Fréttablaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 16
Ólafía Hrönn hefur ánægju af því að föndra en aðspurð segir hún að það sé voða­ lega misjafnt hvort hún föndri eitthvað fyrir jólin. „Stundum er maður á kafi í vinnu, það er að segja ef maður tekur þátt í jólasýn­ ingunni hjá Þjóðleikhúsinu. Það er líka misjafnt hvað föndurástríðan er sterk í mér. Ég hef örlítið verið að hekla jólakúlur og get alveg gert það í vinnunni þegar verið er að greiða mér og farða, þá finnst mér voðalega gott að hafa eitthvað að gera.“ Klósettrúllur notaðar í diskamottur Í ár voru servíettuhringir aðal jólaföndrið hjá Ólafíu Hrönn. „Ég sá fallega diskamottu í Byko, rauða og glansandi, svo jólalega. Ég fjár­ festi í henni og klippti klósettrúllu eftir henni endilangri og límdi svo diskamottuna við og setti hringinn saman aftur en hafði hann minni. Eins gerði ég þetta án klósettrúllu, skreytti þetta með pakkaböndum á sumum en mér finnst líka fallegt að hafa þetta bara einfalt. Ég held að ég hafi fengið þarna 30 servíettu­ hringi fyrir 450 krónur. Ég er afar stolt að segja frá jólaskrautinu sem ég útbjó í ár, ég heklaði yfir krukku­ lok og þá kemur þyngd í jóladjásnið og saumaði svo í með gylltu pakka­ bandi.“ Ólafía Hrönn segist ekki hafa haft mikið fyrir jólunum gegnum tíðina. „Ég geri þetta allt, en mér finnst þetta ekki svo mikið mál, það tekur enga stund að setja upp jólin. Aðventukransinn er aðeins fjögur kubbakerti á bakka og svo set ég fallega jólahluti í miðjuna. Ég hef aldrei bakað fyrir jólin, kaupi deig og set inn í ofninn fyrir barna­ börnin, þótt það sé bara til að fá jólakökuilminn í hús. Ég er jafnframt afar stolt af heimatilbúna jólatrénu sem ég bjó til. Miðjan á því er pappírsrúlla sem kemur innan úr pappírsdúkarúll­ um. Greinarnar eru sushi­prjónar. Ég var eitt sinn á leikferð og leik­ hópurinn fór út að borða og fékk sér sushi og þá greip ég tækifærið og hirti alla sushi­prjónana, bingó, þá var komið jólatré. Þetta jólatré er sérstaklega sniðugt á milli hátíða því þá dreg ég alla prjónana úr og set í fallegan poka og kem því fyrir inni í hólkinum. Alveg dýrðlegt,“ segir Ólafía Hrönn og ótrúlega hamingjusöm með útsjónarsemina í sér. Skemmtiatriði besta jólagjöfin „Mér finnst skemmtilegast að hitta í mark með jólagjöf, sjá bæði undrun og þakklæti í senn, það er afskaplega gaman og gefandi. Svo er náttúrulega ávallt skemmti­ legast að sjá minnstu börnin taka þátt á jólunum, það er bara frábært skemmtiatriði.“ Ólafía Hrönn heldur fast í jóla­ hefðir. „Ég fer ávallt í kirkju og börnin með, þó að eitthvað hafi verið um skróp síðustu ár. Mér finnst það hátíðlegt og síðan er maður orðinn glorsoltinn eftir messu og þá er notalegt að setjast til borðs. Ég sagði oft við krakkana mína að á jólunum eigi maður að haga sér vel og hugsa eins og Jesú, fyrirgefa og vera umburðarlyndur, draga fram þá kosti sem gott kristi­ legt uppeldi hefur kennt.“ Jólarauðkálið er stórmerkilegt Ólafía Hrönn deilir tveimur upp­ skriftum með okkur sem henni finnst ótrúlega skemmtilegt að gera. „Mér fannst alltaf svo merki­ legt þegar ég heyrði að fólk var að útbúa sitt sérstaka jólarauðkál. Vá, svakalega er þetta myndarlegt fólk, hugsaði ég. Ég elska rauðkál og geri mitt rauðkál á svo ein­ faldan hátt að það er varla hægt að segja frá því. Fyrir ketó fólk þá er þetta sniðugt. Skera niður rauðkál og setja á pönnu þannig að það hylji alla pönnuna. Hella vatni yfir pönnuna, þannig að vatnsyfir­ borðið liggi í sömu hæð og rauð­ kálið og sjóða það þar til rauðkálið er búið að drekka í sig vatnið. Næst sletti ég rauðvínsediki yfir, einum til tveimur töppum. Að lokum strái ég einni til tveimur mat­ skeiðum af stevíusykri og hræri í þessu og bingó, tilbúið.“ Brauð að hætti Lollu 100 g sólblómafræ 100 g graskersfræ 50 g brokkolí 4 egg 1 tsk. vínsteinslyftiduft Byrjið á því að hita ofninn í 180°C með blæstri. Næsta skref er að setja sólblómafræ og 70 g af graskersfræjum í matvinnsluvél. Maukið eins vel og hægt er. Setjið brokkolíið út í ásamt maukinu og bætið eggjum út í. Hrærið vel og setjið síðan vínsteinslyftiduftið út í og eina teskeið af salti og hrærið stutt. Hellið síðan þessum 30 g af graskersfræjunum sem eftir eru yfir eða bætið í deigið eftir smekk, bæði fínt. Það má setja deigið í múffuform eða brauðform og setja síðan í ofninn og baka vel. Þið sjáið þegar brauðið er að byrja að brenna, þá er það tilbúið. „Mér finnst alla jafna mjög gaman að elda en er ekki alveg eins fær í bakstri.“ Gleðileg jól. Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Jólatréð er óvenjulegt en það er búið til úr pappahólk og sushi- prjónum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Meira að segja rósirnar á jólaborð- inu hefur Lolla föndrað af snilld. Jólakökur á borðum hjá Lollu. Jólaskrautið þarf ekki að vera flókið eins og sjá má hér. Það er ekkert verið að flækja málin. Jólaborðið með rauðum dúk og ýmsu handunnu skrauti. Hér má sjá jólatréð í nærmynd. Heldur óvenjulegt. Sjöfn Þórðardóttir sjofn@torg.is Matarást Sjafnar Framhald af forsíðu ➛ Opið til 23 í kvöld GLEÐILEGA HÁTÍÐ Verslun | Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | 588 0488 | Vefverslun á Feldur.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.