Fréttablaðið - 23.12.2020, Page 26
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Frá 19.120 kr. JÓLATILBOÐ
Fullt verð frá: 23.900 kr.
A F S L ÁT T U R
20%
L Ú X U S B A Ð S L O P P A R
T I LV A L I N J Ó L A G J Ö F
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Nú fyrir jólin kom út ný lína, STAR, frá EYGLO, sem er hugarfóstur fata-hönnuðarins Eyg-ló a r M a r g r é t a r
Lárusdóttur. Fyrir síðustu jól kom
út línan AMEN þar sem frelsarinn
sjálfur, Jesús Kristur, spilaði stórt
hlutverk. Stefnan var ekki endilega
sú að gefa út aðra línu núna í ár, þar
til örlögin gripu í taumana og söng-
konan ástsæla GDRN, Guðrún Ýr
Eyfjörð, hafði samband við Kiosk.
Búðin er staðsett úti á Granda og
rekin af fimm hönnuðum, þeim
Anítu Hirlekar, Magneu Einars-
dóttur, Hlín Reykdal, Helgu Lilju
Magnúsdóttur og áðurnefndri
Eygló.
„GDRN hafði samband við okkur
í Kiosk af því að hún var að leita að
hátíðadressum fyrir jólatónleika.
Hausinn á mér fór strax af stað og
það fyrsta sem ég hugsaði voru
stjörnur. Enda er hún algjör stjarna
hún Guðrún. Ég vinn vanalega alltaf
með eitthvað alveg nýtt fyrir hverja
línu og núna ákvað ég að vinna með
tjull í fyrsta skiptið. Seinasta línan
sem ég gerði hét AMEN og var jóla-
lína, en þessi er meira hugsuð sem
áramóta-partílína.“
Eygló fékk einvalalið með í
myndatökurnar fyrir línuna, ljós-
myndarann Sögu Sig, stílistann
Lilju Hrönn Helgadóttur og förð-
unarfræðinginn Ísak Frey Helgason.
Smellpassaði
Hlín Reykdal hefur löngum verið
þekkt fyrir einstaka skartgripa-
hönnun og er ein af þeim sem stend-
ur að rekstri Kiosk. Þær ákváðu að
taka höndum saman og hannaði
Hlín sérstaka línu af skarti með
hönnun Eyglóar.
„Það er bara svo skemmtilegt að
fá sérhannað skart með línunni
sinni. Við rekum Kiosk ásamt
þremur öðrum fatahönnuðum og
eyðum miklum tíma saman. Hlín
var snemma komin inn í sköpunar-
ferlið hjá mér og sérpantaði steina
og efnivið í skartið og gaf út línu
með sama nafni, STAR,“ segir Eygló.
En af hverju GDRN, hvað er það
við hana?
„Hún er nú með þeim glæsi-
legri í bransanum. Ég varð himin-
lifandi þegar hún var til í að sitja
fyrir í myndatökunni, enda kom
innblásturinn frá henni. Ég fékk
gæsahúð þegar hún var komin með
förðun frá Ísaki, komin í gallann og
sest í settið. Þetta smellpassaði allt
saman,“ segir Eygló.
Gengur vel á Granda
Þær segjast himinlifandi með nýja
staðsetningu búðarinnar, sem áður
var rekin á Laugavegi og í Ingólfs-
stræti.
„Við elskum að vera úti á Granda.
Það er líka barist um plássin hérna
í verbúðunum. Traffíkin hjá okkur
hefur verið frábær og við finnum vel
fyrir að kúnnarnir okkar kunna að
meta nýju staðsetninguna,“ segir
Hlín.
Hvað var það sem heillaði þig við
skartgripahönnun, Hlín?
„Skartgripir og fylgihlutir hafa
alltaf heillað mig. Það setur punkt-
inn yfir i-ið. Rétt skart getur gjör-
breytt heildarútlitinu og stemning-
unni,“ svarar hún.
Línuna er hægt að skoða nánar í
Kiosk og á kioskreykjavik.com.
steingerdur@frettabladid.is
Eygló gerði fatalínu
innblásna af GDRN
Þær Eygló og Hlín Reykdal standa saman að rekstri Kiosk Reykja-
vík ásamt þeim Helgu Lilju, Magneu og Anítu. Eygló og Hlín gefa út
línuna STAR nú fyrir jólin, sem er innblásin af söngkonunni GDRN.
Eygló og Hlín segja mikla grósku vera á Grandanum og eru ánægðar með viðtökurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Förðun eftir Ísak og Lilja Hrönn stíliseraði. MYND/SAGA
RÉTT SKART GETUR
GJÖRBREYTT HEILD-
ARÚTLITINU OG STEMNING-
UNNI.
Hlín
ÉG FÉKK
GÆSAHÚÐ
ÞEGAR HÚN
VAR KOMIN
MEÐ FÖRÐUN
FRÁ ÍSAKI,
KOMIN Í
GALLANN OG
SEST Í SETTIÐ.
ÞETTA SMELL-
PASSAÐI ALLT
SAMAN.
Eygló
2 3 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ