Feykir - 26.06.2019, Blaðsíða 3
Við óskum
Verzlun
Haraldar Júlíussonar
til hamingju með 100 árin
og Skagfirðingum góðrar
skemmtunar á Hofsós heim
og Lummudögum
Útibúin á Norðurlandi vestra www.lyfja.is
Borgarmýri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5433 www.stettarfelag.is
Borgarmýri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5170
Sími 410 4000 www.landsbankinn.is
Aðalgötu 19 Sauðárkróki
Skarðseyri 2 Sauðárkróki Sími 453 5581
Sími 444 7000 www.arionbanki.is
Hesteyri 1 Sauðárkrókur Sími 453 5923 dogun@dogun.is
Borgarmýri 1 Sauðárkrókur Sími 453 5433
Skarðseyri 5 550 Sauðárkróki Sími 455 3000 www.steinull.is
Ste
ypust
öð Skagafjarðar
SAUÐÁRKRÓKI
Skarðseyri 2 Sauðárkróki
Lummudagar á Sauðárkróki
Stuð og stemning um helgina
Á Sauðárkróki mun
lummuilmur væntanlega
svífa yfir götum um næstu
helgi, dagana 28. og 29. júní,
en þá verða Lummudagar
haldnir í ellefta skipti. Feykir
hafði samband við Steinunni
Gunnsteinsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Lummudaga
og bað hana að segja sér frá
Lummudögum.
Lummudagar eru bæjar og
héraðshátíð okkar Skag-
firðinga, hún skapar samstöðu
meðal íbúa og er markmiðið að
íbúar, brottfluttir og aðrir gestir
geri sér glaðan dag og skemmti
sér og öðrum. Hverfi og
byggðarlög fá úthlutað lita-
þema og eru hvött til þess að
skreyta hús, götur og
heimreiðar í þeim lit og er
tilgangurinn að hvetja fólk til
þess að gera sitt nærumhverfi
snyrtilegt og skemmtilegt. Lagt
er upp með að götugrill séu
haldin á föstudagskvöldinu.
Laugardagurinn verður aðal
viðburðadagurinn og fer
dagskráin að mestu fram í
gamla bænum á Sauðárkróki.
Hátíðin í ár verður frábær og
margt um að vera, á
föstudeginum er nýjung þar
sem fulltrúar helstu íþrótta-
greina í Skagafirði bjóða
krökkum á aldrinum 5 – 12 ára
að koma í heimsókn á milli
klukkan 16 og 18 og prufa.
Meðal annars verður
meistaraflokkur körfubolta-
deildarinnar á vellinum við
Árskóla tilbúinn að spila með
krökkunum, þjálfarar í
fótboltanum ætla að vera á
sparkvellinum með bolta og
fróðleik og Crossfit býður í
heimsókn á milli klukkan 17
og 18. Golfklúbburinn lætur
ekki sitt eftir liggja og býður
krökkum að grípa í kylfur og
prufa uppi á golfvelli, júdó
deildin verður í
íþróttahúsinu, klár í slaginn og
fulltrúar frá Hestamanna-
félaginu Skagfirðingi bjóða í
heimsókn í Reiðhöllina þar
sem hægt er að kynnast þeirra
starfi. Þannig að núna er um að
gera fyrir alla krakka að taka
rúntinn og prufa þar sem þetta
er frábært tækifæri til þess að
kynnast nýjum íþróttagreinum.
Dagskráin á laugardeginum
hefur verið af ýmsum toga en
hún verður milli klukkan 13 og
16. Má þar nefna götumarkað,
tónlistaratriði og leiktæki fyrir
börnin. Slökkviliðið mætir í
bæinn og ætlar að leyfa gestum
að skoða sinn búnað,
veltibíllinn mætir á svæðið,
þær stöllur Íris og Ágústa verða
í bænum með nýja tímaritið
sitt HVAÐ https://www.
facebook.com/hvadtimarit.
Sólon myndlistarfélag verður
með opna vinnustofu og
velunnarar Safnaðarheimilisins
á Sauðárkróki verða með basar
í Safnaðarheimilinu. Einnig
hafa fyrirtæki í bænum opnað
sínar dyr og oft boðið upp á
lummur með kaffinu. Ýmsir
viðburðir hafa verið haldnir á
þessum degi og því margt fólk
að gera sér glaðan dag. Þennan
sama dag verður einnig
afmælishátíð Verzlunar Har-
aldar Júlíussonar og því verður
mikið um að vera og almennt
stuð á hverju horni.
Svo verður stuð og stemning
föstudags- og laugardagskvöld
á KK restaurant og Grand-Inn
bar.
Ýtarleg dagskrá birtist á helstu
þjónustustöðum á Sauðárkróki,
á Facebooksíðu Lummudaga
https://www.facebook.com/
lummudagar og í auglýsingu í
Sjónhorninu.
Eigið yndislega helgi og verið
velkomin á Lummudaga. /FE
Þó eitthvað dropaði úr lofti á Lummudögum í fyrra var líf og fjör í gamla bænum á Sauðárkróki.
MYND AF FACEBOOKSÍÐU LUMMUDAGA.
Aldarafmæli Verzlunar Haraldar Júlíussonar
Norðurland vestra
Sameiginleg
lögreglusamþykkt
Sveitarfélögin sjö á Norðurlandi vestra
hafa um nokkurt skeið unnið að gerð
sameiginlegrar lögreglusamþykktar en
uppkast að henni var unnið í samráði við
lögreglustjóra og yfirfór stjórn SSNV hana
og samþykkti. Í kjölfarið var samþykktin
send sveitarfélögunum og lögreglustjóra til
athugasemda og þá til sveitarfélaganna að
nýju til staðfestingar. Er þetta í fyrsta sinn
sem gerð er lögreglusamþykkt fyrir allt
svæðið.
Meðal nýmæla í samþykktinni eru ákvæði um að
ekki megi gista við alfaraleið í byggð í tjöldum og
ferðavögnum. Verða sett upp skilti á þeim stöðum
sem algengt er að ferðamenn hafi náttstað þar
sem vísað er á næsta tjaldsvæði, ferðamanninum
til hægðarauka.
Samþykktin hefur þegar tekið gildi. /FE
25/2019 3