Morgunblaðið - 15.05.2020, Side 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ZOPHANÍA G. BRIEM,
Góa,
Hvassaleiti 56,
lést á hjúkrunarheimilinu Eirarholti
miðvikudaginn 13. maí.
Svanborg Briem Bragi Ólafsson
Lída Briem
Einar Jón Briem Anna Jóna Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri,
SVERRIR JÓNSSON
húsgagnabólstrari,
er látinn.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag.
Í ljósi aðstæðna verða eingöngu nánasta
fjölskylda og vinir viðstödd útförina.
María Jónasdóttir
Vilborg Sverrisdóttir Þór Pálsson
Guðrún Elva Sverrisdóttir Tryggvi Jónsson
Sverrir, María Fönn, Tandri, Hanna Mjöll, Fanney Þóra,
Darri, Dana Sól og langafabörnin
✝ Sverrir Jóns-son fæddist í
Hafnarfirði 6. sept-
ember 1935. Hann
lést á Landspít-
alanum 4. maí
2020.
Foreldrar hans
voru hjónin Guð-
rún Teitsdóttir, f.
22.4. 1891, d. 10.5.
1966, og Jón H.
Sveinsson, f. 27.10.
1891, d. 18.10. 1989. Sverrir var
yngstur átta systkina. Eftirlif-
andi systir hans er Bryndís
Fjóla.
Kona hans er María Jón-
asdóttir, fædd 18. mars 1936.
Börn þeirra eru: 1) Sverrir,
rennismiður, f. 19. nóvember
1960, d. 7.september 1988, maki
Kristín Ragnarsdóttir. Þeirra
sonur Sverrir Sverrisson, f.
23.8. 1985, maki Hrefna Inga-
dóttir. Þau eiga tvær dætur. 2)
Vilborg, danskennari, f. 17.
nóvember 1961, maki Þór Páls-
son, framkvæmdastjóri Raf-
menntar, f. 6. júlí 1963. Þeirra
börn a) María Fönn, f. 23.12.
1985, maki Ken Isidor Arildsl-
und. Þau eiga tvær dætur. b)
Hanna Mjöll, f. 25.2. 1993, maki
Jónas Marteinsson og c) Fanney
Þóra, f. 15.6. 1994, maki Gunn-
ar Agnarsson. 3) Guðrún Elva
Sverrisdóttir grunnskólakenn-
ari, f. 30. nóvember
1967, maki Tryggvi
Jónsson verkfræð-
ingur, sviðsstjóri
hjá Mannviti, f. 20.
júní 1967. Börn
þeirra a) Tandri, f.
26.8. 1992, maki
Sædís Kjærbech
Finnbogadóttir b)
Darri, f. 16.1. 1995,
og c) Dana Sól, f.
31.12. 1998.
Sverrir var fæddur og uppal-
inn í Hafnarfirði og bjó þar alla
tíð. Hann lærði húsgagnabólstr-
un hjá Ragnari Björnssyni og í
Iðnskólanum í Hafnarfirði og
vann við bólstrun svo lengi sem
hann gat, lengst af hjá Ragnari
Björnssyni.
Hann var mikill íþróttaaðdá-
andi og stundaði íþróttir á
yngri árum. Hann æfði frjálsar
íþróttir og lagði þar einkum
stund á spjótkast. Hann æfði
handbolta með FH, lék ótal leiki
með meistaraflokki og var einn
af „gullaldarliði FH“ undir
stjórn Hallsteins Hinrikssonar.
Hann spilaði bridge og var
félagi í Bridgefélagi Hafnar-
fjarðar. Hann tók þátt í alls
kyns mótum og sveitakeppnum
auk þess að spila hin síðari ár
með Félagi eldri borgara í
Hafnarfirði.
Útförin fór fram 1. maí 2020.
Elsku pabbinn minn, fallegi
pabbi minn með fallega hárið.
„Hvað segirðu, ljúfan mín?“ þeg-
ar við hittumst – notalegri orð
sagði enginn við mig og þú varst
svo einlægur … Þú lést okkur
fjölskyldunni, hverju og einu
okkar, líða eins og við værum að-
al … hvert og eitt þitt uppáhald.
Og við vorum öll aðal hjá þér.
Fjölskyldan þín var númer eitt.
Enginn var mjúkhentari eða
natnari við smáatriðin, það sem
þú gast dúllað í að klippa á mér
neglurnar þegar ég var lítil því
mér fannst það svo vont. Þú
skildir mig og varst svo þolin-
móður við verkið að aldrei fann
ég til þegar þú gerðir það. Þegar
þú „klæddir“ alltaf appelsínuna
úr hýðinu handa mér, skarst út
vettlinga, húfu o.fl. og plokkaðir
utan af henni, ég hef aldrei getað
tekið utan af appelsínu, Tryggvi
gerir það fyrir mig!! Dekrið og
dútlið … það er yndislegt að
hugsa til baka. Blokkflautan, bíl-
beltið – þú sagðir Tryggva sögur
af mér og við skemmtum okkur.
Undanfarið ár var þér og okk-
ur erfitt, töffarinn í þér var fyr-
irferðarminni, það glitti þó í hann
öðru hverju, húmorinn var til
staðar allt þar til yfir lauk en þú
varst samt ekki þú.
Þig langaði ekki að vera gam-
all og veikur, vildir bara verða
aftur hress og fær um að gera
það sem þig lysti. Þegar þú gast
ekki farið út og bónað og pússað
bílinn, þá var greinilegt að þú
varst farinn að gefa eftir.
Ég sakna þín meira en ég get
tjáð með orðum. Þú varst maður
fárra orða en ákveðinn með ein-
dæmum ef þér lá eitthvað á
hjarta.
Ég sé að sorgin hefur engin
aldurstakmörk. Ég er í eðli mínu
meyr eins og þú og nú læt ég það
bara eftir mér að vera sorgmædd
og gráta, ég má það þó ég sé full-
orðin. Þú varst hógvær og stilltur
maður en sagðir þínar skoðanir.
Þú varst börnunum mínum frá-
bær afi og minningarnar eru
óteljandi.
Nú liggjum við yfir myndum
og rifjum upp góðar stundir sem
við áttum með þér.
Þú kenndir mér íslenskt mál,
last fyrir mig ljóðabækur og ann-
að það sem vakti áhuga þinn í
bókum eða blöðum. Þú kenndir
mér líka að leysa krossgátur og
ég þakka þér hversu vel mér
gekk að lesa og hversu góða til-
finningu fyrir tungumálinu ég tel
mig hafa. Þú kenndir mér töfra
tungumálsins og fjölbreyttan
orðaforða íslenskrar tungu.
Elsku pabbi, náttúrubarn og
veiðimaður, yndislegur faðir og
afi, handverksmaður og hagyrð-
ingur, takk fyrir mig, takk fyrir
að vera þú og gefa mér allt sem
þú gafst mér.
Að kveðja þig er með því erf-
iðara sem ég hef gert en ég veit
að ég kemst í gegnum þetta. Við
pössum mömmu vel.
Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást
þín var.
Ó, pabbi minn, þú ávallt tókst mitt
svar.
Aldrei var neinn svo ástúðlegur eins og
þú.
Ó, pabbi minn, þú ætíð skildir allt.
Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn.
Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði.
Ó, pabbi minn, ég dáði þína léttu lund.
Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt.
Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást
þín var.
Æskunnar ómar ylja mér í dag.
(Þorsteinn Sveinsson.)
Guð geymi þig, elsku pabbi.
Þín
Elva.
Jæja elsku pabbi minn, nú
verða stundir okkar ekki fleiri
saman í þessu lífi. Mikið svaka-
lega á ég eftir að sakna þín sárt.
Sakna þess að geta ekki boðið þér
í mat í Lindarbergið okkar, þar
sem ég malla eitthvað og þú að
snuðra í kringum mig. Við að spá
í kjöt, krydd og sósur og nánast
aldrei fara eftir uppskriftum eða
þá að minnsta kosti betrumbæta
þær. Já elsku pabbi, ég segi
Lindarbergið okkar því þau eru
ófá handtökin í þessu húsi sem þú
lagðir af mörkum þegar við Þór
vorum að byggja. Þú gekkst í svo
margt eins og að skafa timbur,
hreinsa nagla, vera í steypu-
vinnu, mála og lakka glugga/
hurðir því enginn gat það eins vel
og þú og svo að sækja og sendast.
Eins var enginn betri í að fara og
fá alls konar tilboð í þetta og hitt,
svo við tölum ekki um afslættina
hér og þar. Já elsku pabbi, hand-
verk þitt og minningar eru hér
alls staðar. Þú varst nú líka snill-
ingur í höndunum, gerðir ófáar
stólsessurnar fyrir okkur og
aldrei mál að redda nýju áklæði
þegar ég vildi breyta um efni og
lit. Meira að segja gerðir þú stól-
setur og mamma tók þær með til
Álaborgar þegar við vorum þar.
Ég bara hringdi í pabba, því hin-
ar sessurnar voru ekki nógu flott-
ar, og málinu var reddað. Antik-
bleiku sófarnir þrír í stofunni eru
líka minningar um handverk þitt
og minningarnar um valið á þeim.
Þú varst sko ekki sammála mér
með lit en mikið vorum við sátt
þegar verkið var búið og komið í
stofuna. Já, það hefur líka bara
verið nokkuð gott að dotta í þeim!
Handavinnuhendurnar veit ég al-
veg hvaðan ég hef elsku pabbi og
oft höfum við nú rætt það, ekki
leiðum að líkjast. Fótafimi mín
kemur líka úr föðurlegg og ekk-
ert veit ég skemmtilegra en taka
sporið 1, 2, 3 - 1, til baka og
krossa. Kannski bara reyni ég að
kenna Þór loksins taktinn þinn
og mömmu. Símhringinguna á
GSM-símanum mínum ætla ég að
hafa eins lengi og ég get því það
lag sungum við saman þegar ég
var lítil. Já pabbi minn, þú varst
ekki maður margra orða en áttir
oft gullkorn sem sitja í hjarta
mér. Þú varst alltaf stoltur af
stelpunum mínum þremur og átt-
ir þínar tengingar og samband
við hverja og eina, takk fyrir það.
Þú varst líka besti félagi Þórs og
áttuð þið ykkar tengingar og
þurftuð ekki einu sinni að tala
saman þegar þið voruð saman.
Minningapoki minn er þungur
enda samfylgd okkar nær 59 ár
og gæti ég örugglega skrifað
margar blaðsíður um þig elsku
pabbi, afi Sverrir, afi langi. Ég er
hrikalega sorgmædd yfir að þú
skulir vera farinn en líka pínu
glöð að þú finnur ekki lengur til
og ert kominn til fundar við
Sverri bróður, sem örugglega
hefur fagnað þér. Ég mun hlusta
á tónlistina okkar og glugga í
pokann. Hvíldu í friði elsku
pabbi. Ég elska þig.
Þín dóttir,
Vilborg.
Mig langar að minnast með
fáum orðum tengdaföður míns
Sverris Jónssonar, eða Sverris
bólstrara eins og margir Hafn-
firðingar þekktu hann.
Ég kynntist þeim feðgum
Sverri og Sverri þegar við Sverr-
ir yngri unnum saman sem renni-
smiðir í vélsmiðjunni Faxa. Þar
kom sá eldri nokkrum sinnum við
til að ræða eitthvað merkilegt við
soninn. Fljótt kom í ljós sameig-
inlegur áhugi okkar á bílum, þar
sem Volvo og Willys voru bílarnir
sem voru fremstir meðal jafn-
ingja. Þegar þeir feðgar festu
kaup á einum gömlum Willys var
auðvitað Volvo mótor í honum.
Áttum við þrír marga ánægju-
lega tíma í skúr við að betrum-
bæta jeppann og skreppa veg-
slóða í nágrenni Hafnarfjarðar
sem ekki má aka á lengur.
Eftir að ég fór svo að venja
komur mínar á Miðvanginn, ekki
til að hitta þá heldur heimasæt-
una, kynntist maður þessu gæða-
blóði sem tengdakallinn var enn
betur. Okkur varð fljótlega það
mikið til vina að heimasætan
kvartaði um að hún hefði nú ekki
verið að finna föður sínum leik-
félaga heldur sér mannsefni.
Sverrir var geysilega mikið
náttúrubarn, hann naut sín við
útiveru hvort sem var við veiðar
eða í berjamó. Hann var fljótur
að draga mig með sér í veiði,
bæði með byssu og stöng. Þær
voru ófáar ferðirnar sem farnar
voru á Arnarvatnsheiði og í
Veiðivötn, svo ekki sé minnst á
Hvítársíðuna í silung og í Tung-
urnar í gæs og á rjúpu. Áttum við
margar gæðastundir í skurði að
bíða eftir gæs eða á akstri þar
sem ekki endilega var verið að
tala.
Sverrir hafði ávallt mikinn
áhuga á því sem maður var að
gera, hvort sem það var við leik,
störf eða aðrar framkvæmdir.
Það var gott að eiga hann að í
ýmsar reddingar sem kom best í
ljós þegar rokið var í húsbygg-
ingu. Það voru ófá handtök sem
hann átti með manni í húsinu og
margir dagar þar sem hann lauk
vinnudeginum með því að koma í
Lindarbergið og taka til hend-
inni.
Gott er að eignast góðan
tengdaföður en ómetanlegt að
eiga hann að þeim vini sem hann
var mér. En nú er komið að leið-
arlokum á okkar ferðalagi saman,
hann er farinn sína leið og ég
vonandi hitti hann síðar, því eitt
er víst að maður kemst ekki lif-
andi frá þessu. Eftir lifir minn-
ingin um góðan mann og maður
getur yljað sér við að rifja upp
þær góðu stundir sem við áttum
saman. Far þú í friði og takk fyrir
allt og allt.
Þór Pálsson.
Klukkan er fimm að morgni og
sólin lýsir upp norðanverðan Ei-
ríksjökul. Við erum staddir á
Arnarvatnsheiðinni, berir að of-
an, sitjum á stuðaranum á upp-
hækkuðum Willys og brosum
hringinn eftir veiði næturinnar í
nætursólinni. Það eru svona
minningar sem koma fyrst upp í
hugann þegar ég rifja upp 35 ára
ferðalag með Sverri Jónssyni,
tengdaföður, vini og veiðifélaga.
Við náðum vel saman tengda-
feðgarnir í gegnum árin og nut-
um þess. Þær eru óteljandi veiði-
ferðirnar, bíltúrarnir og
ferðalögin sem við áttum saman
og iðulega þegar við vorum á leið-
inni þá sagði Sverrir sögur frá
því í gamla daga sem byrjuðu oft-
ast einhvern veginn þannig: „Ég
man þegar við Sæmi og Siggi Júll
vorum að fara í veiði þá…“.
Sverrir var mikið náttúrubarn
enda var hann í sveit að Reykjum
í Lundareykjadal í mörg ár þar
sem hann gat leikið sér í nátt-
úrunni, hugsað um dýrin og veitt
í vötnum og ám. Hann þekkti
blómin, fuglana og fjöllin og stóð
fastur á því að fegursti dalur á Ís-
landi væri Lundareykjadalurinn,
þar sem hægt væri að gæða sér á
besta rabarbara í heimi. Það eru
fáir sem ég hef kynnst um ævina
sem hafa haft eins mikinn áhuga
á ljóðum og tengdafaðir minn.
Hann kunni þau mörg utan að og
rifjaði þau oft upp í okkar veiði-
túrum, einnig var hann oftast
með eina ljóðabók til að glugga í
nálægt sér. Síðustu árin voru
fæturnir farnir að gefa sig og því
var minna veitt en þá bara rúntað
meira og hlustað á Johnny Cash
og Eric Clapton.
Maturinn var ekki síður mik-
ilvægur en veiðin eða gistingin í
okkar veiðiferðum. Það var því
ekki tilviljun þegar við vorum að
reyna að finna nafn á veiðihópinn
okkar, að nefna hann „Gúllas“.
Sverrir mætti með gúllasið í veið-
ina og því fylgdi svo saga um hvar
hann fann besta kjötið og hvernig
hann hafði eldað þetta dýrindis
gúllas.
Sverrir var mikill keppnismað-
ur í öllu því sem hann tók að sér
hvort sem var í vinnu, veiði eða
öðrum íþróttum enda hluti af
gullaldarliði FH í handknattleik
undir stjórn Hallsteins Hinriks-
sonar. Í haust þegar við kíktum í
Hvítá í Borgarfirði sagði hann
mér að hann ætlaði að sigra þetta
krabbamein sem hann var búinn
að glíma við í nokkur ár, en því
miður þá gekk það ekki. Afa
Sverris er sárt saknað af fjöl-
skyldu og vinum. Við nutum sam-
verustundanna, Elva er svo mikil
pabbastelpa og börnin okkar
dýrkuðu afa sinn. Ferðirnar í lif-
andi lífi verða ekki fleiri en minn-
ingin um heiðarlegan, skemmti-
legan og kláran tengdaföður, vin
og veiðifélaga mun lifa um ókom-
in ár. Nú eru börnin, barnabörnin
og barnabarnabörnin búin að
taka við og munu halda þétt utan
um hvert annað og þá sérstak-
lega ömmu Maju sem hefur stað-
ið eins og klettur hjá Svedda sín-
um í gegnum súrt og sætt.
Það er nú þegar búið að skipu-
leggja minningarathöfn á heið-
inni þegar við förum þangað í
sumar. Blessuð sé minning þín,
minn kæri.
Þinn vinur
Tryggvi.
Elsku afi Sverrir. Ég veit
hreinlega ekki hvar ég á að byrja.
Alveg sama hversu undirbúna ég
taldi mig fyrir að þurfa að kveðja
er það samt svo erfitt. Ég veit
ekki hversu langan tíma það á
eftir að taka að venjast því að
heyra ekki „nei ert þetta þú vina
mín?“ þegar ég labba inn á heim-
ili ykkar ömmu, sjá þig sitjandi í
græna stólnum og brosa til mín.
Það sem er mér efst í huga
þegar ég hugsa um tímann okkar
saman er þakklæti. Þakklæti fyr-
ir að kynda undir ást minni á bók-
um og vekja ástina á ljóðum.
Þakklæti fyrir óbilandi trú á mér
í því sem ég stefni að í lífinu.
Minningarnar um tímann sem þú
eyddir í að fá mig til að þora að
botna vísurnar þínar sem og
stundirnar sem við eyddum í að
horfa á matreiðsluþætti, og
vangaveltur um innihald þeirra,
eru birtan í svartnættinu sem
sorgin er.
Ég gæti sagt svo ótalmargt, en
þú varst ekki maður margra
orða. Því hef ég þig í huga og
hjarta um ókomna tíð og kveð þig
með fallegum orðum manns sem
þú kynntir mig fyrir og er í miklu
dálæti hjá mér.
Þú ert á förum, fuglinn minn,
að flýja snjó og veturinn.
Hver veit nema’ í hinzta sinn
ég hlýði’ á þýða róminn þinn.
Þangað sem að sólin skín,
sumarblíðan aldrei dvín,
betri dagar bíða mín
og betri kvæði heldr en þín.
(Páll Ólafsson)
Þangað til við sjáumst aftur
elsku afi. Þín
Hanna Mjöll Þórsdóttir.
Elsku afi Sverrir. Ég veit ekki
hversu oft ég settist niður og
byrjaði að skrifa það sem kemur
hér að neðan, en hvernig á ég að
byrja að skrifa þér bréf sem ég
veit ég ekki fæ svar við? En ég er
þakklát fyrir öll bréfin sem við
höfum skrifað hvort öðru eftir að
ég flutti frá Íslandi.
Minningarnar streyma fram í
hugann um allt það sem við höf-
um brallað í gegnum lífið og til-
veruna og þú varst ein aðalsögu-
persónan í mínu lífi. Ég gæti talið
upp ótal hluti sem við höfum
dundað saman, en það sem situr
sterkast i minningunni eru allar
stundirnar á Miðvanginum, hvort
sem það var ég að skottast í
kringum þig á planinu, spjall við
eldhúsborðið eða á sófanum og
ekki síst sveppatúrarnir þegar ég
var lítil.
Það verður erfitt að venjast
því að fara ekki að heimsækja
ömmu OG afa á Íslandi næst þeg-
ar ég kem, heyra gleðina í rödd-
inni; „nei ert þetta þú ljúfan mín“
þegar ég hringi, nú eða njóta
samverunnar við eldhúsborðið,
að spjalla um heiminn og búa til
brandara eins og okkur einum
var lagið.
Alltaf hafðirðu áhuga fyrir
mér og því sem ég var að gera,
studdir mig ótrauður áfram. Ófá
voru þau skiptin sem þú sagðir
við mig að nú værirðu sko búinn
að kaupa lottómiða til að vinna
fyrir skólagjöldunum mínum í
Sviss. Svo tókstu manninum mín-
um opnum örmum og gafst þér
tíma í að spjalla við hann þó að
þið töluðuð ekki einu sinni sama
tungumálið; spurðir alltaf um
hann og Emmuna okkar þegar
við töluðum saman í tölvunni.
Allt eru þetta ljúfar minningar
sem munu ávallt fylgja mér.
Ég enda þetta á bæn sem
minnir mig alltaf á þegar ég lúll-
aði í ömmu og afa húsi á Miðvangi
og finnst eiga sérstaklega vel við:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson)
Elsku afi, takk fyrir allt, takk
fyrir lífið, takk fyrir skemmt-
unina og takk fyrir samveruna.
Mun sakna þín alla daga, alltaf.
„Þar til við hittumst aftur.“
Þín
María Fönn.
Elsku besti afi minn.
Takk fyrir allar góðu stundirn-
ar okkar saman. Minningarnar
eru óteljandi og ég er svo þakklát
fyrir þær. Takk fyrir að hafa óbil-
andi trú á mér og byggja mig
upp. Það verður skrítið að koma
til ömmu og þú verður ekki í
stólnum þínum. Enginn sem tek-
ur á móti mér, kyssir mig á hand-
arbakið og segir mér að ég verði
fallegri með hverjum deginum.
Ég er svo fegin að ég náði að tala
við þig í símann áður en þú
kvaddir okkur. Þú sagðir þá við
mig að þú saknaðir mín ógurlega
og að við yrðum að fara að hitt-
ast. Nú sakna ég þín alveg óg-
urlega og vona að við hittumst í
draumalandinu. Elska þig.
Kveðja, ljúfan þín,
Dana Sól
Tryggvadóttir.
Sverrir
Jónsson