Morgunblaðið - 15.05.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 15.05.2020, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Toyota Avensis Live. 8/2017 Ekinn aðeins 36 þús. Km. Einn eigandi. Ekki bílaleigubíll. Auka vetrardekk á felgum. Þjónustubók. Tilboðsverð: 2.490.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. VW GTI árg. 2005 til sölu 6 gíra beinsk. 199 hestöfl. Ekinn 142 þús. km. Skoðaður. Verð 680.000.- Upplýsingar í síma 822 6554. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Tunguvegur 48, Reykjavík, fnr. 203-6266 , þingl. eig. Freyja Gylfa- dóttir, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykja- víkurborg, TM hf. og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn 19. maí nk. kl. 10:00. Réttarholtsvegur 1, Reykjavík, fnr. 203-5753 , þingl. eig. Magnús Garðarsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 19. maí nk. kl. 10:30. Grensásvegur 16, Reykjavík, fnr. 201-5618 , þingl. eig. Hraunbraut ehf., gerðarbeiðendur Fasteignafélagið Fell ehf., Arion banki hf. og Eik fasteignafélag hf., þriðjudaginn 19. maí nk. kl. 11:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 14. maí 2020 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Við höfum opið alla daga frá kl. 9-15, með takmörkunum þó. Þar sem enn eru hópatakmarkanir þarf að skrá sig í alla viðburði hjá okkur. Lögð er rík áhersla á handþvott og sprittun og biðjum við alla að huga að því bæði við komu og brottför. Skráning og allar upplýsingar í síma 411 2701 og 411 2702. Hlökkum til að sjá ykkur. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Höfum opnað smá rifu á félagsmiðstöðina. Ákveðnar takmarkanir eru í gildi. Misjafnt eftir svæðum hve margir komast inn í einu. Áfram þarf að huga vel að handþvotti og sprittun bæði þegar komið er inn og þegar farið er út. Í suma viðburði þarf að skrá sig í síma 411 2790. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Hlökkum til að sjá ykkur. Korpúlfar/Borgir Grafarvogi. Opið í Borgum með ákveðnum takmörkunum en förum rólega af stað, skref fyrir skref, sjáumst fagnandi. Hámark 20 manna hópar og virðum 2 metra regluna. Lögð áhersla á handþvott og sprittun bæði við komu og brottför í Borgir, þar sem gleðin býr. Gönguhópur Korpúlfa með göngur alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10 gengið frá Borgum. Mánudögum einnig frá Grafarvogskirkju. Kaffi á könnunni. Seltjarnarnes Kaffikrókurinn er opinn fyrir íbúa Skólabrautar. Leik- fimi í salnum á Skólabraut kl. 11 fyrir íbúa Skólabrautar og svo kl. 13 fyrir aðra eldri bæjarbúa Seltjarnarness.    ✝ Björn Em-ilsson fæddist í Reykjavík 15. apríl 1936. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir Grafarvogi 5 maí. Foreldrar hans voru Valentína Finnrós Valgeirs- dóttir húsmóðir, f. 1914, d. 1939 og Carl Emil Ole Möller Jónsson skrif- stofumaður, f. 1912, d. 1958. Þau eignuðust einnig soninn Valgeir, f. 1934, d, 2013. Seinni kona Carls Emils var Hrefna Sigríður Ólafsdóttir, f. 1917, d. 2013. Börn þeirra eru: Ólafur, f. 1941, Jón, f. 1945, 1957 giftist Björn Kristínu Markan, f. 1938, d. 1986. Sam- an eignuðust þau 5 börn: Eddu sem er gift Kaj Lyberth, saman eiga þau dæturnar Maríu og Thelmu. Með fyrri eiginmanni sínum á Edda 3 börn, Mörtu Maríu, Jón Sigurð og Emil Jök- ul. Sigríði sem á soninn Vil- hjálm Björn. Emil, giftur Krist- ínu Önnu Yeoman, saman eiga þau Tinnu, Victor og Tanya. Valentínu, gift Karli Eiríks- syni, saman eiga þau 1 dóttur, Kristínu Shu Rui. Einar sem á 3 börn, Alex, Tristan og Lilju. Björn og Kristín bjuggu á höfuðborgarsvæðinu og svo seinna á Snæfellsnesi. Þau skildu 1974. Sonur Björns úr seinna sambandi er Carl Erik Mikaelsen. Útför Björns fer fram í kyrr- þey frá Fossvogskirkju 15. maí 2020 kl. 13. Dóróthea, f. 1950 og Dagný, f. 1952. Björn lærði til loftskeytamanns og vann við það í Loftskeytastöðinni Gufunesi, Lóran- stöðinni á Gufu- skálum, á Suður- Grænlandi og til sjós. Seinna nam hann flugumferð- arstjórn og vann sem flugumferðarstjóri á Grænlandi í fjöldamörg ár, bæði í Kulusuk og Nassarsuaq. Samhliða þessum störfum stundaði Björn verslun og við- skipti. Seinna fluttist hann til Bandaríkjanna þar sem starf- aði sem fasteignasali. Pabbi fæddist inn í vorið þegar vetrarblómin blómstra og lífið í náttúrunni vaknar. Hann var mikill athafnamaður og þurfti alltaf að hafa stór plön á prjón- unum „operation hitt og þetta“. Hann tók sér margt fyrir hendur á lífsleiðinni, oft á tíðum var leiðin grýtt og á brattann að sækja. Hann var stemningsmaður og í minningunni situr hann með morgunkaffið sitt, í útvarpinu hljómar glaðleg tónlist og dag- bókarsíðan er þétt skrifuð með smáu letri og fallegri rithönd. Um það bil að fara að vinna vatn úr Grænlandsjökli langt á undan sinni samtíð. Hann var litríkur persónuleiki og tilvera hans var oft á tíðum ævintýraleg, flugum- ferðarstjóri á Grænlandi til fjölda ára, byggði sér hús í Kulusuk þar sem hann rak litla verslun sem seldi Wrangler-gallabuxur, gaml- an peysulager úr Vinnufatabúð- inni og íspinna frá Íslandi. Hann rak líka verslanir hér heima, jafn- framt því að vera í fullri vinnu sem loftskeytamaður bæði til sjós og lands. Lóranstöðin á Gufuskál- um skipar sérstakan sess í minn- ingabankanum, þar sem jökullinn og fegurðin vakti yfir öllu. Hann elskaði að fara í „túr“ eins og hann orðaði það sjálfur og keyra fyrir jökul með fjölskylduna, fara í lautarferð að Búðum, busla í sjónum í Skarðsvíkinni og tína steina á Djúpalónssandi. Fjöl- skyldan átti saman góðan tíma þar og í huganum þakka ég hon- um oft fyrir þessi ár frumbernsk- unnar. Pabbi hafði næmt fegurðar- skyn og hreifst af því smáa, lítil blóm og litlir hlutir, „en krúttara- legt“ sagði hann stundum, þegar við sátum saman á kaffihúsi nú í seinni tíð og eitthvert lítið sætt skraut var á borðinu. „Er ég ekk- ert hallærislegur í þessum bol?“ sagði hann stundum þegar ég var að sækja hann í Norðurbrún þar sem hann bjó. Hann vildi alltaf vera reffilegur til fara, í minning- unni er hann í smóking, stífstrauj- aðri skyrtu og vel pússuðum skóm, eða „cowboy-skyrtu og jeans“ því hann var alltaf svolítill Kani í sér og fannst það flott. Hann fékk sinn Ameríkudraum uppfylltan og bjó þar á vestur- ströndinni heillengi. Honum gekk misvel að fóta sig í Ameríkunni. Tók þar próf í fasteignasölu og vann við það ásamt öðrum störf- um. Í hjartanu var lýðveldisbarn og hugur hans leitaði heim til Ís- lands – fara í sund og taka góðan túr út á land. Ísland var honum afar kært. Hann var með tattú á handleggnum og það var íslenski fáninn sem hann elskaði, á skrif- borðinu hans þar sem framtíðar- áformin voru plönuð var fáninn ávallt dreginn að húni beint upp úr pennakrukkunni. Eftir langa ferð um djúpa dali og yfir fjöllin sjö kom hann heim, orðinn svolítið gamall og lúinn ferðalangur með töskur tvær. Hér heima fékk hann húsaskjól og kærleiksríka umönnun og var hann starfsfólki á Norðurbrún þar sem hann bjó afar þakklátur, sem og starfsfólki á Eir þar sem hann dvaldi síðasta æviárið. Minningarnar eru margar sem koma upp í hugann. Við áttum saman margar góðar stundir, bíl- túrar niður á höfn með viðkomu á Kaffivagninum voru í miklu uppá- haldi. Pabbi var lífsglaður maður og sá alltaf eitthvað gott í öllum aðstæðum. Hann elskaði grín og fíflagang og oftar en ekki kvödd- umst við með grettum og hlátra- sköllum. Nú er komið að lokatúrnum og eins og í upphafi er vorið að vakna og vetrarblómin svo fögur og smá fylgja þér inn í eilífðina og ég mun breiða fánann yfir kistuna þína og gretta mig smá. Takk fyrir lífið sem þú gafst mér, elsku pabbi minn. Þín Valentína. Í dag verður til moldar borinn elskulegur bróðir okkar, Björn Emilsson, sem var næstelstur systkinanna sex. Minningar streyma fram. Bíi, eins og hann var kallaður af fjölskyldunni, var mikill lífsnautna- og gleðimaður, hugmyndaríkur athafnamaður sem kom víða við á langri ævi og átti sér stóra drauma. Hann kvæntist 1957 Kristínu Harðardóttur Markan og átti með henni fimm börn, Eddu, Sig- ríði, Emil, Valentínu og Einar, sem öll búa erlendis nema yngsta dóttirin Valentína, sem á heima í Reykjavík. Á Grænlandi var hann í sambúð með Kristiane Mikael- sen, eignaðist son með henni, Carl Erik. Kvæntist 1990 Mathilde Bo- dil Edvardsen, þau skildu. Bíi var loftskeytamaður og starfaði sem slíkur m.a. á frakt- skipum Eimskips og Sambands- ins, á lóranstöðvunum í Gufunesi og Gufuskálum á Snæfellsnesi. Þá flutti hann til Grænlands og vann á veðurathugunarstöðinni Prins Christian. Fór síðan til Danmerk- ur til að nema flugumferðar- stjórnun. Vann síðan við flugum- ferðarstjórn í Kulusuk á Græn- landi. Eftir viðbótarnám í skóla Bandaríkjahers í Seattle tók hann svo við stöðu flugvallarstjóra í Narsarsuaq. Eftir það lá leiðin til Bellevue, nærri Seattle í Washingtonríki, og svo þaðan til Everett sem er þar ekki langt frá. Þar starfaði hann aðallega við fasteignavið- skipti. Þannig bjó hann erlendis meg- inhluta ævinnar. Naut þess að koma heim af og til og hitta fjöl- skylduna. Í fjölskylduboðunum var hann jafnan hrókur alls fagn- aðar og sveiflaði gjarnan mömmu upp í léttan dans ef hann heyrði góða tónlist. Hafði gaman af að rifja upp skemmtilegar sögur frá gamalli tíð, frá stundunum góðu sem þeir Valgeir, elsti bróðirinn, áttu með fjölskyldu föðursystur okkar Charlottu á Borg á Mýrum og árunum á Freyjugötu 10 sem var eins konar miðstöð fyrir stór- fjölskylduna. Það var alltaf mjög gaman og fróðlegt að heyra hann segja frá þessum árum, sérstak- lega þegar hann talaði um ömmu Dorótheu og systur hennar, Em- ilíu og Christensu, sem fæddar voru í Stykkishólmi, dætur Möll- ers apótekara og Málfríðar konu hans. Bíi kom heim til Íslands 2012 og settist hér að með góðri hjálp yngstu dóttur sinnar, Valentínu, sem hugsaði vel um pabba sinn heim kominn. Hann dvaldi á Hrafnistu um skeið og síðustu ár- in var hann á Sjúkraheimilinu Eir, sæll og ánægður, og andaðist þar saddur lífdaga 5. maí síðast- liðinn. Við systkinin vottum börnun- um öllum og fjölskyldum þeirra innilega samúð og biðjum minn- ingu hans blessunar. Ólafur, Jón, Doróthea og Dagný Emilsbörn. Í dag kveðjum við Björn Em- ilsson föðurbróður okkar. Björn, eða Bíi eins og við fjölskyldan kölluðum hann jafnan, var eini al- bróðir föður okkar og tveimur ár- um yngri. Nokkurra ára gamlir misstu þeir móður sína, Valentínu Finnrós Valgeirsdóttur, sem þá var aðeins tuttugu og fjögurra ára og markaði þessi missir djúp spor í líf þeirra beggja. Faðir þeirra, Carl Emil Ole Möller Jónsson, kvæntist síðar yndislegri konu, Hrefnu Ólafs- dóttur, sem gekk Bía í móðurstað en saman eignuðust þau börnin Ólaf, Jón, Dórótheu og Dagnýu. Valgeir faðir okkar var hinsvegar hjá móðurömmu sinni Sigríði og Hannesi eiginmanni hennar sem bjuggu í nágrenninu. Samgangur var alltaf mikill og náið samband milli systkinanna allra. Mikil tengsl voru einnig við frændfólkið á Bergstaðastræti og aðra ætt- ingja sem bjuggu á sömu slóðum. Þeir bræður, faðir okkar og Bíi, voru hvort tveggja í senn, lík- ir og ólíkir, samrýmdir og ósam- stíga, en eitt er víst að sterkur þráður var ætíð á milli þeirra og mikið þótti þeim vænt hvorum um annan. Bíi var lærður loftskeytamað- ur og starfaði í fjölda ára við loft- skeytastöðina í Gufunesi og við Lóranstöðina á Gufuskálum. Síð- ar lá leiðin til Grænlands þar sem hann starfaði einnig við sitt fag. En Bíi lét sitt fag ekki nægja, enda sá hann tækifæri í hverju horni hvar sem hann steig niður fæti. Hugmyndirnar gátu þó stundum verið háleitari en efni stóðu til þótt viljinn hafi sannar- lega verið til staðar. Í heimsóknum hans til Íslands var oft glatt á hjalla þegar fjöl- skyldan kom saman. Hann pass- aði sérstaklega upp á að heim- sækja bróður sinn og voru þá málin reifuð í löngu máli fram eft- ir nóttu. Að Grænlandsárum loknum fluttist Bíi til Bandaríkj- anna þar sem hann endaði sinn starfsferill áður en hann fluttist að lokum heim til Íslands þar sem hann átti sín síðustu ár. Þeir bræður skrifuðust á alla tíð og voru þær bréfaskriftir mikilvæg- ar fyrir þá báða. Ekki síst þegar á leið og fjarlægðin var sem mest á milli þeirra. Bíi var stálminnugur, með mikla frásagnargáfu og hafði ríka þörf fyrir að reifa hugmyndir sínar við aðra og segja ævintýra- legar sögur af lífi sínu og starfi. Hann var auk þess vel drátthagur frá unga aldri og hafði fallega rit- hönd. Bíi kvæntist Kristínu Markan og áttu þau saman fimm börn. Hinir góðu eiginleikar hans lifa áfram í börnunum og frændsemin við þau er okkur mikils virði. Elsku Edda, Sigga, Emil, Valla og Einar, við vottum ykkur og fjölskyldum ykkar innilegar sam- úðarkveðjur. Aðalheiður Valgeirsdóttir Sigríður Valgeirsdóttir Emil Hannes Valgeirsson Björn Emilsson Í póstútibúi Vest- urbæjar hitti ég Sigurlaugu fyrst fyrir tæpum 40 ár- um þegar ég bar út póst um tíma. Við sorteruðum bréfin hlið við hlið og spjölluðum saman. Sigurlaug var skemmti- lega kímin, vel gefin og gaman að ræða við hana. Hún var nett og kvikk og hafði einstaklega fallegt litaraft, líklega af mikilli hreyf- ingu útivið í starfi sínu. Þetta var ekki langur tími, en síðar tókum við upp þráðinn og ég heimsótti hana stundum á Seltjarnarnesið. Hún var alþýðukona austan úr Lóni og talaði stundum um upp- vöxtinn og í hugann koma stakar myndir af óbrúuðum ám sem menn þurftu að sundríða; af syst- ur sem saumaði fötin á heimilis- fólkið af áhuga og færni; af syst- ur sem dó ung; af skóladvöl í hússtjórnarskóla í Hveragerði sem stórt útsaumað veggteppi í stofunni var til vitnis um. Þegar Sigurlaug var hætt að vinna á póstinum helgaði hún sig handverki. Hún hafði afar haga Sigurlaug Gísladóttir ✝ SigurlaugGísladóttir var fædd 26. desember 1921. Hún lést 25. apríl 2020. Útför hennar fór fram 14. maí 2020. hönd og á sumrin sat hún uppi í bað- stofu Árnasafns og spann á rokk fyrir nútímafólk sem aldrei hafði snert á slíkri vinnu. Hún gaf mér eitt sinn forláta útprjónaða vettlinga með rósa- munstri og fíngerð- an dúk, gerðan eftir japanskri aðferð. Eftir langan vinnudag bjó hún notalega ásamt kanarífuglum sínum; í stofu hennar ríkti þokki en þó látleysi og það einkenndi hana líka sjálfa. Hún var stolt yf- ir afkomendum sínum og sagði mér frá þeim. Allt til enda sinnar löngu ævi bjó hún yfir reisn; hún vildi helst ekki að ég færði henni gjafir þegar ég kom til hennar, hún vildi sjálf vera veitandinn. Ekki tók hún annað í mál en að baka pönnukökur hvernig sem á stóð og ég samdi við hana, síð- ustu skiptin sem við hittumst, að hún hrærði deigið en ég myndi steikja þær á pönnunni. Hún gerði óspart grín að sjálfri sér fyrir það eins og hún gerði stundum upp á skaftfellskan máta. Ég þakka fyrir vináttu okkar og samverustundir og færi fólk- inu hennar samúðarkveðju mína. Berglind Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.