Morgunblaðið - 15.05.2020, Síða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020
✝ ValgerðurJóna Gunnars-
dóttir fæddist á
Sauðárkróki 10.
júní 1948. Hún lést
á kvennadeild
Landspítalans 2.
maí 2020.
Foreldrar Val-
gerðar voru Gunn-
ar Björnsson, bóndi
í Sólheimum í
Blönduhlíð, Skaga-
firði, síðar húsvörður í Reykja-
vík, f. 14. ágúst 1927, d. 28. októ-
ber 1988, og eiginkona hans
Ragnheiður Jónsdóttir, hús-
freyja og bankaritari, f. 9. apríl
1929, d. 12. janúar 2014.
Systkini Valgerðar eru:
Ragnar, f. 19. júlí 1951, Sigríður
Hrafnhildur, f. 18. ágúst 1960,
og Ingibjörg Ásta, f. 26. mars
1963.
Eftirlifandi eiginmaður Val-
gerðar er Ingi Kr. Stefánsson
tannlæknir, f. 24. apríl 1949.
Þau gengu í hjónaband 13. sept-
ember 1969. Börn Valgerðar og
Inga eru: 1) Gunnar Trausti, f.
23. febrúar 1982. Synir Gunnars
eru: Tristan Ingi, f. 13. maí
2002, Alexander Helgi, f. 11.
íður Pálsdóttir. Þá tók Val-
gerður ýmis námskeið á sviði
sönglistarinnar, þar á meðal
námskeið í ljóðasöng hjá Gérard
Souzay 1977 og Erik Werba
1979, 1980 og 1981; námskeið í
söngtækni og óperusöng hjá
Helene Karusso 1981 og 1982 og
hjá Kostas Paskalis 1984; nám-
skeið í söngtækni hjá Valerie
Heath Davies 1988 og 1989 og
fleira.
Valgerður starfaði sem for-
stjóri Háskólafjölritunar í Fé-
lagsstofnun stúdenta í Reykja-
vík á árunum 1971-80. Síðan hóf
hún störf strax eftir útskrift úr
Söngskólanum sem söngkennari
við Söngskólann í Reykjavík frá
1981-2019.
Söngurinn var Valgerði bæði
leikur og starf og tók hún mik-
inn þátt í kórstarfi, fyrst í Skag-
firsku söngsveitinni og Pólýfón-
kórnum. Þá tók hún þátt í fjölda
óperusýninga, bæði í Þjóðleik-
húsinu og með Kór íslensku óp-
erunnar.
Vegna samkomutakmarkana
verða einungis nánustu aðstand-
endur viðstaddir útförina, sem
fer fram í dag, 15. maí 2020,
klukkan 15. Útförinni verður
streymt á youtube fyrir þá sem
komast ekki. Bein slóð á streym-
ið er: https://youtube/
Qm4h38HAjNE. Stytt slóð:
https://n9.cl/n21q. Slóðina er
einnig hægt að nálgast á
www.mbl.is/andlat.
ágúst 2003, og Rúr-
ik Árni, f. 19. sept-
ember 2012. 2) Jón
Kristinn, f. 14.
mars 1982. Eigin-
kona hans er Fida
Abu Libdeh og
börn þeirra eru
Watan Amal, f. 28.
október 2006,
Ragnheiður Tahrir,
f. 10. apríl 2009, og
Valgerður Asalah,
f. 31. ágúst 2013. 3) Hanna
Ragnheiður, f. 6. mars 1987, í
sambúð með Bjarna Þór Péturs-
syni. Börn Bjarna eru Sóley og
Magnús.
Valgerður lauk landsprófi frá
Gagnfræðaskólanum á Sauðár-
króki og árið 1968 stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri
þar sem hún tók þátt í söng-
starfi, meðal annars með bland-
aða MA-kvartettinum. Val-
gerður hóf nám í íslensku og
bókasafnsfræði við Háskóla Ís-
lands árið 1968 en fljótlega tók
söngurinn yfir og hún hóf nám
við Söngskólann í Reykjavík við
stofnun hans árið 1973 og lauk
þaðan söngkennaraprófi 1981.
Aðalkennari hennar var Þur-
Elsku tengdamóðir, yndisleg-
asta kona sem ég hef kynnst,
söknuðurinn er mikill en minn-
ingarnar lifa með okkur áfram.
Þú hefur kennt mér svo margt og
alltaf verið til staðar fyrir okkur.
Strax við okkar fyrstu kynni
tókstu mér opnum örmum inn í
fjölskylduna þína. Þegar ég horfi
til baka eftir öll þessi ár sé ég þig
og heyri í þér hvetja mig áfram.
Þú stóðst alltaf við bakið á mér og
okkur öllum. Þú hvattir mig
áfram og varst svo stolt af mér að
ég þorði ekki annað en að standa
mig. Þú vildir kynnast mér betur
og hvaðan ég kæmi, þú fórst með
mér alla leið til Palestínu að
kynnast fjölskyldunni minni,
skoða hvar ég fæddist og hvar ég
lék mér þegar ég var lítil stelpa.
Hver gerir svona nema þú, Valla
mín!
Þú kenndir mér svo mikið um
íslenska menningu, takk fyrir að
deila með mér fallegum íslensk-
um hefðum frá þér og mömmu
þinni. Ég hef lært svo margt af
þér, ég lærði að vera yfirveguð,
lærði að elska skilyrðislaust. Ég
lærði að lifa. Þú ert ástæðan fyrir
því að ég tilheyri Íslandi og átt
stóran hlut í þeirri konu sem ég
er í dag. Þú ert líka ein af ástæð-
unum fyrir vellíðan minni og vel-
gengni í öll þessi ár, þú ert mér
svo margt og munt alltaf vera.
Takk fyrir að vera alltaf til stað-
ar.
Hvíldu í friði, elsku tengda-
mamma mín, ég mun alltaf passa
upp á stelpurnar þínar og Nonna
þinn.
Fida Abu Libdeh.
Það var eitt af þessum björtu
hreinu maíkvöldum. Vorið fetaði
sig með kuldalegum skrefum um
götur og garða, sólin gekk til við-
ar og Valla Jóna mágkona mín
tók sér far með henni. Kvaddi
heiminn og okkur um leið og sólin
kvaddi daginn. Því hún var sjálf
sólin, bar hana með sér hvar sem
hún kom og var óspör á geislana.
Heimurinn hlýnaði, maður sogaði
í sig Völlu-vítamínið því það
þurfti maður ekki að kaupa í búð-
inni, það var ókeypis; flutt frá
Sólheimum undir fjallinu háa og
bætt við á leiðinni hér og hvar.
Valla var kona sem setti orðið
fjör á annan stall. Það var stund-
um svo mikið að það varð að
brjótast út, þetta funheita skag-
firska fjör, og minnti þá á ný-
genginn spriklandi silung úr
Héraðsvötnum sem maður ræður
ekki við heldur stekkur úr hönd-
unum á manni og þýtur áfram
upp strauminn.
Það hefur verið gæfa mín að
hafa hana í seilingarfjarlægð
gegnum árin. Kannski var hún
eins og stóra systir, átti í mér
hvert bein, fannst líklega að hún
þyrfti að líta eftir stráknum úr
sveitinni þegar hann kom til
borgarinnar. Og þetta kom sér
vel, án þess að ég hefði hugmynd
um. Þannig var í fyrndinni að ég
var að leita mér að íbúð til leigu.
Rakst á kjallaraíbúð á Laufás-
veginum sem var alveg upplögð.
Hitti húseigandann, sem tók mér
vel, en ég var samt óviss um nið-
urstöðu málsins. Sómakærum
húseiganda þætti kannski vara-
samt að leigja leiklistarnema, það
gæti fylgt honum skringilegt lið.
En íbúðina fékk ég. Síðar, þegar
ég var búinn að munstra mig í
fjölskylduna, komst ég að því að
Valla og Ingi höfðu leigt þessa
sömu íbúð og auðvitað var Valla
spurð hvort þessum sveitunga
hennar væri treystandi og Valla
hélt nú það: Ó boy, maður minn,
sonur Árna og Sólveigar á Upp-
sölum – örugglega hagstæður.
Svona liggja þræðirnir og þeir
áttu eftir að liggja víða með Völlu
og Inga Kr. sem ég kalla fóstra
minn. Börnin minnast Seiðakvísl-
ar þar sem þeim var æði oft skutl-
að inn af foreldrum á hraðferð.
Gamlárskvöldin hjá þeim hjónum
eru líka perlur sem hafa þrætt sig
upp á bandið; þetta ósýnilega
band sem tengir okkur saman og
við festum okkar gleðistundir á
og geymum í hugskotinu. Ég
þræði mig eftir minningaband-
inu. Það er kvöldstund í bústaðn-
um í Borgarfirði. Við Ingi komum
þvældir og vindhangnir eftir
langan veiðidag vestur á Mýrum.
Valla tekur okkur fagnandi og
gefur afla gaum, hælir okkur fyr-
ir veiðisnilld og mér stundum
meir ef gæftir voru góðar. Hún
hafði átt góðan og truflunarlaus-
an dag, notið sín í botn, horft á
golf sem var svo spennandi að
hún hafði ekki mátt vera að því að
fara í sólbað. Við mölum stund
um dag og veg, síðan draga von-
glaðir veiðimenn sig til koju en
Valla nýtur áfram sinnar gæða-
stundar inn í nóttina, alein með
bók, krossgátu eða spennumynd.
Stundum fannst mér henni líða
best þannig; ein með syngjandi
fugl í tré fyrir utan sumó.
Valgerður Jóna var sól, sumar
og söngur sem mun halda áfram
að hljóma í fjallinu og glitra í
strengnum meðan silungarnir
ganga upp ána.
Eyþór Árnason.
Mágkona okkar, Valgerður
Jóna Gunnarsdóttir, er fallin frá,
alltof snemma fyrir svo lífsglaða
og bjartsýna konu. Hún var gift
bróður okkar og fósturbróður,
Inga Kristni Stefánssyni.
Þegar Ingi var í Menntaskól-
anum á Akureyri kynntist hann
Skagfirðingnum Völlu og áttu
þau samleið æ síðan, þau giftu sig
árið 1969, ári eftir að þau urðu
stúdentar. Valla var söngelsk
eins og títt er um Skagfirðinga,
reyndar svo söngelsk að hún
gerði sönginn að ævistarfi sínu.
Árið 1982 bættust tveir ljós-
geislar í fjölskylduna, þeir bræð-
ur Nonni og Gunni. Þau Valla og
Ingi áttu sjálfsagt ekki von á
fleiri börnum, en viti menn, lengi
var von á einni, árið 1987 fæddist
Hanna Radda og var hún skírð í
höfuð móður okkar og móður
Völlu. Á rétt einu ári fæddust
þrjár stúlkur hjá okkur þremur.
Það er margt sem kemur upp í
hugann á kveðjustund. Við minn-
umst heimsóknanna í Fellsmúl-
ann, þar sem fjölskylda Völlu bjó
hér á árum áður. Jólaboðanna í
Melgerðinu í foreldrahúsum okk-
ar og hádegisverðanna í Garðin-
um á 1. sunnudegi í aðventu núna
í seinni tíð.
Við hittum Völlu síðast í hinni
árlegu skötuveislu á Þorláks-
messu, sem lengst af var haldin í
Furugerðinu, en nú síðast í nýju
híbýlunum á Kársnesi. Veislan sú
var tilhlökkunarefni allt árið,
skatan og meðlætið var orginal;
Valla sá um guðdómlega eftir-
rétti og gestir og gestgjafar
fyrsta flokks. Valla bar sig vel og
var hress að vanda, þótt nærri
fimm ára barátta við pestina
vondu hefði sett mark sitt á hana.
Vegna annarrar pestar, sem skók
allt þjóðfélagið, gátum við ekki
kvatt Völlu eins og við hefðum
viljað.
Við eigum bara góðar og fal-
legar minningar um Völlu sem
verða því miður ekki fleiri.
Við sendum Inga og Gunna,
Nonna og Hönnu, tengdabörnum
og barnabörnum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Guðrún, Jóhann Óli
og fjölskyldur.
Elsku Valla, nú er komið að
kveðjustund, sem er súrrealískt í
ljósi þess að þú hefur alltaf verið
þekkt fyrir að fara síðust úr veisl-
unni. Ég minnist þín einmitt helst
í veislum, syngjandi og hlæjandi
til skiptis, umkringd skemmti-
legu fólki. Mér fannst dásamlegt
að mæta með þér á ættarmót,
sérstaklega í Skagafirði þar sem
fjölmargir vildu syngja með þér
fram á rauðanótt. Ég held að
fimmtugsafmælið þitt sé eftir-
minnilegasta veisla sem ég hef
mætt í því þá skellti Óperukórinn
sér út í garð á miðnætti og hélt
vöku fyrir hálfum Árbænum með
ókeypis tónleikum. Einhver
helstu ævintýri æsku minnar
voru að mæta með þér í vinnuna
og horfa á óperur á tungumálum
sem ég skildi ekki orð í, og hitta
stórstjörnur baksviðs.
Þegar við Sturla eignuðumst
okkar fyrsta barn bjuggum við á
Bergþórugötu, beint á móti
Söngskólanum, og þú kíktir oft
yfir götuna til að fá einn kaffi-
bolla og dást að Eyrúnu. Þú tókst
hana í fangið, gekkst um íbúðina
og söngst nokkur lög handa
henni áður en þú fórst aftur í
vinnuna þar sem þú kenndir öðr-
um ungmennum að syngja.
Stuttu eftir að þú greindist
með ólæknandi krabbamein eign-
uðumst við Sturla annað barn, ég
man að mér fannst mikilvægt að
sýna þér Hrafn strax, því þú elsk-
aðir börn svo mikið og yrðir að
sjá hann. Við mættum í heimsókn
eftir fimm daga skoðun og vorum
svo glöð að þú hefðir náð að hitta
hann, og enn glaðari að þér
fannst hann líta út eins og séní.
Nú er Hrafn ekki lengur nýfædd-
ur heldur fjögurra ára og þegar
ég sagði honum að þú værir dáin
sagði hann: „Abrakadabra, ég
breyti því svo hún sé lifandi
ennþá.“ Því þú komst öllum á
óvart; með bjartsýnina að vopni
náðir þú að lifa mörgum árum
lengur en nokkur spáði og hélst
áfram að njóta lífsins. Þú náðir
meira að segja að hitta Þröst, enn
eitt barnið.
Ég veit að þú myndir fyrirgefa
mér að tala svona mikið um börn-
in mín í minningargreininni því
þetta var okkar sameiginlega
áhugamál. Þegar við hittumst í
kaffi talaði ég um mín börn og þú
um þín, eða frekar um barna-
börnin þín, sem eru bæði flink og
falleg og öll sérlega góð við ömmu
sína. Við munum öll sakna þín og
syngja lögin sem þú kenndir okk-
ur og svo munum við líka skála
fyrir þér og minnast þess hvað
lífið getur verið skemmtilegt.
Kamma Thordarson.
Það var fyrir hálfri öld sem
leiðir okkar hjóna og þeirra Inga
og Völlu lágu saman. Karlarnir
spiluðu saman körfubolta með ÍS
og mikill samgangur var með
liðsfélögum og konum þeirra,
bæði haldin teiti og svo pössuðu
Valla og Ingi stöku sinnum fyrir
okkur barnafólkið. Síðar fóru
þeir félagarnir að stunda saman
silungsveiði og konur komu með í
sumar veiðiferðirnar, árlega
norður í Mývatnssveit (eftir að
veiðihúsið Hof kom til sögu) og
svo stundaði hið válega Skarfa-
gengi sjóbleikjuveiði vestur í
Dölum og í Barðastrandarsýslu.
Það voru hjóna- og fjölskyldu-
ferðir og í þeim hópi fengu allir
sín sérstöku nöfn, sem tengdust
gjarnan hlutverki innan gengis-
ins eða áhugamálum. Valgerður
hét þar Seiman salatfúsa en
bóndi hennar Karl hinn kvalafúsi.
Einn úr hópnum hét Seggur
söngvafúsi og Skarfagengið söng
mikið í veiðihúsum á síðkvöldum.
Þar voru þau hjón, Valla og Ingi,
vitaskuld góðir liðsmenn.
Valla var lífsglöð og glaðvær
kona, traustur vinur vina sinna,
hafði ákveðnar skoðanir, oftast
býsna svarthvítar, og lá ekkert á
þeim. Hún var góður ferðafélagi
og dásamleg er sú minning að
meirihluti hins válega Skarfa-
gengis skrapp í veiði í Norðfjarð-
ará í fyrrasumar. Það var síðasta
ferð okkar hjóna með Völlu. Hún
var enn býsna hress og ferðin var
mjög ánægjuleg í alla staði.
Við þökkum margar góðar
samverustundir og vottum Inga,
Nonna, Gunna, Hönnu Röddu og
fjölskyldum þeirra okkar innileg-
ustu samúð.
Lilja Bergsteinsdóttir og
Guðni Kolbeinsson.
Félagsskapur okkar fékk
snemma formlegt nafn; Fé-
lagsskapurinn og útiveran. Fé-
lagsskapurinn með ákveðnum
greini af því að það var eitthvað
alveg sérstakt og einstakt við
þennan félagsskap og útiveran
vegna þess að ef ekkert veiddist í
okkar árlegu veiðitúrum var úti-
veran og fegurð náttúrunnar þó
alltaf til staðar.
Þetta byrjaði árið 1968, stúd-
entsárið hennar Völlu. Tveir ung-
ir sópranar, Valla og Elísabet,
sitja saman á æfingu í Pólýfón-
kórnum og æfa altröddina í einni
af óratoríum Bachs. Sungu sig
síðar saman í fjölmörgum stór-
verkum barokktónskáldanna og
inn í Söngskólann í Reykjavík
þegar hann var stofnaður árið
1973. Kynntust þar strax á fyrsta
ári samnemanda sínum, Ásrúnu.
Saman tóku þær söngkennara-
próf frá skólanum og kenndu við
hann og störfuðu allt til loka
starfsaldurs. Síðar bættist í hóp-
inn Soffía, nemandi skólans og
starfsmaður á skrifstofunni allt
til þessa dags. Það varð strax
þéttur vinskapur sem þarna átti
sér rætur og samhljómur sem
einnig náði til makanna sem
óspart hafa notið andrúmslofts-
ins og ógleymanlegra stunda í fé-
lagslífi, samkomuhaldi og ferða-
lögum skólans innanlands og
erlendis.
Margra ógleymanlegra stunda
og hefða þessa margra tuga ára
félagsskapar er að minnast.
Einna sterkust og dýpst er minn-
ingin um áralanga venju okkar að
hittast í sumarhúsi Völlu og Inga
í Borgarfirðinum. Þar hófust
reglulegar veiði- og samveru-
stundir sem eiga engan sinn líka.
Karlarnir hnýttu agn á stöng,
spúsurnar spiluðu á spil og sam-
eiginlegar stundir og veisluhöld
um miðjan daginn og á kvöldin.
Þarna var Valla á heimavelli, glöð
í bragði með börnin sín ungu en á
þessum árum voru börnin okkar
jafnan með í hópnum. Þarna upp-
götvuðum við enn einn hlekkinn í
vinakeðjunni sem átti eftir að
veita okkur fjölmörg tilefni til
samfagnaðar. Við höfðum öll gift
okkur á sama ári, 1969. Fé-
lagsskapur, fjölskyldustemning
og útivera í hnotskurn!
Árlegar veiði- og spilaferðir í
Veiðivötn til fjölda ára spruttu
upp úr þessu ásamt fjölmörgum
ævintýralegum veiði- og
skemmtiferðum, m.a. til Norð-
fjarðar, Ólafsfjarðar og í Gren-
læk, skútusiglingar í Adríahafinu
auk þess sem við komum reglu-
bundið saman á heimilum okkar
til skiptis þar sem spilamennskan
var í hávegum höfð sem fyrr en í
stað veiðimennsku gerði karlpen-
ingurinn innkaup fyrir veisluhöld
kvöldsins og fór í menningar- og
„vísindaleiðangra“ víða á höfuð-
borgarsvæðinu.
Áratuga samferð í leik og
starfi hnýtti traust vináttubönd
þar sem Valla, sem var opin,
mannblendin og mikil félagsvera,
var hrókur alls fagnaðar og mikill
gleðigjafi. Næmi á málfar og
hrynjandi texta í bundnu og
óbundnu máli og óskeikult brag-
og tóneyra settu svip sinn á geisl-
andi fas hennar og glaðværð,
ekki síst þá hópurinn brast í söng
og hún raddaði svo snilldarlega.
Nú er höggvið stórt skarð í þenn-
an dýrmæta félagsskap sem ekki
verður fyllt. Söknuðurinn er mik-
ill. Hugur okkar er hjá Inga okk-
ar, börnum þeirra, tengdabörn-
um og barnabörnum. Megi Guð
gefa þeim huggun í sorg sinni.
Elísabet og Þórleifur,
Ásrún og Haraldur,
Soffía og Snorri.
Við vorum tuttugu sem fórum
á Ólafsvökuna í Færeyjum sum-
arið 2003. Öll tengdumst við á
einhvern hátt nýlega stofnuðum
blönduðum rótarýklúbbi í Kópa-
vogi, félagar, makar eða sérstak-
ir gestir, og í hópnum voru níu
sem tengdust Söngskólanum á
einhvern hátt. Einkar fríður hóp-
ur. Og við vorum akandi. Ferða-
lagið tók rúma viku og fólk fékk
góðan tíma til að kynnast. Keyrð-
um fyrst á Seyðisfjörð og eftir
landtöku í Þórshöfn var ekið vítt
og breitt um Færeyjar, samtals
619 km! Í dásemdarveðri allan
tímann.
Strax um borð í ferjunni byrj-
aði hópurinn að hristast saman
og þar hittum við mörg hver í
fyrsta sinn hana Völlu, æskuást-
ina hans Inga, félaga okkar í
klúbbnum. Færeyjaferðin tókst
hið besta og er með allra
skemmtilegustu utanlandsferð-
um sem farnar hafa verið. Mikið
var sungið. Og þar fór söngkenn-
arinn Valla iðulega fremst í
flokki, með afbrigðum lagviss og
leiðbeinandi á sinn ljúfa hátt ef
með þurfti.
Nú þegar leiðir skilur voru
Valgerður Jóna
Gunnarsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
Laugarhvammi,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
laugardaginn 9. maí.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 29. maí
klukkan 14. Jarðsett verður í Reykjakirkjugarði. Streymt verður á
facebook-síðu kirkjunnar og útvarpað í nærumhverfi hennar á
FM 107,2.
Erling Jóhannesson Hulda Garðarsdóttir
Helgi Friðriksson Sigríður Viggósdóttir
Sigurður Friðriksson Klara Jónsdóttir
Jónína Friðriksdóttir Stefán Sigurðsson
Sólveig Friðriksdóttir Kolbeinn Erlendsson
Friðrik Rúnar Friðriksson Jóhanna Sigurðardóttir
og fjölskyldur
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýjar kveðjur vegna andláts
FJÓLU GUÐLAUGSDÓTTUR,
Kirkjuhvoli, Hvolsvelli.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Dvalarheimilisins Kirkjuhvols á Hvolsvelli
fyrir einstaklega góða umönnun.
Svavar Ottósson Hólmfríður Pálsdóttir
Georg Ottósson Emma R. Marinósdóttir
Sólveig Eyfjörð Ottósdóttir Jón Smári Lárusson
Óli Kristinn Ottósson Auður Sigurðardóttir
Sigurður Grétar Ottósson Katrín Birna Viðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn