Fréttablaðið - 23.12.2020, Blaðsíða 11
Ef Varsjá heldur áfram
að fylgja þessum farvegi
í blindni mun hún enda,
formlega eða lagalega, utan
Evrópusambandsins.
Flokkurinn Lög og réttlæti hefur í þrígang notfært sér kosninga-sigra sína til að kljúfa pólska
samfélagið. Það gerir hann með ein-
róma andstöðu ríkisstjórnarinnar
við allar tillögur þar sem minnst er
á „kyn“ eða „kynjajafnrétti“. And-
stöðu sinni við það sem þau kalla
„kynjahugmyndafræði“. Því miður
kom það engum á óvart þegar Pól-
land beitti neitunarvaldi sínu til að
koma í veg fyrir að fjárstuðningur
vegna kórónuveirunnar yrði bund-
inn því að ríki uppfylltu kröfur rétt-
arríkisins, en Evrópuríkin skilja
enn ekki afstöðu Póllands gegn lög-
gjöf um jafnrétti kynjanna.
Frá 22. október síðastliðnum
hefur pólskur almenningur mót-
mælt á götum úti. Það er dagurinn
sem hinn pólitískt skipaði stjórn-
lagadómstóll Póllands lagði nær
algjört bann við þungunarrofi.
Bæði ríkisstjórn Laga og réttlætis
og kaþólska kirkjan hafa kallað
mótmælin afsprengi „menningar
dauðans“ og „kynjahugmynda-
fræði“, sem hafa lengi talist erki-
óvinir almennings að þeirra mati.
Undir yfirskyni baráttunnar gegn
þessari meintu vá hefur Lög og rétt-
læti meðal annars lagst í herferð
gegn hinsegin fólki. Dæmi um slíka
herferð eru svokölluð „hinseginlaus
svæði“ sem sveitarstjórnarfulltrúar
f lokksins hafa lýst yfir víða um
Pólland. Þá eru mun fleiri dæmi, á
borð við yfirgengilega fordómafulla
hatursorðræðu í garð hinseginfólks
frá valdamestu stjórnmálamönnum
þjóðarinnar, eins og Andrzej Duda
forseta og hinum nýkjörna mennta-
málaráðherra Przemysław Czar-
nek. Á meðan stunda málgögn hins
opinbera, þar á meðal ríkissjón-
varpið TV Poland, hræðsluáróður
gegn „kynjahugmyndafræði“ með
því að bendla hinseginfólk við
barnagirnd.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins kynnti nýverið þriðja
aðgerðapakkann um valdef lingu
kvenna og kynjajafnrétti í utan-
ríkismálum. Markmiðið er að bæta
réttindi kvenna, ungra sem aldinna,
og hinseginfólks um allan heim
með því að „rísa gegn kynbundnum
venjum og staðalímyndum“. Kallað
er eftir því að ESB leiði með fordæmi
í gegnum kynjajafnvægi í eigin for-
ystu, aukinni yfirsýn og nánara
samstarfi við aðildarríkin á vett-
vangi landsmála. Jafnframt er þar
markmiðið um að 85% þróunar-
verkefna leggi sitt af mörkum til
kynjamála fyrir 2025 ítrekað. Að
sögn Jutta Urpilainen, alþjóðafull-
trúa framkvæmdastjórnar ESB, er
þetta mikilvægara en áður vegna
neikvæðra áhrifa heimsfaraldursins
á jafnrétti kynjanna. Evrópusam-
bandið verði að taka til aðgerða
strax til að snúa við þeirri þróun.
Því miður sögðu pólsk yf ir-
völd „nei“ við skjalinu í heild, um
leið og þau ráku augun í orðið
„kyn“. Ríkisstjórn Laga og rétt-
lætis hefur stimplað kynjajafnrétti
sem „útlenska hugmyndafræði“
og ákveðið að standa í vegi fyrir
slíku framtaki án þess að líta til
jákvæðra áhrifa aðgerðapakkans
á stöðu kvenna. Ekki síst á stöðu
þeirra kvenna sem minnst mega
sín, þrátt fyrir að Lög og réttlæti
tali sífellt fyrir vernd þeirra. Öfga-
hægrisinnaðir popúlistar eru aðeins
samkvæmir sjálfum sér þegar það
hentar þeim og þeir hafa meiri
áhuga á eigin ávinningi til skamms
tíma en á langtímaávinningi fyrir
pólska samfélagið.
Þá er enn meira til í þessari þrá-
kelkni. Í októbermánuði síðast-
liðnum stöðvuðu pólsk stjórnvöld
tvö opinber skjöl Evrópusambands-
ins vegna þess að fulltrúar Laga og
réttlætis fundu orðið „kyn“ í þeim.
Í fyrra skiptið þegar Mateusz Mora-
wiecki sá sér ekki fært að mæta á
leiðtogafund ESB þann 16. október
vegna COVID-19 sóttkvíar og Vikt-
or Orbán, sem var fulltrúi Póllands
í hans nafni, hafnaði því að ákvæði
um kynjajafnrétti í Afríku fengi að
fylgja með ályktunum fundarins.
Nokkrum dögum síðar kom pólska
ríkisstjórnin í veg fyrir að álykt-
unum Evrópusambandsráðsins
um gervigreind yrði hleypt í gegn,
aftur á grundvelli þess að hugtakið
„kynjajafnrétti“ kæmi þar fram.
Pólski sendiherrann reyndi að
réttlæta ákvörðunina með vísun
til þess að „merking orðsins kyn
sé óljós“ og að „skortur á skilgrein-
ingu og ótvíræðum skilningi meðal
aðildarríkja geti leitt til merkingar-
fræðilegs vanda“. Hann sannfærði
ekki nokkurn mann.
Í öllum þessum tilfellum hefur
afstaða pólsku ríkisstjórnarinnar
gegn kynjajafnrétti aðeins notið
stuðnings Ungverjalands á meðan
hin 25 aðildarríkin hafa þurft að
klóra sér í höfðinu. Hugmyndafræði
Laga og réttlætis varpar skugga
á baráttu ESB fyrir mikilvægum
sameiginlegum markmiðum, ekki
aðeins fyrir álfuna heldur sérstak-
lega fyrir fólkið í Póllandi. Ef Varsjá
heldur áfram að fylgja þessum far-
vegi í blindni mun hún enda, form-
lega eða lagalega, utan Evrópusam-
bandsins.
Afstaða Póllands gegn kynjajafnrétti
Miłosz Hodun
PhD
forseti Projekt:
Polska Found
ation í Varsjá
og varafor
seti European
Liber al Forum
Ævintýrið um Dísu ljósálf er nú
fáanlegt í endurbættri útgáfu með
112 litmyndum. Bókin er í stærra
broti en eldri útgáfur svo litríkar
myndirnar njóta sín til fulls.
Tímamótaverk
spæjari rannsakar draugalega naggrísinn
Maríella Mánadís og vinkonur hennar, þær Víóla og Pála, eru allar
spæjarar. Einkunnarorð Maríellu eru: Engin ráðgáta of dularfull,
ekkert vandamál of flókið. En svo fara að birtast draugalegir naggrísir
út um allan bæ og Spæjarastelpurnar ákveða að leysa ráðgátuna.
Dagbjört Ásgeirsdóttir þýddi.
Frábær bók fyrir 7-12 ára krakka
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 2 3 . D E S E M B E R 2 0 2 0