Feykir


Feykir - 26.06.2019, Page 5

Feykir - 26.06.2019, Page 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is Inkasso deild kvenna Góður útisigur hjá Tindastólsstúlkum í Kópavogi Hjólreiðar Úrslit á Íslandsmeistara- mótinu í götuhjólreiðum Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum var haldið sunnudaginn 23. júní, og tók fríður flokkur keppenda þátt í mótinu sem háð var í Skagafirði. Fyrstu keppendurnir voru ræstir frá Sauðárkróki klukkan 7:30 um morguninn og lögðu þeir þátttakendur sem lengst fóru að baki 124 km áður en komið var í mark. Birkir Snær Ingvason fór með sigur af hólmi í götuhjólreiðum karla og náði þar með Íslandsmeistara- titlinum af Ingvari Ómarssyni sem vann titilinn í fyrra. Birkir kom í mark á tímanum 03:15:27, Ingvar varð í öðru sæti, 52 sekúndum á eftir og Hafsteinn Ægir Geirsson í því þriðja, einni mínútu á eftir Birki. Í kvennaflokki varði Ágústa Edda Björnsdóttir titil sinn sem Íslandsmeistari og kom í mark á tímanum 03:00:34, Bríet Kristý Gunnarsdóttir var 2:31 á eftir henni og Hafdís Sigurðardóttir í þriðja sæti 3:49 á eftir. /FE Mynd af hjólagörpum. MYND TEKIN AF HJOLAFRETTIR.IS 2. deild karla Tap hjá Tindastóli á Selfossi Selfoss og Tindastóll áttust við í áttundu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu fimmtudagskvöldið 20. júní. Leikurinn fór fram á JÁVERK vellinum á Selfossi. Fyrir leikinn var Selfoss í þriðja sæti með þrettán stig en Tindastóll á botninum með eitt stig. Leikurinn var mjög jafn í byrjun en Selfoss var einu skrefi á undan Stólunum en inn á milli kom gott spil og góðar sóknir hjá Tindastól. Á 10. mínútu náði Tindastóll fínu spili og átti Konni mjög fast og gott skot meðfram jörðinni en Stefán Þór, markvörður Selfoss, náði að skutla sér í boltann og verja skotið. Mínútu síðar fékk Tindastóll hornspyrnu vinstra megin við mark Selfoss, boltanum var skallað í burtu en ekki nógu langt því Benni fékk boltann hægra megin rétt fyrir utan vítateig og náði góðum bolta inn í. Boltanum var skallað í burtu en ekki nógu langt því Alvaro Igualada náði frákastinu og náði góðu skoti á mark Selfoss en Stefán Þór var mættur og varði skot hans. Á 17. mínútu leiksins fékk Selfoss aukaspyrnu á hættulegum stað, rétt fyrir utan vítateig Tindastóls. Það var Þór Llorens Þórðarson sem tók spyrnuna sem uppskar mark hjá Selfossi. Staðan 1-0 fyrir Selfoss eftir 18. mínútur. Eftir mark Selfoss voru Stólarnir líklegri að jafna heldur en Selfoss að bæta öðru markinu við en á 39. mínútu náði Hrvoje Tokic góðum skalla á mark Tindastóls sem Faerber réði ekki við og inn fór boltinn, staðan 2-0 í hálfleik. Tindastóll byrjaði seinni hálfleikinn vel, því þegar aðeins tvær mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum náði Alvaro Igualada að minnka muninn fyrir Tindastól eftir geggjaða sendingu frá Konna og staðan 2-1 eftir 47 mínútur. Heimamenn voru samt ekki hættir því á 63. mínútu skoraði Kenan Turudija mark fyrir Selfoss og staðan orðinn 3-1. Níu mínútum seinna náði Selfoss einfaldlega að klára leikinn þegar þeir bættu við fjórða markinu og var það Jökull Hermannsson sem skoraði það. Tindastóll náði hinsvegar að klóra í bakkann á 90. mínútu með marki frá Benna eftir frábæra sendingu frá Jóhanni Daða. Fleiri urðu mörkin ekki og niðurstaðan 4-2 sigur Selfoss. /EÍG Opna Fiskmarkaðsmótið, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, var haldið á Háagerðisvelli á Skagaströnd laugardaginn 22. júní. Alls voru þátttakendur 26 talsins sem spiluðu 18 holur í afbragðsveðri. Jón Jóhannsson úr Golfklúbbunum ÓS sigraði í punktakeppni með og án forgjafar. Úrslit urðu sem hér segir: Punktakeppni með forgjöf: 1. Jón Jóhannsson GÓS 2. Ingibergur Guðmundsson GSK 3. Ásmundur Baldvinsson GSS Punktakeppni án forgjafar: 1. Jón Jóhannsson GÓS 2. Ólafur Árni Þorbergsson GSS 3. Árný Lilja Árnadóttir GSS /FRÉTTATILKYNNING Konni fyrirliði Tindastóls. MYND: ÓAB 4. deild karla Öflugur sigur Kormáks/Hvatar á ÍH í 4. deild karla Kormákur/Hvöt (K/H) gerðu góða ferð suður í Hafnarfjörð þegar þeir unnu 2-0 sigur á ÍH í 4. deild karla síðastliðinn föstudag. Markalaust var í hálfleik en mörkin létu sjá sig í seinni hálfleiknum en það var ekki fyrr en á 74. mínútu þegar Sigurður Bjarni náði að koma K/H yfir í leiknum. Fjórum mínútum síðar fékk Eggert Georg leikmaður ÍH að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt í leiðinni. Á 83. mínútu varð Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Króli, fyrir því óláni að skora sjálfsmark þannig að við getum orðað það þannig að þetta mark var alveg BOBA Bomba. Þar með voru úrslitin ráðin, 2-0 sigur K/H. /EÍG Golf Jón Jóhannsson GÓS sigraði á Opna Fiskmarkaðsmótinu á Skagaströnd Á föstudagskvöldið mætti Tindastóll liði Augnabliks í Fífunni í 5. Umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Fyrir leikinn voru bæði lið með sex stig og áttu möguleika að ná fjórða sætinu í deildinni. Leikurinn bauð upp á mikla baráttu og ætluðu bæði lið að hirða öll stigin þrjú. Tindastóll byrjaði að stjórna leiknum vel en síðan náði Augnablik að snúa blaðinu við og náði Tindastóll að verjast vel. Bæði lið voru að skapa sér góð færi en náðu ekki að nýta sér þau. En það var ekki fyrr en á 31. mínútu þegar Tindastóll náði góðu spili upp völlinn og endaði boltinn hjá Murielle Tiernan sem skoraði eftir frábæra sendingu frá Laufeyju Hörpu og staðan 1-0 fyrir Tindastól í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var, ef við getum orðað það þannig, bara alveg eins mikil barátta en ekki voru gerð fleiri mörk í þessum leik og þar með 1-0 sigur Tindastóls. /EÍG Frá mótinu á Háagerðisvelli. MYND AÐSEND Tindastólsstelpur eftir leikinn. MYND: ÓAB 25/2019 5

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.