Feykir


Feykir - 26.06.2019, Blaðsíða 3

Feykir - 26.06.2019, Blaðsíða 3
Við óskum Verzlun Haraldar Júlíussonar til hamingju með 100 árin og Skagfirðingum góðrar skemmtunar á Hofsós heim og Lummudögum Útibúin á Norðurlandi vestra www.lyfja.is Borgarmýri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5433 www.stettarfelag.is Borgarmýri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5170 Sími 410 4000 www.landsbankinn.is Aðalgötu 19 Sauðárkróki Skarðseyri 2 Sauðárkróki Sími 453 5581 Sími 444 7000 www.arionbanki.is Hesteyri 1 Sauðárkrókur Sími 453 5923 dogun@dogun.is Borgarmýri 1 Sauðárkrókur Sími 453 5433 Skarðseyri 5 550 Sauðárkróki Sími 455 3000 www.steinull.is Ste ypust öð Skagafjarðar SAUÐÁRKRÓKI Skarðseyri 2 Sauðárkróki Lummudagar á Sauðárkróki Stuð og stemning um helgina Á Sauðárkróki mun lummuilmur væntanlega svífa yfir götum um næstu helgi, dagana 28. og 29. júní, en þá verða Lummudagar haldnir í ellefta skipti. Feykir hafði samband við Steinunni Gunnsteinsdóttur, fram- kvæmdastjóra Lummudaga og bað hana að segja sér frá Lummudögum. Lummudagar eru bæjar og héraðshátíð okkar Skag- firðinga, hún skapar samstöðu meðal íbúa og er markmiðið að íbúar, brottfluttir og aðrir gestir geri sér glaðan dag og skemmti sér og öðrum. Hverfi og byggðarlög fá úthlutað lita- þema og eru hvött til þess að skreyta hús, götur og heimreiðar í þeim lit og er tilgangurinn að hvetja fólk til þess að gera sitt nærumhverfi snyrtilegt og skemmtilegt. Lagt er upp með að götugrill séu haldin á föstudagskvöldinu. Laugardagurinn verður aðal viðburðadagurinn og fer dagskráin að mestu fram í gamla bænum á Sauðárkróki. Hátíðin í ár verður frábær og margt um að vera, á föstudeginum er nýjung þar sem fulltrúar helstu íþrótta- greina í Skagafirði bjóða krökkum á aldrinum 5 – 12 ára að koma í heimsókn á milli klukkan 16 og 18 og prufa. Meðal annars verður meistaraflokkur körfubolta- deildarinnar á vellinum við Árskóla tilbúinn að spila með krökkunum, þjálfarar í fótboltanum ætla að vera á sparkvellinum með bolta og fróðleik og Crossfit býður í heimsókn á milli klukkan 17 og 18. Golfklúbburinn lætur ekki sitt eftir liggja og býður krökkum að grípa í kylfur og prufa uppi á golfvelli, júdó deildin verður í íþróttahúsinu, klár í slaginn og fulltrúar frá Hestamanna- félaginu Skagfirðingi bjóða í heimsókn í Reiðhöllina þar sem hægt er að kynnast þeirra starfi. Þannig að núna er um að gera fyrir alla krakka að taka rúntinn og prufa þar sem þetta er frábært tækifæri til þess að kynnast nýjum íþróttagreinum. Dagskráin á laugardeginum hefur verið af ýmsum toga en hún verður milli klukkan 13 og 16. Má þar nefna götumarkað, tónlistaratriði og leiktæki fyrir börnin. Slökkviliðið mætir í bæinn og ætlar að leyfa gestum að skoða sinn búnað, veltibíllinn mætir á svæðið, þær stöllur Íris og Ágústa verða í bænum með nýja tímaritið sitt HVAÐ https://www. facebook.com/hvadtimarit. Sólon myndlistarfélag verður með opna vinnustofu og velunnarar Safnaðarheimilisins á Sauðárkróki verða með basar í Safnaðarheimilinu. Einnig hafa fyrirtæki í bænum opnað sínar dyr og oft boðið upp á lummur með kaffinu. Ýmsir viðburðir hafa verið haldnir á þessum degi og því margt fólk að gera sér glaðan dag. Þennan sama dag verður einnig afmælishátíð Verzlunar Har- aldar Júlíussonar og því verður mikið um að vera og almennt stuð á hverju horni. Svo verður stuð og stemning föstudags- og laugardagskvöld á KK restaurant og Grand-Inn bar. Ýtarleg dagskrá birtist á helstu þjónustustöðum á Sauðárkróki, á Facebooksíðu Lummudaga https://www.facebook.com/ lummudagar og í auglýsingu í Sjónhorninu. Eigið yndislega helgi og verið velkomin á Lummudaga. /FE Þó eitthvað dropaði úr lofti á Lummudögum í fyrra var líf og fjör í gamla bænum á Sauðárkróki. MYND AF FACEBOOKSÍÐU LUMMUDAGA. Aldarafmæli Verzlunar Haraldar Júlíussonar Norðurland vestra Sameiginleg lögreglusamþykkt Sveitarfélögin sjö á Norðurlandi vestra hafa um nokkurt skeið unnið að gerð sameiginlegrar lögreglusamþykktar en uppkast að henni var unnið í samráði við lögreglustjóra og yfirfór stjórn SSNV hana og samþykkti. Í kjölfarið var samþykktin send sveitarfélögunum og lögreglustjóra til athugasemda og þá til sveitarfélaganna að nýju til staðfestingar. Er þetta í fyrsta sinn sem gerð er lögreglusamþykkt fyrir allt svæðið. Meðal nýmæla í samþykktinni eru ákvæði um að ekki megi gista við alfaraleið í byggð í tjöldum og ferðavögnum. Verða sett upp skilti á þeim stöðum sem algengt er að ferðamenn hafi náttstað þar sem vísað er á næsta tjaldsvæði, ferðamanninum til hægðarauka. Samþykktin hefur þegar tekið gildi. /FE 25/2019 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.