Feykir - 09.10.2019, Page 4
Enn er leikur að stráum á þekju á gamla bæjarins á Stóru-Ökrum. Þar sem
Keldhverfungurinn Skúli Magnússon sýslumaður Skagfirðinga 1737 – 1750
og síðar landfógeti gerði garðinn frægan. Haustblíðan 6. október umlykur
minnisvarðann um Skúla og stendur vörð um hundrað ára kvenfélag í
Akrahreppi sem á heimilisfesti í samkomuhúsinu Héðinsminni.
Mæðgurnar Helga Bjarnadóttir og Sigurlaug Konráðsdóttir ásamt Margréti J.
gestkomandi á glæsilegri sýningu „Handverki í Héðinsminni“ dagana 5. -6.
október sl. Þær mæðgur, Helga og Sigurlaug, voru í ritnefnd ásamt Sigríði
Garðarsdóttur á stórvirkinu „Blómarósir í Blönduhlíð“ sem út kom í tilefni
hundrað ára afmælis Kvenfélags Akrahrepps.
Gestir á handverkssýningu í Héðinsminni frá vinstri: Margrét J., Björg
Baldursdóttir Hátúni, Ásdís Sigurjónsdóttir Syðra-Skörðugili, Kristín
Jóhannsdóttir Tyrfingsstöðum, Sigríður Fjóla Viktorsdóttir Syðra-Skörðugili og
Ingunn Sigurðardóttir frá Sauðárkróki.
Handverk í Héðinsminni
Glæsileg sýning á
handverki félagskvenna
Í tilefni aldarafmælis Kvenfélags Akrahrepps var haldin sýning á handverki
félagskvenna helgina 5. – 6. október í Héðinsminni. Bókin Blómarósir í
Blönduhlíð – Saga Kvenfélags Akrahrepps í máli og myndum í 100 ár var m.a
til sölu og geta áhugasamir enn nælt sér í eintak. Gestum og gangandi var
boðið upp á kaffi og konfekt og að sjálfsögðu spjall um heima og geima.
Hörður Ingimarsson, á Sauðárkróki, mætti ásamt Margréti konu sinni í
Héðinsminni, sem staðsett er við Stóru-Akra í Blönduhlíð, og tók meðfylgjandi
myndir og útbjó myndatexta.
Qigong og kínversk heilsuleikfimi á Sauðárkróki
Íþrótt fyrir alla aldurshópa
Haustið 2016 birti Feykir frétt af Herdísi
Ólínu Hjörvarsdóttur sem þá var nýkrýndur
Evrópumeistari í hinni kínversku íþrótt
Qigong. Ekki hefur Herdís keppt síðan þá,
þar sem hún flutti á Sauðárkrók árið áður og
gat ekki stundað íþróttina hjá Wushu
félaginu Drekanum í Skeifunni í Reykjavík. Í
fréttinni var hún hins vegar hvött til að deila
reynslunni og kenna heilsuíþróttina á
Sauðárkróki. Fyrir rétt rúmu ári síðan fékk
hún svo aðgang að salnum á Mælifelli og
kennir þar Qigong og kínverska
heilsuleikfimi þrisvar í viku. „Það hefur
gengið vel, nema hvað ég virðist ekki ná að
fanga athygli nógu margra til að koma,
prófa og sjá og finna um hvað þetta snýst,“
segir Herdís sem upplýsir lesendur Feykis
um þessa göfugu íþrótt.
„Íþróttin á rætur í 5000 ára gömlum
heimildum frá Kína með jafnvægi,
kínverskar lækningameðferðir, heimsspeki,
líkamsstöðu og bardagaíþróttir í forgrunni.
Heilsu Qigong er ekki fyrir þá sem vilja læti
og púl. Qigong er fyrir fólk á aldrinum
fimm til 95 ára sem vill bæta lífskjör og
fyrirbyggja hugsanlega líkamskvilla. Þeir
sem stunda Qigong geta verið allt frá
líkamlega hömluðum til afreksíþróttafólks,“
segir Herdís.
Hún segir að auðvelt sé að útfæra formin
miðað við getu og fólk gerir eins og það
getur. „Æfingarnar eru hægar og jafnar,
styrkja vöðva og liði. Það er auðvelt að
stjórna ef einhver meiðsli eða eymsli eru til
staðar. Qigong skilgreinist sem jafnt hlutfall
öndunar, hreyfingar og hugleiðslu með
hægum flæðandi hreyfingum, djúpum
andardrætti og slakandi hugarorku.“
Í salnum á skemmtistaðnum Mælifelli við
Aðalgötu á Sauðárkróki er hægt að sækja
heilsu Qigong tvisvar í viku og teygjutíma
einu sinni í viku endurgjaldslaust. Ekki er
lágmark fyrir fjölda þátttakanda. „Qigong
hefur þá eiginleika að maður getur stundað
það bæði einn og í hóp en það er miklu
skemmtilegra að vera í hóp. Mig dreymir
um að geta gert fólki kleift að eiga fleiri góð
ár í lífinu. Heilsu Qigong er skref í þá áttina,“
segir Herdís en nánari upplýsingar um
leikfimitímana er hægt að finna á
Fésbókarhópnum „Kínversk leikfimi á
Króknum“. Hópurinn er „lokaður“ en hægt
er að sækja um að fá að vera með en einnig
hafa verið upplýsingar á sölusíðum
Skagafjarðar. /PF
Herdís á Evrópumeistaramóti í Qigong. AÐSEND MYND.
Evrópumeistarinn í Qigong. AÐSEND MYND
4 38/2019