Fréttablaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 20
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, Sigurðar Haukdal sem lést föstudaginn 6. nóvember síðastliðinn. Hólmfríður Haukdal Eðvald Smári Ragnarsson Benedikta Haukdal Runólfur Maack Anna Björg Haukdal Gísli Gíslason barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Róbert Ólafur Grétar McKee kennari, Klukkubergi 18, Hafnarfirði, andaðist fimmtudaginn 17. desember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 7. janúar kl. 13.00. Vegna aðstæðna verður eingöngu nánasta fjölskylda viðstödd. Hægt verður að nálgast streymi á mbl.is/andlat Helga Margrét Sveinsdóttir Anton Sveinn McKee Karitas Irma McKee Högni Grétar Kristjánsson Arnar Róbertsson Marín Ólafsdóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Valdimar Sigurður Gunnarsson Vallargötu 25, Keflavík, lést á Hrafnistu Nesvöllum, laugardaginn 19. desember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 29. desember kl. 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á facebook.com/groups/utforvaldimars/ Sæmundur Valdimarsson Herdís Óskarsdóttir Gunnar B. Valdimarsson Sigríður H. Guðmundsdóttir Sveinn Valdimarsson Brynja Eiríksdóttir Rúnar Gísli Valdimarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Aðalheiður Benedikta Ormsdóttir lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar laugardaginn 19. desember. Hanna Björg Halldórsdóttir Jón Ormur Halldórsson Auður Edda Jökulsdóttir Ingibjörg Halldórsdóttir Hermann Jónasson Halldór Þormar Halldórsson Hanna Björnsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, Dóra Lydía Haraldsdóttir Geitlandi 3, Reykjavík, varð bráðkvödd á heimili sínu 20. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Arinbjörn Árnason Joanne Árnason Pálína Árnadóttir Margrét Árnadóttir Þórður Mar Sigurðsson Haraldur Haraldsson Páll Haraldsson Aron James og Joshua Ben Ástkær eiginmaður minn , faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, Elís Jón Sæmundsson Austurvegi 5, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 20. desember. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, þriðjudaginn 5. janúar kl. 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Sólveig Árnadóttir Ólafur Ragnar Elísson Hrafnhildur Bjarnadóttir Sæmundur Bjarni Elísson Kristinn Sigurður Jónsson Karen Mjöll Elísdóttir Rúnar Þór Björgvinsson Vilborg Elísdóttir Ómar Björn Jensson Árni Sigurðsson Guðrún Stefánsdóttir Sigurlaug Sigurðardóttir Halldór Einarsson Gunnar Sigurðsson Anna Guðmundsdóttir Kristján Sigurðsson Rannveig Böðvarsdóttir Viðar Smári Sigurðsson Sigurbjörg Erlingsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jórunn Fanney Óskarsdóttir áður Hringbraut 65, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, laugardaginn 19. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 13.00. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Sigurður P. Sigmundsson Valgerður Heimisdóttir Einar P. Guðmundsson Lára Halldórsdóttir Óskar H. Guðmundsson Berglind Hallmarsdóttir Björgvin S. Guðmundsson Þóra Hallgrímsdóttir Sigrún B. Guðmundsdóttir Elín Þ. Guðmundsdóttir Guðmundur F. Guðmundsson Kolbrún Magnúsdóttir Klara G. Guðmundsdóttir Miles Boarder barnabörn og barnabarnabörn. Að fá að lifa þennan hörm-ungaratburð af er mikil gæfa og ég hef alltaf getað horft á jákvæða þáttinn,“ segir Páll Stefánsson f lugmaður þegar hann fer í huganum yfir f lugslys sem hann lenti í árið 1970 í Færeyjum. Frá því slysi segir á glöggan hátt í bókinni Martröð í Mykinesi eftir þá Grækaris Djurhuus Magnussen og Magnús Þór Hafsteins- son, sem Ugla gefur út. Mörg kraftaverk unnin Páll var 28 ára aðstoðarf lugmaður vélarinnar Fokker Friendship TF-FIL sem brotlenti í grýttri fjallshlíð í þoku- sudda og hvassviðri. Hann upplifði að Bjarni Jensson flugstjóri lést við hliðina á honum. „Það var mjög dramatískt, ég missti meðvitund en fékk hana aftur þegar færeyski yfirdýralæknirinn, Dán- jal J. Bærentsen, var að hjálpa mér út og mörgum öðrum. Hann hefur örugg- lega bjargað lífi mínu því hann batt um höfuð mitt, en ég hafði fengið höfuðhögg og skurð sem náði frá hægra gagnauga upp á höfuð og blæddi mikið úr. Það er því margt í þoku fyrir mér sem gerðist þennan dag, annað en sú hamingjutil- finning sem ég fann fyrir þegar ég kom úr brakinu og sá fólkið sem hafði komist lífs af, ég fæ enn kökk í hálsinn þegar ég hugsa um hana. Enda kallaði ég nokkr- um sinnum: „Við erum á lífi.““ Vélin var á um 300 kílómetra hraða þegar hún lenti og stoppaði á 80 metr- um. Átta dóu samstundis, að sögn Páls. „Það er með ólíkindum að allir hinir 26 skyldu halda lífi og björgunarafrekið sem Færeyingar og f leiri unnu þarna við hrikalegar aðstæður er magnað. Þrír kílómetrar voru frá brakinu niður að byggðinni í Mykinesi og í mörgum til- fellum gekk fólkið þá leið í fylgd heima- manna, aðrir voru bornir. Einhverjir sem lentu í slysinu báru hina sem voru ófærir um að ganga sjálfir, sumir fóru f leiri ferðir. Það voru mörg kraftaverk unnin og ég hef oft fengið kökk í hálsinn þegar ég hugsa um góðu þættina.“ Fljótur að ná sér Ekki liðu nema fjórir og hálfur mánuður þar til Páll var farinn að fljúga aftur. „Ég var lánsamur, fékk góða aðhlynningu og var fljótur að ná mér. Fyrir utan sárið á höfðinu var ég kjálkabrotinn, með brotn- ar tennur, sprungur í hryggjarliðum og ýmislegt minniháttar. Auðvitað voru átök í sálinni en ég hef alltaf getað rætt um þetta slys við ættingja, vini og kollega og segi enn við sjálfan mig ef mér finnst eitthvað hafa gengið verr en ég vildi hjá mér: Palli, vertu ekki með þennan aum- ingjaskap. Þú vannst einu sinni stærsta lottóvinning sem hægt er að vinna – lífið sjálft – og haltu svo bara áfram.“ Oft síðan kveðst Páll hafa flogið með flugfreyjunum tveimur sem voru með honum í þessu f lugi, Hrafnhildi Ólafs- dóttur og Valgerði Jónsdóttur. „Það myndaðist líka mikill og góður vin- skapur milli fjölskyldu Bjarna heitins Jenssonar og minnar. Það er yndislegt fólk. Ekkjan hans heitir Halldóra eins og konan mín. Mín var ófrísk af dóttur okkar þegar slysið varð en hún kom til Þórshafnar á þriðja degi og var hjá mér tímann sem ég var þar.“ Á sjúkrahúsinu kveðst Páll hafa velt mörgu fyrir sér: „Við vorum 26 sem lifðum af þennan atburð 26. september, ég er fæddur 26. júní og giftist Höddu 26. apríl. Flugskírteinið mitt er ekki númer 26, því Dagfinnur Stefánsson, sem lifði af slysið á Vatnajökli átti það, en mitt er númer 826 og ég hugsaði: Þessir tveir síðustu stafir eru gæfutalan mín.“ gun@frettabladid.is Stóri lottóvinningurinn Páll Stefánsson flugmaður var meðal þeirra 26 sem lifðu af er Fokker TF -FIL brotlenti fyrir 50 árum í Færeyjum. Hann fær kökk í hálsinn við að rifja upp góðu þættina. „Ég var lánsamur, fékk góða aðhlynningu og var fljótur að ná mér,“ segir Páll. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Björgunarafrekið sem Færey- ingar og fleiri unnu þarna við hrikalegar aðstæður er magnað. 2 3 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.