Fréttablaðið - 23.12.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 7 0 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 3 . D E S E M B E R 2 0 2 0
NEYÐAR
PAKKATAKKINN!
Engar áhyggjur, við hjálpum þér!
OPIÐ 23
HJÁLP! Það er Þorláks-
messa og ég veit ekki
hvað ég á að gefa pabba!
STJÓRNMÁL Fylgi ríkisstjórnar
f lokkanna dalar um 0,4 prósent,
samkvæmt nýrri könnun sem
Zenter rannsóknir unnu fyrir
Fréttablaðið.
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa nú
40,4 prósenta fylgi en höfðu 40,8
prósent í síðustu könnun í septem
ber.
Framsóknarf lokkurinn missir
rúmlega hálft prósent og mælist
nú með 7,3. Sjálfstæðisflokkurinn
dalar einnig lítillega og mælist með
22,9 prósenta fylgi. Vinstri Græn
vinna tap ríkisstjórnarinnar þó að
einhverju leyti upp, eða um hálft
prósent. Stendur fylgi þeirra nú í
10,2 prósentum.
Miðflokkurinn dalar um 0,8 pró
sent. Mælist f lokkurinn nú aðeins
með 6,7 prósenta fylgi og hefur
ekki verið lægri í könnunum síðan
í mars árið 2019, eða um það leyti
sem siðanefnd Alþingis var að taka
Klausturmálið fyrir.
Flokkur fólksins stendur nokk
urn veginn í stað með 4,7 prósent
og Sósíalistar dala um hálft prósent,
nú með 3,3. Gengi þetta eftir í kosn
ingum næði hvorugur f lokkurinn
inn jöfnunarmanni.
Þeir þrír f lokkar sem hafa verið
nokkuð samstíga í stjórnarand
stöðu, Samfylking, Viðreisn og
Píratar, bæta við sig í heildina.
Höfðu 41,1 prósent í september en
42,8 nú. Píratar mælast nú næst
stærsti f lokkurinn með 17 prósent,
bæta við sig rúmum 3 prósentu
stigum. Samfylking dalar um 1,6 og
mælist með 15,6 prósent. Fylgi Við
reisnar eykst lítillega og stendur nú
í 10,2 prósentum.
Í yngsta aldurshópnum, 18 til 24
ára, mælist Sjálfstæðisflokkurinn
stærstur með 32 prósenta fylgi.
Samfylking og Vinstri græn eru
einnig vinsæl meðal yngstu kjós
endanna, með 19 prósent hvor.
Enginn svarenda í þeim aldurshópi
sagðist vilja kjósa Framsóknar
flokk, Miðflokk, Flokk fólksins eða
Sósíalista.
Píratar mælast stærsti f lokkur
landsins í tveimur aldurshópunum,
það er 25 til 34 ára og 35 til 44 ára.
Framsóknarflokkur, Miðflokkur og
Sósíalistaflokkur sækja hins vegar
mest fylgi til fólks á miðjum aldri,
45 til 54 ára.
„Við höfum mælt fyrir mála
miðlunum, til dæmis í fæðingar
orlofsmálinu, og verið á varðbergi
gagnvart óhóf legum inngripum
í að fólk fái að velja eigin leiðir,“
segir Smári McCarthy þingmaður
Pírata, aðspurður um hvers vegna
flokkurinn sé að ná til fólks á barn
eignaraldri. Þungt sé yfir í efna
hagslífinu og Píratar hafi beitt sér
fyrir að stuðningur hins opinbera
fari ekki í of þröngan farveg.
Smári vill ekki nefna neina
ákveðna flokka sem Píratar kynnu
að mynda ríkisstjórn með, yrði það
möguleiki næsta haust. „Ég verð
ekki með í næstu kosningum en
það er eðli Pírata að leita eftir frjáls
lyndum og framsýnum flokkum til
samstarfs,“ segir hann.
Könnunin var send á könnunar
hóp Zenter rannsókna og svartími
var frá 11. til 19. desember. Í hópnum
voru 2.500 einstaklingar á Íslandi,
átján ára og eldri og voru svör þeirra
vegin eftir kyni, aldri og búsetu.
Svarhlutfall var 52,8 prósent. – khg
Lægsta mæling
Miðflokks frá
Klausturmáli
Fylgi Miðflokksins hefur verið á niðurleið í haust
og hefur ekki mælst lægra síðan Klausturmálið
var í hámæli. Ríkisstjórnarflokkarnir dala eilítið
en þrír stjórnarandstöðuflokkanna bæta við sig.
Píratar eru vinsælastir hjá fólki á barneignaraldri.
✿ Fylgi flokkanna samkvæmt könnunum Fréttablaðsins
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
Sjálfstæðis-
flokkurinn
Sam-
fylkingin
Píratar VG Viðreisn Framsóknar-
flokkurinn
Mið-
flokkurinn
Flokkur
fólksins
Sósíalista-
flokkurinn
n Desember 2020 n September 2020 n Niðurstöður kosninga 2017
Ég verð ekki með í
næstu kosningum
en það er eðli Pírata að leita
eftir frjálslyndum og fram-
sýnum flokkum
til samstarfs.
Smári McCarthy,
þingmaður Pírata
Meira á
frettabladid.is
„Það var mjög gott að fá þau hingað og fyrir þau að sjá þetta með eigin augum,“ segir Björt
Sig finnsdóttir, íbúi á Seyðisfirði, um heimsókn ráðherra í gær sem kynntu sér aðstæður eftir
skriðuföllin. Björt, sem sést hér faðma forsætisráðherra, upplifði mikinn ótta þegar skriða féll
rétt við hús foreldra hennar. Inni í húsinu voru bræður hennar og faðir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI