,92 mín. sem er persónuleg bæting
og í öðru sæti í 80 m grindahlaupi þar
sem hún hljóp á 14,80 sek. Þá kastaði
Unnur spjótinu 23,41 m og varð þar með
í þriðja sæti sem er einnig persónuleg
bæting. Unnur keppti einnig í 100 m
hlaupi, langstökki, hástökki og kúluvarpi.
/FE
Aðalheiður og Unnur Borg ánægðar með verðlaun sín. MYND: EBBA UNNSTEINSDÓTTIR