Feykir - 26.06.2019, Blaðsíða 2
33 bátar lögðu upp afla á Skagaströnd í
síðustu viku með tæp 140 tonn samanlagt.
Á Sauðárkróki var heildaraflinn tæp 454
tonn af 13 skipum og bátum og á Hofsósi
lönduðu þrír bátar 2,3 tonnum. Einn bátur
landaði á Hvammstanga tæpum átta
tonnum
Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi vestra
var 603.764 kíló. /FE
Aflatölur 16. – 22. júní 2019
Rifsnes SH 44 með tæp 60 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landbeitt lína 3.874
Alda HU 112 Línutrekt 4.394
Arndís HU 42 Handfæri 522
Auður HU 94 Handfæri 2.541
Beta GK 36 Lína 16.672
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 661
Blíðfari HU 52 Handfæri 2.044
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 1.950
Bragi Magg HU 70 Handfæri 1.794
Dagrún HU 121 Handfæri 265
Dóra HU 225 Handfæri 837
Geiri HU 69 Handfæri 565
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 836
Gyðjan HU 44 Handfæri 124
Hafdís HU 85 Handfæri 592
Hjalti HU 313 Handfæri 1.345
Hjördís HU 16 Handfæri 770
Húni HU 62 Handfæri 825
Ísak Örn HU 151 Handfæri 690
Jenny HU 40 Handfæri 584
Kambur HU 24 Handfæri 412
Kópur HU 118 Handfæri 462
Loftur HU 717 Handfæri 1.599
Lukka EA 777 Handfæri 810
Már HU 545 Handfæri 202
Óskráður ZZ 0 Grásleppunet 23
Rifsnes SH 44 Lína 58.840
Rúnar AK 77 Handfæri 770
Sandvík GK 73 Handfæri 539
Svalur HU 124 Handfæri 1.375
Sæunn HU 30 Handfæri 1.476
Víðir EA 423 Handfæri 828
Von GH 113 Lína 30.391
Alls á Skagaströnd 139.612
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 17.817
Drangey SK 2 Botnvarpa 213.988
Fannar SK 11 Landbeitt lína 1.317
Gjávík SK 20 Handfæri 185
Hafey SK 10 Handfæri 321
Kristín SK 77 Handfæri 878
Málmey SK 1 Botnvarpa 209.885
Maró SK 33 Handfæri 772
Már SK 90 Handfæri 2.958
Onni HU 36 Dragnót 5.003
Óskar SK 13 Handfæri 369
Vinur SK 22 Handfæri 113
Ösp SK 135 Handfæri 209
Alls á Sauðárkróki 453.815
HOFSÓS
Alfa SI 65 Handfæri 639
Skáley SK 32 Handfæri 902
Skotta SK 138 Handfæri 806
Alls á Hofsósi 2.347
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 7.990
Alls á Hvammstanga 7.990
Ef ég væri spurð hvaða dauði hlutur sem ég á væri mér
mikilvægastur þyrfti ég ekki að hugsa mig lengi um, alla
vega ekki í dag og alveg örugglega ekki næstu daga. Ég
upplifði það nefnilega um helgina að halda að ég væri að
tapa honum.
Nú má ekki rugla því saman
að vera mikilvægasti hluturinn
og sá sem mér þykir vænst
um. Það er alveg dagljóst í
mínum huga að sængin mín
er sá hlutur sem mér þykir
langsamlega vænst um af
öllum hlutum, því er ég löngu
búin að átta mig á. Hins vegar
var það í raun ekki fyrr en á
sunnudaginn var sem ég
rambaði á barmi örvæntingar
þar sem ég hélt að þvottavélin mín væri að bila.
Sunnudagsmorgunn: Þvottavélin er langt komin með
tveggja tíma prógramm þegar gaumljós E10 blikkar og eitt
píp heyrist– eitthvað virðist vera að vatnsinntaki. Jú, gæti
passað, það er ekki alveg skrúfað frá krananum. Því er
kippt í liðinn. Það dugir skammt þar sem hver mínúta hjá
vélinni góðu er á við 20 mínútur í rauntíma í Kirkjugötunni.
Það sem eftir er af deginum fer í að prófa að stilla á hin
ýmsu prógrömm og alltaf sama sagan vélin dælir inn
ótrúlegu magni af vatni til að bæta fyrri þorstann um
morguninn og ekkert virkar nema vatnslosun og vinding.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að gera eitthvað annað
endar undirrituð alltaf fljótlega í þvottahúsinu þar sem
hún reynir að hvetja vélina sína góðu til dáða en ekkert
dugir. Á meðan heldur óhreinatausfjallið í þvottahúsinu
áfram að hlaðast upp eins og vanalega, þar gilda greinilega
ekki sömu lögmál og úti í náttúrunni þar sem ytri ölf, eins
og regn og vindar, sjá til þess að fjöllin lækka smám saman,
nei, í þvottahúsinu sjá ytri öfl um að hækka fjallið.
Örvænting húsmóðurinnar vex, húsbóndinn telur öruggt
að heilinn sé farinn og nú þurfi að kaupa nýja vél,
hundraðþúsund kall horfinn þar, takk fyrir!
Til allrar lukku var mánudagurinn þó ekki til mæðu að
þessu sinni. Snjall rafvirki lét sér detta í hug hvað gæti
verið að og annar snjall þúsundþjalasmiður sá um að
skipta um einn lítinn vír sem valdið höfðu andlegu
uppnámi og hámarksstreitu hjá konu sem eitt sinn þurfti
að fara með þvottinn sinn í ruslapoka með strætó á milli
bæjarhluta í Reykjavík og gæti ekki hugsað sér lífið án
þvottavélar í dag.
Fríða Eyjólfsdóttir
blaðamaður
LEIÐARI
Á barmi örvæntingar
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Eysteinn Ívar Guðbrandsson, bladamadur@feykir.is
Áskriftarverð: 555 kr. hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 685 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Verzlun Haraldar Júlíussonar, sem í daglegu
tali Skagfirðinga er oftast kölluð Verslun
Bjarna Har. eða bara Bjarni Har., fagnar
aldar afmæli um þessar mundir. Í tilefni
þess verður blásið til afmælisfagnaðar við
verslunina næsta laugardag, 29. júní.
Verslun Haraldar Júlíussonar er með allra elstu
krambúðum landsins en hún hefur starfað óslitið
frá 1919 og er að mestu óbreytt frá 1930 þegar
húsið sem hún er í nú var reist. Þar hóf Haraldur
Júlíusson verslunarrekstur og rak hann búðina
ásamt konu sinni, Guðrúnu Bjarnadóttur, þar til
hann féll frá árið 1973 en þá tók Bjarni, sonur hans,
við rekstrinum.
Í tilefni af afmælinu verður dagskrá frá klukkan 13
til 16 á laugardaginn og vonast fjölskyldan til að sjá
þar sem flesta viðskiptavini og kunningja, jafnt
heimamenn sem brottflutta. Í auglýsingu frá
versluninni segir að í boði verði skagfirskur
tónlistarflutningur undir stjórn Stefáns R.
Gíslasonar, veitingar og ávörp en umfram allt verði
þó góðra vina fundur þar sem fólk eigi saman
ánægjulega stund undir skagfirskum bláhimni, á
kunnuglegum slóðum við verslunina sem verður
opin meðan á hátíðahöldunum stendur.
Bjarni og Dísa, kona hans, biðja þess í auglýsingunni
að fólk íþyngi þeim ekki með gjöfum og blómum
en þeim sem vilja láta eitthvað af hendi rakna er
bent á Sauðárkrókskirkju, reikningsnúmer
0310-22-000980, kt. 560269-7659. /FE
Góðra vina fundur undir
skagfirskum bláhimni
Aldarafmæli Verzlunar Haraldar Júlíussonar
Verslun Haraldar Júlíussonar. MYND: FE
2 25/2019