Morgunblaðið - 15.05.2020, Side 17

Morgunblaðið - 15.05.2020, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020 ✝ Þórunn Þor-valdsdóttir fæddist að Skúms- stöðum í Vestur- Landeyjum 6. jan- úar 1925. Hún lést 2. maí 2020 á Hrafn- istu. Foreldar hennar voru Ólöf Jóns- dóttir, f. 10.1. 1884, d. 5.8. 1938, og Þor- valdur Jónsson, f. 10.8. 1885, d. 21.7. 1962. Þórunn var næst yngst níu al- systkina en þau voru: Hildur, f. 20.10. 1912, d. 13.6. 1933, Sigríð- ur Lóa, f. 8.12. 1913, d. 29.3. 1985, Rósa, f. 2.6. 1916, d. 15.11. 1940, Tryggvi, f. 6.11. 1917, d. 8.6. 1994, Helga, f. 1.10. 1919, d. 8.6. 2008, Sigurður f. 28.7. 1921, d. 9.2. 2010, Hrefna, f. 7.2. 1923, d. 9.2. 2017, Sveinn, 16.6. 1926, d. 18.3. 2005. Hálfsystir Þórunnar, samfeðra, er Ragnheiður, f. 28.7. 1957. Eftirlifandi eiginmaður Þór- unnar er Ingimundur Kristján Ingimundarson skipstjóri, f. 4. október 1927. Foreldrar hans voru María Sigurbjörg Helga- dóttir, f. 15.4. 1890, d. 14.1. 1966, og Ingimundur Þórður Ingi- Þórunn (Tóta) ólst upp á Skúmsstöðum og sinnti þar al- mennum sveitastörfum frá barnsaldri ásamt systkinum sín- um en móðir þeirra lést þegar Tóta var 13 ára. Hún sótti Hús- mæðraskólann á Laugarvatni 1946-1947 en eftir það fór hún til Reykjavíkur og vann sem hús- hjálp á nokkrum stöðum. Tóta fór í Hjúkrunarskóla Íslands og útskrifaðist sem hjúkrunarfræð- ingur, í maí 1951. Hún hóf störf á Sjúkrahúsinu á Akranesi og uppi á Skaga kynntist hún Ingimundi, sem var skipstjóri á skipum Har- aldar Böðvarssonar. Þau giftu sig árið 1956 en þá bjuggu þau á Suðurgötu 89 en keyptu svo íbúð á Skagabraut 2. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1963, bjuggu fyrst í Sólheimum 38 en færðu sig svo í Eikjuvog 6 þar sem þau bjuggu til ársins 2002 að þau fluttu í Mánatún. Tóta starfaði sem hjúkrunarfræðingur eftir að hún flutti til Reykjavíkur, m.a. á Landspítalanum, Borgarspít- alanum og Reykjalundi ásamt því að ala upp 5 börn og passa upp á barnabörnin. Hún greind- ist með Alzheimer-sjúkdóm árið 2008 og árið 2009 fór hún í Fríð- uhús, sem er dagvistun fyrir heilabilaða. Þar var hún í 10 ár en flutti svo á Hrafnistu snemma árs 2019 þar sem hún dvaldi þeg- ar hún lést. Útförin fer fram frá Áskirkju í dag, 15. maí 2020, klukkan 15 að viðstaddri nánustu fjölskyldu. mundarson, f. 11.9. 1894, d. 30.5. 1976. Börn Þórunnar og Ingimundar eru: 1) Hafdís, f. 1956, maki Þórir Guð- mundsson, f. 1955, þeirra börn eru: Þórunn Ása, f. 1982, Stefán Ingi, f. 1989, og Hafþór Örn, f. 1990. 2) Ólöf, f. 1957, maki Þorvald- ur Geirsson, f. 1958, synir þeirra eru: Geir, f. 1983, og Sveinn Þorri, f. 1991. 3) Ingimundur Þórður, f. 1961, maki Sigríður Sigurðardóttir, f. 1963. Þeirra börn eru: Ingimundur Kristján, f. 1980, Þórunn Sif, f. 1992, og Þorvaldur Ingi, f. 1995. 4) Sigrún María, f. 1964, maki Friðgeir Halldórsson, f. 1965. Dætur þeirra eru: Steinunn, f. 1991, Hólmfríður Dóra, f. 1998, og Harpa María, f. 2000. 5) Þorvald- ur, f. 1970, maki Rós Guðmunds- dóttir, f. 1966. Synir hans eru: Tryggvi, f. 2003, og Júlíus, f. 2003. Börn Rósar eru: Ásgeir Daði, f. 1993, Elísabet Sara, f. 2003, og Arnar Logi, f. 2004. Barnabarnabörnin eru orðin alls 9. Sómakonan Þórunn Þor- valdsdóttir hjúkrunarfræðingur sem hér er kvödd var í okkar fjölskyldu alltaf kölluð Tóta frænka. Hún kom inn í líf okkar þegar hún fluttist upp á Akra- nes og hafði ráðið sig sem hjúkrunarfræðing á spítalann þar og þekkti fáa á staðnum. Hún vissi að hún var skyld pabba okkar og kom í heimsókn einn daginn. Þessi stutta heim- sókn hennar varð að ævilangri og farsælli vináttu. Tóta frænka féll inn í fjölskylduna strax frá fyrsta degi. Hún var einstök kona - stór og sterk, með mikið og þykkt hár, svolítið hrjúf en með hjarta úr gulli. Hún var kát og hress, hláturmild og svo- lítið stríðin og svo orðheppin að af bar, en um leið svo hlý og umhyggjusöm. Tóta var af- burðaverklagin og veittist létt að nota réttu handtökin við hvaða viðfangsefni sem hún tók sér fyrir hendur. Árin á Akranesi urðu mörg og gæfurík en þar kynntist hún lífsförunaut sínum, fjallmyndar- legum heiðursmanni frá Hólma- vík, Ingimundi skipstjóra. Þau hjón festu kaup á íbúð í sömu götu og við, þar fæddust fyrstu þrjú börnin og var daglegur samgangur á milli heimilanna, eins og um eina fjölskyldu væri að ræða. Mamma okkar og Tóta frænka fóru í margar ferðirnar með börnin í litla gula Fíatinum - farið var í tjaldútilegur, berja- mó og fjöruferðir. Já, þær brölluðu margt saman vinkon- urnar. Svo kom að því að þau hjón fluttu til Reykjavíkur og þar fæddust tvö yngstu börnin og þá orðin fimm talsins - hvert öðru efnilegra og bera foreldr- um sínum fagurt vitni. Við fluttum í kjölfarið og áfram var samgangurinn mikill. Öllum viðburðum í sorg og gleði deildum við með Tótu, Ingimundi og börnunum, vænt- umþykja á báða bóga var slík að þegar elsta dóttir þeirra hjóna eignaðist sitt fyrsta barn fékk hún nafn þeirra vinkvenn- anna - Þórunn Ása. Tóta frænka og Ingimundur voru traustu bakhjarlarnir í til- verunni. Ingimundur var skip- stjórinn á hafi úti en Tóta skip- stjórinn í brúnni heima. Hún var alltaf til staðar, hjálpaði til þegar þurfti, hvatti okkur syst- ur til dáða þegar við átti og fann lausnir og úrræði þegar að kreppti. Hún var farsæl í starfi sem hjúkrunarfræðingur og var dáð af mörgum skjólstæðingum sín- um, sumir vildu bara Tótu sér til hjálpar. Þegar systir okkar lá fársjúk sagði hún oft: „Það er svo gott þegar Tóta frænka er hjá mér, hún er með svo styrkar og hlýjar hendur og þá er ég svo örugg.“ Við og foreldrar okkar gátum aldrei fullþakkað Tótu fyrir alla umhyggjuna og styrkinn sem hún veitti okkur öllum á þeim erfiðu tímum. Síðustu árin dvaldist hún á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu. Hún tók þátt í ýmsum viðburð- um þar, söng mikið, kunni alla texta og hafði spilara í herberg- inu sínu og söng sjómannalögin af hjartans lyst. Þó minnið þok- aði hélt hún gleðinni, húmorn- um og skondnu tilsvörunum fram á síðasta dag. Fyrir það erum við öll afar þakklát. Við Gillý systir, makar okkar og fjölskyldur sendum Ingi- mundi og stórfjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð veri minning elsku Tótu frænku. Hrafnhildur Sigurðardóttir. Hún Tóta frænka er dáin, hún sem hefur skipað stóran sess í lífi mínu frá því að ég man fyrst eftir mér. Tóta var næstyngst í hópi níu systkina Skúmsstaða-hjóna, þeirra Þor- valdar og Ólafar, og kveður þessa jarðvist háöldruð síðust þeirra. Minningarnar eru margar, heimsóknir til Tótu, Ingimund- ar og barnanna á Akranes, en þar bjuggu þau um skeið, en fluttu síðar til Reykjavíkur. Þegar ég var í Vogaskóla var stutt að fara til Tótu og fjöl- skyldu þar sem mér var ávallt tekið sem væri ég ein af þeim, enda dvaldi ég þar oft að lokn- um skóladegi. Alltaf stóð heim- ilið opið gestum og gangandi enda frændgarðurinn stór. Þau hjónin bæði utan af landi, hún Landeyingur, en hann Stranda- maður. Alltaf voru allir vel- komnir á heimilið, húsfreyjan naut sín vel í eldhúsinu þar sem hún töfraði fram ýmislegt góð- gæti. Hún Tóta frænka var ein- stök kona, ákveðin og hrein- skilin. Hún var mikill áhrifa- valdur í lífi mínu. Þegar kom að því að systir hennar Helga, móðir mín, skyldi verða léttari löngu fyrir tilsettan tíma var Tóta til staðar, þá nemi í hjúkr- un. Tóta sá til þess að ávallt væri hitaflaska hjá litla fyr- irburanum og hlúði vel að. Tóta hafði sterkar taugar til heima- sveitarinnar og var þar oft langdvölum með börnin sín hjá ættingjunum sem þar bjuggu. Eitt af því sem hún Tóta kenndi mér var að mjólka kýr í sveitinni á Álfhólum. Hún Tóta kenndi mér að sitja hest og nota hnakk. Hún Tóta sem leyfði mér að keyra Tánusinn frá Hveragerði að Álfhólum, stelpunni sem var nýkomin með bílpróf og hafði aldrei keyrt svona langt og það eftir holóttum malarvegi. Tóta sett- ist í farþegasætið og börnin aftur í, eina lausa sætið var bíl- stjórasætið, þvílíkt traust. Hún Tóta kenndi mér hvernig átti að annast ungbarn þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn. Hún Tóta kenndi mér fyrstu hand- tökin í garðyrkju, bað mig að koma með sér út í garð þar sem hún tók upp hverja plöntu- tegundina af annarri. Settu þær nú í garðinn þinn og hugs- aðu vel um þær. Þarna voru jarðarberjaplönturnar sem hafa alla tíð síðan gefið vel af sér. Hún Tóta frænka hafði mikið aðdráttarafl og einstak- lega góða nærveru. Alltaf var mikið og náið samband milli þeirra systra og mikill sam- gangur á milli heimilanna. Ég votta Ingimundi og fjöl- skyldunni allri innilega samúð. Blessuð sé minning elskulegu Tótu frænku. Særún Jónsdóttir. Þórunn Þorvaldsdóttir ✝ Herdís GuðrúnJónsdóttir van der Linden fæddist 15. maí 1938. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Hlíð á Ak- ureyri 29. apríl sl. Foreldrar henn- ar voru hjónin Hólmfríður Guðna- dóttir húsmóðir, f. 1907, d. 1984, og Jón Þórarinsson, starfsmaður hjá Akureyrarbæ, f. 1907, d. 1991. Systkini Herdísar voru Þórarinn, f. 1931, d. 1951, Guðný Halla, f. 1933, d. 2003, Þráinn, f. 1935, d. 2006, Þórey Jarþrúður, f. 1940, d. 2013, Guðni Örn, f. 1943, d. 1997, Æv- ar Heiðar, f. 1945, d. 2010 og Sæ- björn, f. 1949, d. 2018. Eiginmaður Herdísar var Edvard (Eddý) van der Linden, rafeindavirkjameistari og raf- iðnfræðingur, frá Rotterdam í Hollandi, f. 4. ágúst 1938, d. 2. maí 2019. Þau giftu sig í Hol- landi 5. janúar 1965 en bjuggu fyrstu hjúskaparár sín í Dan- mörku. Fjölskyldan fluttist í Garðabæ 1972, bjó svo í Krist- Emblu Sif og Alex Orra og er það þriðja á leiðinni. Herdís ólst upp í stórum systk- inahópi í Fjólugötu 15 á Ak- ureyri en rúmlega tvítug fluttist hún til Reykjavíkur til að stunda nám í Hjúkrunarkvennaskóla Ís- lands þaðan sem hún útskrifaðist sem hjúkrunarkona, eins og það hét þá, í október 1962. Í fram- haldi hóf hún störf við sjúkra- húsið á Akureyri en fluttist svo til Danmerkur í janúar 1964 til að leita sér starfsreynslu og starfaði þar bæði á Héraðs- sjúkrahúsinu í Gentofte og á Rík- isspítalanum í Kaupmannahöfn. Herdís starfaði sem hjúkrun- arfræðingur allan sinn starfs- feril, lengst af á Kristnesspítala í Eyjafirði. Einnig stafaði hún um tíma á hjartadeild Borgarspít- alans, á handlækningardeild Fjórðungssjúkrahússins á Ak- ureyri auk þess sem hún tók að sér starf skólahjúkrunarfræð- ings í Glerárskóla á Akureyri einn vetur. Útför Herdísar fer fram með fjölskyldu og nánustu ættingjum frá Akureyrarkirkju í dag, 15. maí 2020, klukkan 13.30. Streymt verður frá útförinni á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – Beinar út- sendingar. Stytt slóð á streymi: https://n9.cl/xs8ax. Slóð á streymið má nálgast á www.mbl.is/andlat. nesi í Eyjafirði frá 1974 þar til þau settust að á Ak- ureyri sumarið 1978. Börn Herdísar og Eddýs eru: 1) Ómar Þór, f. 23.6. 1965, maki Bára Einars- dóttir, f. 23.12. 1966. Synir þeirra eru Tómas Tjörvi, f. 1992 og Einar Dag- ur, f. 2001. 2) Arnar Christian, f. 30.1. 1967, maki María Rán Páls- dóttir, f. 7.2. 1975. Börn þeirra eru Katrín Vala, f. 2004 og Mika- el Freyr, f. 2006. 3) Jón Örvar, f. 1.9. 1970, maki Lind Hrafns- dóttir, f. 5.4. 1982. Synir þeirra eru Rómeó Máni, f. 2010 og Hrafn Mikael, f. 2013. Af fyrra sambandi á Jón dótturina Her- dísi Lind, f. 1994. 4) Pálmar Gústaf, f. 3.10. 1972, maki Sól- veig Jóna Geirsdóttir, f. 17.11. 1976, dætur þeirra eru Karen Ösp, f. 2007 og Eva Ósk, f. 2011. Af fyrra sambandi á Pálmar einnig Hildi Mist, f. 1992 og Ant- on Darra, f. 1996. Auk þess átti Herdís tvö langömmubörn, Hún var horfin okkur svo löngu áður en hún kvaddi. Per- sónan sem við þekktum, þessi duglega, lífsglaða kona sem elsk- aði að vera með sínum nánustu var orðin að sjúklingnum sem hún var sjálf vön að annast. Við vissum ekki hvort hún þekkti okkur og fögnuðum hverju sem gefið gat til kynna að við snertum hjá henni streng. Að horfa upp á ferli heilabilunarsjúkdóms var átakanlegt og það var sárt þegar maður fann hana vera að hverfa en á sama tíma notalegt að njóta samvista og finna hlýjuna því hennar fallegu persónueinkenni fylgdu henni alla tíð. Stuttu fyrir andlátið leit ég til hennar og er ólýsanleg gleðin sem ég fann er hún máttfarin lyfti hendinni og strauk mér um vangann. Við- bragð sem við höfðum ekki fund- ið frá henni lengi og mig langar svo mikið að trúa að hún hafi þekkt mig. Þegar ég sá hana fyrst stóð hún uppi á stól og var að hengja upp gardínur í stofunni ásamt vinkonu sinni. Þær brostu for- vitnar til mín og ég man að ég hugsaði hvor þeirra skyldi vera mamma Ómars. Herdís tók mér strax opnum örmum. Hún hjúkk- an og ég sjúkraliðaneminn áttum frá upphafi svo margt sameigin- legt og náðum vel saman. Hún var hæglát og hógvær og tróð skoðunum sínum ekki upp á neinn en hafði lag á að koma sínu til skila og ná sínu fram, en alltaf á sinn rólyndislega hátt. Jafnvel þó lífið hafi oft verið mikil vinna með stórt heimili, fjóra stráka og fullt starf í vakta- vinnu lék allt í höndunum á Dísu. Hún var ekkert að kippa sér upp við smámuni og hafði einkar gott lag á að skipuleggja sig svo það var aldrei neitt vesen eða fár í kringum hana. Kannski fann hún streitunni farveg í handavinnu en hún var mikil hannyrðakona og liggja eft- ir hana mörg útsaumsverk, peys- ur, barnateppi o.fl. Sumt af þessu eru hrein listaverk. Fallegust er eflaust útsaumsmyndin af dýrun- um á tjörninni, barnamynd sem hún byrjaði á þegar hún gekk með Ómar en lá síðan áratugum saman ókláruð ofan í skúffu. Hún sýndi mér hálfkláraðan strang- ann þegar ég var ófrísk að Tóm- asi Tjörva og suðaði ég reglulega í henni að klára þessa dásamlegu mynd en hún sagðist ekki hafa sig í það. Það kom því skemmti- lega á óvart þegar hún færði Óm- ari verkið í fertugsafmælisgjöf. Eftir 35 ára samleið eru minn- ingarnar margar. Gæðastundir í Kaliforníu, Reykjavík og Steinó. Mamman sem var svo stolt af strákunum sínum. Amman sem var alltaf til í að leika og sparkaði bolta í stofunni. Dýrmætar minn- ingar og gleðistundir. Lífið er lærdómur svo mikið er víst og er ég óendanlega þakklát fyrir lífið sem við áttum saman, allt sem hún kenndi mér og já í raun líka fyrir lærdóminn af sjúkdómnum og hvernig hún tókst á við hann. Hún hélt reisn svo lengi sem það var hægt, kvartaði aldrei, var snillingur í að leika og hélt örugglega þegar við svöruðum sömu spurningunum aftur og aftur með brosi á vör að við hefðum ekki tekið eftir neinu. Það er með mikilli sorg, hlýju og ást sem ég kveð elskulega tengdamóður. Bið ég algóðan Guð um að taka vel á móti þessari yndislegu konu, minning hennar verður í hjarta mér um ókomna tíð. Þín tengdadóttir, Bára Einarsdóttir. Það var nýtt að svona stór hópur væri tekinn inn í Hjúkr- unarskóla Íslands og nánast helmingur kom utan af landi. Það var einnig breyting hjá skólanum þar sem starfsfólk vantaði óskap- lega á spítalana á sjötta áratugn- um. Bekkirnir voru kallaðir holl, sem mörgum finnst ankannalegt í dag, en kennt var í lotum. Fyrsti stóri hópurinn, dásamlega bland- aður, ókunnugar og fullar eftir- væntingar, þegar við gengum upp skólatröppurnar inn á mynd- arlega ganginn með sérstökum gangi til stjóra og sérstökum tröppum við símavaktina en hana áttum við eftir að hafa mikil sam- skipti við, símavaktin var jú að- altengill framtíðar inn í heima- vistarskólann sem Hjúkrunarskólinn var. Við erum nú svona farnar að týna tölunni, við 22 konurnar sem byrjuðum nám í Hjúkrunar- skóla Íslands 1959, kornungar og mismunandi harðnaðar og alls ekki jafngamlar, var töluverður aldursmunur á þeirri elstu og yngstu. Skólanum var skylt að taka inn nemendur hlutfallslega af allri landsbyggðinni því auðvitað var verið að framleiða vinnu- krafta, og það eiginlega strax. Hópurinn blandaðist strax og urðum við samstilltar frá hinu fyrsta, aldrei nein vandræði með það. Við áttum sameiginlega reynslu að ganga þá þröngu braut sem þá var að fá orðið „já“ frá yfirvöldum um að fá inn- göngu. „Já“ var sem sagt lykil- orðið okkar frá fyrstu stundu, við sögðum já við öllu, útileyfum og öllu því sem okkur fannst meira að segja ekki rétt. Með okkur náðist einstök samstaða og heið- arleiki í millum. Og í dag erum við að kveðja Herdísi Jónsdóttur, vinkonu okk- ar, frænku og skólasystur, sem var að norðan eins og fleiri. Vakti Herdís strax athygli fyrir ein- staklega fallega framkomu og samskiptahæfileika. Herdís var alveg einstök, var Akureyringur, fjórða elst úr hópi sjö systkina og hafði reynslu af því að vera í hópi. Að eiga sjö systkini er bónus til framtíðar og gott að geta lært strax í frumbernsku samskipta- hæfni sem hún hafði nóg af. Herdís og Gerður voru þremenningar og áttu því gamla vináttu saman og auðvitað þekktu flestir flesta á Akureyri á þessum tíma þannig að við studd- um hver aðra við þessi tímamót. Á Akureyri var bara einn barna- skóli svo það var auðvelt að kynn- ast á þessum tíma og alltaf er sól- skin í minningunni. Sjúkrahúsið, Menntaskólinn og kirkjan voru menningarhús á Akureyri sem umgengni var við daglega. Metn- aður var í kennurum skólanna og þar bjuggu Davíð og Matthías. Dísa var í raun ekki mannblendin en aðlaðandi og jöfn við alla og var allra. Við tengdumst misjafnlega sem orsakaðist af því að við vor- um sendar í allar áttir á spítal- ana, bæði í Reykjavík og út á land. Þetta var mikil og skemmti- leg menning, að geta látið flytja sig út og suður og vera alltaf á forsendum námsmannsins í hálf- gerðri vernd, en þó sjálfsábyrgð. Hittumst aftur og aftur í heima- vistinni þannig að það var óhjá- kvæmilegt annað en að kynnast hver annarri. Nokkrar okkar réðu sig á er- lendar stofnanir við útskrift og var Herdís ein af þeim. Hún fór til Kaupmannahafnar og bjó þar í nokkur ár og giftist Edvin sem kom með henni til Íslands og saman eiguðust þau myndarsyn- ina fjóra og fluttu til Akureyrar. Við vorum fleiri skólasysturnar sem áttum eftir að setjast að er- lendis og er gaman að minnast bréfaskriftanna á milli BNA, Skandinavíu og Íslands. Þá var ritað hátíðlega á pappír. Við vorum svo heppnar að ein okkar, Ingileif Ólafsdóttir, giftist mjög snemma og eiginmaðurinn, Einar, gekk í hollið og opnuðu þau heimilið sitt algerlega fyrir okkur, þess vegna var svo auð- velt að hittast. Allt hefur sinn tíma. Tími Her- dísar er útrunninn eftir erfið veikindi. Við allar þökkum fyrir að hafa kynnst henni og átt hana að vini og hugsum allar nú það sama: Herdís Jónsdóttir var fal- leg og góð manneskja. Fyrir hönd eftirlifandi holl- systra, Gerður Ólafsdóttir og Ingileif Ólafsdóttir. Herdís Guðrún Jóns- dóttir v.d. Linden

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.